https://teams.microsoft.com/meet/3893375968863203?p=REO0hkEcWNvIPeh9Mg
Ákvarðanir um opinberar fjárfestingar móta þjónustu og binda fjármuni til áratuga. Samt berast reglulega fréttir af verkefnum þar sem áætlanir um kostnað, tíma og ávinning standast ekki. Hvað veldur þessu — og hvað má læra af því?
Óli Örn Eiríksson fjallar um orsakir framúrkeyrslu og kynnir vinnu við nýja umgjörð um fjárfestingar ríkisins, en sú umgjörð nýtir nálgun faglegrar verkefnastjórnunar. Til að mynda er fjallað um að allar fjárfestingar fari í gegnum fimm stig frá tilefnisgreiningu til skilamats. Þá eru kynntar hugmyndir um þrjú ákvörðunarhlið þar sem tekin er formleg ákvörðun um framgang verkefnis áður en það heldur áfram.
Erindið tengir langtímasýn og forgangsröðun við þær ákvarðanir sem ráða framgangi einstakra verkefna: hvaða þörf á að leysa, hvaða valkostir koma til greina og hvenær eru forsendur nægilega traustar til að halda áfram? Þá verður skoðað hvernig sameiginlegur gagnagrunnur og mat á niðurstöðum geta gert reynslu fyrri verkefna að grundvelli þeirra næstu. Að lokum verður fjallað um sambærilega nálgun hjá verkefnastjórnsýslu í Noregi, og þeim árangri sem þeir hafa náð síðustu ár.
Erindið hentar stjórnendum, verkefnastjórum, ráðgjöfum og öðrum sem koma að fjárfestingum.
Um fyrirlesarann
Óli Örn Eiríksson leiðir vinnu við nýja umgjörð um fjárfestingar ríkisins í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hann er viðskiptafræðingur og hefur síðastliðin 20 ár unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði fjárfestinga, innviða og stefnumótunar. Hann stýrði áður atvinnu- og borgarþróunarteymi Reykjavíkurborgar.
Tengill á Teams:
https://teams.microsoft.com/meet/3893375968863203?p=REO0hkEcWNvIPeh9Mg