Framtíðarsýn AGR er að leiða þróunina í átt að snjallari aðfangakeðjum um allan heim. En hvernig birtist sú sýn í daglegum innkaupum og vörustýringu?
Finnur og Elva hjá AGR kynna hvernig gervigreind í lausnum fyrirtækisins hjálpar notendum að greina gögn, sjá tækifæri og ákveða næstu skref. Sýnd verða hagnýt dæmi um hvernig viðskiptavinir nýta lausnirnar, meðal annars til að spyrja spurninga um eigin gögn á mannamáli og fá svör sem styðja við ákvarðanatöku.
Að lokum verður horft til framtíðar, þar sem aukin tenging milli fyrirtækja og birgja skapar tækifæri til að gera aðfangakeðjuna í heild snjallari.
Kynningin tekur um 35 mínútur og að henni lokinni verður tími fyrir spurningar og umræður."
Vinsamlega athugið að gengið inn hjá Íslandsbanka í Smáralind.