Working with the Technology of the Body: Integrating Physical Intelligence into Coaching Practice

Faghópur markþjálfunar vekur athygli á vinnustofu á vegum ICF Iceland félagi markþjálfa á Íslandi.

Skráning hér 

Þann 14. mars kemur Dr. Claire Dale, PCC markþjálfi og stofnandi The Physical Intelligence® Institute, til Íslands og leiðir hálfs dags verklega vinnustofu um hvernig líkaminn getur orðið eitt áhrifamesta verkfærið í þegar unnið er með fólki að árangri og vexti.

 

Claire hefur yfir 20 ára reynslu á sviði leiðtogaþjálfunar og hefur starfað með alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Google, Shell og JP Morgan. Hún kemur nú í fyrsta sinn til Íslands.

 

Á vinnustofunni skoðum við hvernig hægt er að vinna markvisst með:

• sjálfstraust og innra öryggi
• mótstöðu og óvissu
• ákvarðanatöku og skýrleika
• og hvernig festa má nýja hegðun í sessi

Rannsóknir í embodied neuroscience sýna að breytingar verða dýpri og varanlegri þegar líkaminn er hluti af vinnunni en hún einskorðast ekki bara við hugsun og greiningu.

 

Þú færð hagnýt verkfæri sem þú getur notað strax í þínum samtölum, hvort sem þau fela í sér markþjálfun eða annars konar vinnu með fólki.

Skráning hér

 

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Linkur á fund hér

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Verkefni stjórnenda og starfsfólks sem starfa við mannauðsstjórnun eru mjög fjölbreytt eftir stærð og gerð þeirra fyrirtækja og stofnana sem starfað er í. Mjög stór hluti af verkefnum mannauðs er stuðningur af ýmsu tagi við stjórnendur og starfsfólk.

Oft þarf að meta eftir eðli samtala hvort viðkomandi aðili þarf að fá ráðleggingu, hlustun eða leiðbeiningar. Til þess að geta komist sem best á móts við þarfir stjórnenda þarf mannauðsaðilinn að geta hlustað og skilið hvað verið er að biðja um.

Eitt af aðal einkennum markþjálfunar er að hlusta og heyra hvað er sagt og ekki bara á þau orð sem sögð eru, heldur líka þau sem ekki eru sögð og hvernig líkamstjáning er notuð. Kynnt verður 3 stig hlustunar og farið verður yfir þann ávinning sem stjórnendur og þeir sem starfa í mannauðsmálefni geta fengið með því nýta sér hlustun á öllum þremur stigunum.

 

Fyrirlesari:

Anna María hefur innsýn í fjölbreytt fyrirtækjaumhverfi bæði hérlendis og erlendis, þar sem hún hefur starfað sem mannauðsstjóri í yfir 20 ár hjá fyrirtækjum í ýmsum greinum atvinnulífsins, rekið eigið fyrirtæki með stjórnendaþjálfun, námskeið og fyrirlestra m.a. tengda verkfærum markþjálfunar. Hún starfar nú sem mannauðsráðgjafi hjá 2.stærsta sveitarfélagi landsins Kópavogsbæ, þar sem hún sinnir m.a. Verkefnastjórnun í innleiðingum ásamt ráðgjöf og aðstoð stjórnenda við ýmis mannauðsmálefni. Frá því Anna María lærði Markþjálfun árið 2006 hefur hún nýtt sér aðferðafræðina í starfi, er með virka PCC vottun frá alþjóðasamtökum ICF. Hún er jafnframt ein af stofnendum ICF Ísland, þar sem Anna María gegndi m.a. bæði varamennsku og formennsku félagsins ásamt því að hafa setið í stjórn ICF Norge. Anna María er með executive MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Áhugamál Önnu Maríu er almenn útivist og þá helst: fjallgöngur, fjallahjól, blómarækt, fluguveiði og skíði.

Fundarstaður og tími: Bæjarskrifstofur Kópavogs Digranesvegi 1. Fimmtudaginn 12.mars Kl.9:00-10:00, fundarherbergi Holtið og á Teams.

Linkur á teams fund hér

Að byggja upp sálrænt öryggi sem virkar

Sálrænt öryggi er hugtak sem flestir stjórnendur þekkja, vita að skiptir máli til að ná árangri en fáir geta svarað hvernig þau vinna með það í sínum teymum.  Þessi fundur snýst um hagnýta nálgun á sálrænu öryggi og fjallar ekki aðeins um hvað það er heldur einnig hvernig stjórnendur geta unnið markvisst að því að byggja það upp og viðhalda í teymum. 

Uppbygging fundarins:

 
Jarðvegurinn - Sálrænt öryggi á mannamáli
Kristrún opnar fundinn með stuttum inngangi byggðu á rannsóknum og hennar reynslu af teymisvinnu úr ólíkum geirum. Við köfum undir yfirborðið og skoðum hvað er að gerast innra með fólki þegar við upplifum ekki öryggi og lyftum upp allri þeirri ósýnilegu sóun sem verður í kjölfarið.
 
Samtölin sem skipta máli - Panel með ólíkum stjórnendum
Síðan setjumst við niður með leiðtogum úr ólíkum geirum og sækjum reynslu og raunveruleg dæmi. Hvað virkar og hvað virkar ekki.  Við með okkur þau Jóhannes Þorleiksson, framkvæmdastjóra Upplýsingagreindar og tækni hjá Landsneti, Gunni Líf Gunnarsdóttur sem er fyrirlesari, kennir á Bifröst og fyrrverandi framkvæmdastjóri mannauðsmála og reksturs hjá Samkaup,  og Ásta Þöll deildarstjóri vefdeildar á Þjónustu og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. 
 
Hér förum við beint inn í óþægileg samtöl og spyrjum m.a.:
  • Hvaða merki hefur þú séð frá þínum teymum um að sálrænt öryggi sé lágt?
  • Nefndu dæmi um það sem hefur raunverulega virkað til að byggja upp öryggi?
  • Hvaða mistök hefurðu gert sem þú myndir ekki endurtaka?
 
Inn í okkar raunveruleika - Samræður og næstu skref
Að lokum tökum við öll samtalið og speglum inn í okkar eigin raunveruleika. Skoðum okkar næstu skref og hvað okkur vantar til þess að þora inn í þau óþægilegu samtöl.

 

Hvað tekurðu með þér?
✓ Betri skilning á hvernig lítið sálrænt öryggi birtist í þínu teymi
✓ Raunveruleg dæmi frá öðrum leiðtogum
✓ Fyrstu skrefin sem þú getur stigið - strax í dag
✓ Trú á það að þetta er eitthvað sem við getum raunverulega breytt
 
Við búumst við líflegum, heiðarlegum og óþægilegum umræðum um efni sem við fáum sjaldnast að ræða upphátt.
Hlökkum til að sjá ykkur! 
 
 
Kristrún Anna Konráðsdóttir leiðir viðburðinn í samvinnu við faghóp um leiðtogafærni hjá Stjórnvísi. 
Hún er teymisþjálfi sem brennur fyrir því að styðja teymi í að taka óþægileg samtöl.
Kristrún er vottaður teymisþjálfi, og PCC vottaður markþjálfi. Hún er Fearless Organization Practitioner og sérhæfir sig í sálrænu öryggi teyma. Hún er einnig Inner Development Goals Ambassador og er heilluð af því hvernig allar breytingar byrja innra með okkur. kristrunanna.com
 
Vinnustofan verður haldin í stofu 217 í Opna Háskólanum í HR sem hefur aðsetur á 2. hæð í Mars álmu Háskólans í Reykjavík.
 
Opni háskólinn hefur mikla reynslu af skapandi námskeiðishaldi fyrir þá sem vilja efla sig í starfi og bjóða upp á frábært umhverfi og aðstöðu fyrir slíka vinnu og við erum þakklát fyrir samstarfið við þau og að geta tekið á móti ykkur þar. 
 

Eldri viðburðir

Að missa klefann

Að missa klefann

Hvað geta stjórnendur gert til að tryggja hann?

Það er margt líkt með fótboltaliði og fyrirtæki. Á báðum stöðum þarf að velja leikmenn í liðið og þar með setja aðra til hliðar, það er þörf á hvatningu, halda þarf uppi aga, byggja upp góða liðsheild, erfiðar ákvarðanir eru teknar, gæta þarf að orðspori og þannig mætti halda áfram. Hvaða lærdóm geta fyrirtækin dregið af aðferðafræðinni í heimi fótboltans?

 

Fyrirlesari: Ólafur Helgi Kristjánsson er best þekktur fyrir störf sín sem þjálfari knattspyrnuliða í meistaraflokki karla, hér heima og í Danmörku og nú síðast sem aðstoðarþjálfari kvennalandliðsins í fótbolta. Hann er vel menntaður þjálfari með UEFA Pro Licence réttindi.

 

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Lýsis að Fiskislóð 5-9 en að auki verður honum streymt.

Linkur á streymi hér

Frestað til 4 mars - Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Frestað 

Linkur á fund hér

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Nánari upplýsingar síðar.

Fyrirlesari:

Anna María hefur innsýn í fjölbreytt fyrirtækjaumhverfi bæði hérlendis og erlendis, þar sem hún hefur starfað sem mannauðsstjóri í yfir 20 ár hjá fyrirtækjum í ýmsum greinum atvinnulífsins, rekið eigið fyrirtæki með stjórnendaþjálfun, námskeið og fyrirlestra m.a. tengda verkfærum markþjálfunar. Hún starfar nú sem mannauðsráðgjafi hjá 2.stærsta sveitarfélagi landsins Kópavogsbæ, þar sem hún sinnir m.a. Verkefnastjórnun í innleiðingum ásamt ráðgjöf og aðstoð stjórnenda við ýmis mannauðsmálefni. Frá því Anna María lærði Markþjálfun árið 2006 hefur hún nýtt sér aðferðafræðina í starfi, er með virka PCC vottun frá alþjóðasamtökum ICF. Hún er jafnframt ein af stofnendum ICF Ísland, þar sem Anna María gegndi m.a. bæði varamennsku og formennsku félagsins ásamt því að hafa setið í stjórn ICF Norge. Anna María er með executive MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Áhugamál Önnu Maríu er almenn útivist og þá helst: fjallgöngur, fjallahjól, blómarækt, fluguveiði og skíði.

Linkur á teams fund hér

Hvernig á að stofna og markaðssetja eigin rekstur

Faghópur markþjálfunar vekur athygli á viðburði ICF Iceland sem kynna hvernig á að stofna og markaðssetja eigin rekstur.

 

Lella Erludóttir og Valdís Hrönn Berg fara yfir það hvernig eigi að stofna og markaðssetja eigin rekstur og svara spurningum.

Enginn aðgangseyrir fyrir félagsmenn ICF Iceland.

Aðrir velkomnir en greiða 4.900 kr.

 

Allar nánari upplýsingar og skráning

https://www.icficeland.is/events/hvernig-a-ad-stofna-og-markadssetja-eigin-rekstur-1

Verðlaunahafi Nordic Baltic Awards kynna innleiðingu markþjálfunarmenningar

Faghópur markþjálfunar vekur athygli á viðburði ICF Iceland sem kynnir verðlaunahafa Nordic Baltic Awards ICF.

Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir MCC og stjórnendamarkþjálfi vinningshafi Nordic Baltic Coaching Awards og Hulda Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri DK hugbúnaðar kynna vegferðina frá hugmynd til verðlauna.

Ásta og Hulda kynna vegferð DK hugbúnaðar við innleiðingu á markþjálfunarmenningu innan fyrirtækisins. Verkefnið hlaut Emerging Organization heiðursverðlaun á Nordic Baltic Awards síðastliðið vor. Heiðursverðlaunin eru veitt fyrir fyrsta flokks markþjálfunarverkefni innan skipulagsheilda.

Skráning á https://www.icficeland.is/events/asta-verdlaunahafi-nordic-baltic-awards-kynnir-vegferd-sina/form

Nánari upplýsingarog skráning:

https://www.icficeland.is/events/asta-verdlaunahafi-nordic-baltic-awards-kynnir-vegferd-sina

Stjórnandi í fyrsta sinn: raunstaða, áskoranir og tækifæri

Það að verða stjórnandi í fyrsta sinn eru ákveðin tímamót og margt getur komið á óvart. Nýtt hlutverk, nýjar væntingar og ný ábyrgð geta vakið eftirvæntingu, tilhlökkun, efa og óöryggi.
 
Nú er það í þínum verkahring að leiða fólk, taka ákvarðanir, hafa yfirsýn og halda utan um bæði verkefni, fólk og samskipti. Á sama tíma ert þú að læra hvað felst í þessu nýja hlutverki og hvernig þú átt að fóta þig í því. Í raun er hlutverk nýrra stjórnenda fullt af mótsögnum: þú átt að vera leiðtogi en ert sjálf/ur að læra. Þú átt að vera styðjandi en þarft sjálf/ur stuðning. Þú átt að halda ró þinni en finnur kannski fyrir ótta og efa.
 
Þessi vegferð getur verið ótrúlega krefjandi. Þér er treyst fyrir hlutverki, verkefnum og ábyrgð og færð tækifæri til að þróast og vaxa í starfi, en þér er ekki endilega kennt hvað stjórnendahlutverkið felur í sér og hvernig best er að nálgast það.
 
Í þessu erindi munum við fjalla um og skoða hvað það raunverulega þýðir að stíga inn í stjórnendahlutverk í fyrsta sinn og hvernig við getum tekist á við þær áskoranir og þau tækifæri sem hlutverkið felur í sér af festu, styrk, alúð og mildi.

 

Fundurinn verður haldinn á zoom - sjá hlekk hér fyrir neðan

Meeting ID: 874 6306 1748
Passcode: 571594
 

 

 

Helgi Guðmundsson hefur ástríðu fyrir hjálpa stjórnendum og vinnustöðum að skapa umgjörð og menningu þar sem fólk og teymi geta þrifist og mætt til leiks með sitt besta. Helgi er fyrirtækjaþjálfi með bakgrunn í vinnu- og fyrirtækjasálfræði með mikla reynslu af agile- og lean nálgunum á stjórnun, þróun öflugra teyma og vöruþróun.
 
Lella Erludóttir elskar að gera vinnustaði mannlegri og styðja við fólk að lokka fram sitt sannasta og besta sjálf í starfi. Lella er PCC markþjálfi og hefur fjölbreyttan bakgrunn og reynslu frá markaðsmálum, mannauðsstjórn, strategíustarfi og að styðja við leiðtoga og stjórnendur í viðskiptalífinu.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?