Fræðslumál í fyrirtækjum og stofnunum.

Fræðslumál í fyrirtækjum og stofnunum.

Metnaður verður lagður í að bjóða upp á fyrirlestra sem veita aukna þekkingu, færni og innsæi í fræðslu hjá fyrirtækjum á Íslandi sem og erlendis.
Fyrir hverja er þessi hópur? Hann er fyrir alla sem hafa áhuga á eða koma að fræðslumálum innan vinnustaða. Það er óþarfi að allir séu að finna upp hjólið þegar kemur að áskorunum varðandi fræðslumál og við getum lært svo mikið af hvort öðru þegar við deilum þekkingu.

Viðburðir á næstunni

Notkun gervigreindar við fræðslu

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
 
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir og sýna hvernig hún styðst við gervigreind við gerð skriflegrar fræðslu, fræðslumyndbanda, texta á fræðslumyndböndum og þýðingu á þeim. Því næst segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til allskyns annað stafrænt kennsluefni á einfaldan hátt.  *Athugið að innihald erindisins hefur breyst frá því það var upphaflega auglýst*
 
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
 
Viðburðurinn fer fram á Teams.

 

Hlekkur á Teamsviðburð

Fréttir

Nýkjörin stjórn faghóps um fræðslumál í fyrirtækjum og stofnunum.

Skráning í faghópinn. Mikill fjöldi félaga sýndi áhuga á að setjast í stjórn faghóps um fræðslu, allt afburðarfólk. Úr vöndu var að ráða við að móta stjórn hópsins.

Úr varð fjórtán manna stjórn, sem endurspeglar vel fjölbreytileika þeirra sem áhuga sýndu. Fyrsti fundur nýrrar stjórnar var á Kringlukránni í dag þar sem félagar kynntu sig og farið var yfir ábyrgð og hlutverk stjórna faghópa Stjórnvísi. Stjórnin mun hittast fljótlega aftur til að móta hugsanlegar áherslur hópsins.

Stjórnin kaus Evu Karen Þórðardóttur hjá Símanum sem formann og Elínu Hlíf Helgadóttur sem varaformann. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig í faghópinn með því að smella hér.

Stjórn faghópsins skipa: Elín Hlíf Helgadóttir HD, Eva Karen Þórðardóttir Síminn, Guðjón Atlason Isavia KEF, Halla Dóra Sigurgeirsdóttir RioTinto, Haukur Gunnarsson Icelandair, Hlynur Þór Þorleifsson Bláa Lónið, Hólmfríður Steinþórsdóttir Reykjavíkurborg, Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir Reykjavíkurborg, Jóna Björg Magnúsdóttir Seðlabanki Íslands, Katrín Sigurðardóttir Travel Connect, Lára María Valgerðardóttir Sjúkraliðafélag Íslands, Lind Aðalsteinsdóttir Vegagerðin, María Baldursdóttir Mennta-og lýðheilsustöð og Sædís Guðný Hilmarsdóttir LS Retail.

Stjórn

Eva Karen Þórðardóttir
Starfsmannastjóri -  Formaður - Síminn
Guðjón Atlason
Annað -  Stjórnandi - Háskóli Íslands
Halla Dóra Sigurgeirsdóttir
Fræðslustjóri -  Stjórnandi - Rio tinto
Haukur Gunnarsson
Deildarstjóri -  Stjórnandi - Icelandair
Hlynur Þór Þorleifsson
Sérfræðingur -  Stjórnandi - Terra umhverfisþjónusta
Hólmfríður Steinþórsdóttir
Mannauðssérfræðingur -  Stjórnandi - Reykjavíkurborg
Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir
Háskólanemi -  Stjórnandi - Landspítali
Jóna Björg
Gæðastjóri -  Stjórnandi - Seðlabanki Íslands
Katrín Sigurðardóttir
Mannauðssérfræðingur -  Stjórnandi - Travel Connect
Lára María Valgerðardóttir
Verkefnastjóri -  Stjórnandi - Sjúkraliðafélag Íslands
María Baldursdóttir
Verkefnastjóri -  Stjórnandi - Hafnarfjarðarbær
Sædís Guðný Hilmarsdóttir
Annað -  Stjórnandi - LS Retail
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?