Notkun gervigreindar við fræðslu

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
 
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir og sýna hvernig hún styðst við gervigreind við gerð skriflegrar fræðslu, fræðslumyndbanda, texta á fræðslumyndböndum og þýðingu á þeim. Því næst segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til allskyns annað stafrænt kennsluefni á einfaldan hátt.  *Athugið að innihald erindisins hefur breyst frá því það var upphaflega auglýst*
 
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
 
Viðburðurinn fer fram á Teams.

 

Hlekkur á Teamsviðburð

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Margfaldaðu afköstin með hjálp gervigreindar

Hvað ef þú gætir falið gervigreind verkefni, tengt hana við gögnin þín og látið hana aðstoða þig við vinnuna frá upphafi til enda?

Á þessum hagnýta og líflega fyrirlestri sýnir Stefán Atli Rúnarsson hvernig gervigreind er að þróast úr spjallmenni sem svarar spurningum yfir í stafrænan samstarfsmann sem getur unnið verkefni í mörgum skrefum.

Með lifandi sýnikennslu og dæmum úr daglegu starfi verður farið yfir hvernig má breyta tölvupóstum í forgangsraðað verkefnayfirlit og svör, vinna úr skjölum og töflum, túlka myndir og undirbúa fundi. Einnig verður sýnt hvernig tengingar við tölvupóst, dagatal og önnur verkfæri geta gert gervigreind að enn öflugri aðstoðarmanni.

Þátttakendur fá innsýn í gervigreindarfulltrúa sem geta framkvæmt verkefni í vöfrum og hugbúnaði og sinnt eftirfylgni milli samtala. Jafnframt verður fjallað um skýr fyrirmæli, aðgang að gögnum og hvenær mannlegt mat og samþykki þurfa að koma til. Markmiðið er að hver þátttakandi fari heim með skýra hugmynd að einu endurteknu verkefni sem hægt er að byrja að einfalda með gervigreind strax næsta dag.

Fyrirlesturinn hentar stjórnendum, verkefnastjórum og öllum þeim sem vilja spara tíma, einfalda vinnuna og nýta gervigreind markvissar í sínu starfi.

Erindið er haldið í Innvoation House, Eiðistorgi á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 12. nóvember 2026, en einnig er í boði að mæta á streymi í gegnum fjarfund á Teams (sjá tengil hér neðst). Til að finna salinn er gengið inn á Eiðistorg við hliðina á Hagkaup, þaðan upp á 2.hæð. Beint á móti Bókasafni Seltjarnarness er opin hurð upp á 3.hæð og þar verður fundurinn.


Um fyrirlesarann
Stefán Atli Rúnarsson er fyrirlesari og ráðgjafi sem sérhæfir sig í hagnýtri notkun gervigreindar. Hann hefur kennt þúsundum Íslendinga að nýta gervigreind og haldið námskeið og fyrirlestra fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki og stofnanir. Stefán er menntaður viðskiptafræðingur með bakgrunn í markaðsmálum, tækni og miðlun. Hann leggur sérstaka áherslu á að gera gervigreind aðgengilega, skemmtilega og umfram allt gagnlega í daglegu starfi.

Nánari upplýsingar: https://chatgptnamskeid.is

Tengill á fjarfund/streymi:

https://teams.microsoft.com/meet/3571089139419502?p=ildKftOVRrIQTWG1MV

Royal Duch Shell Sviðsmyndagerð: Hvernig er nægt að læra af framtíðinni

Á málstofunni verður farið yfir svokallaðar “future backward” sviðsmyndagerð. Farið verður yfir tvær slíkar greinar skrifaðar af höfundi, aðferðafræðina, uppbygginguna og afraskturinn. Önnur þessarra greina eru um Íslands sem var skrifuð 2000 og spáði fyrir um hrunið 2008 og hin um Kuwait og birtist í Journal of Sustainabitliy 2023.

Vefslóðin er hér

Um Höfundinn: Dr. Andri Ottesen er bústettur í Kúvæt þar sem hann var yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Tebyan Group sem eru í eigu Konungsfjölskyldunnar. Hann var áður aðstoðardeildarstjóri Stjórnunardeildar Ástralska Háskólans í Kúwait og þar áður framkvæmdastjóri Carbon Recycling International, deildarstjóri í skrifofu opinberra fjármála hjá Fjármála og efnahagsráðuneyti og framkvæmdarstjóri Klak/Startup Iceland. Hann er með doktorsgráðu frá International School of Management í Frakklandi, með Meistargráðu frá Ottaru viðskiptaskólanum í Japan og MBA frá ríkisskóla Kaliforníufylkis.

Eldri viðburðir

Gervigreind í framkvæmd: Hvar liggur raunverulega virðið?

Við höfum fengið góðan fyrirlesara til að fjalla um hagnýtingu AI, Gísla Ragnar Guðmundsson hjá Almannarómi og leiðir New Nordics AI á Íslandi.
Á málstofunni verður farið yfir þróun gervigreindar síðustu mánuði, með áherslu á hvernig tæknin er að færast frá tilraunum yfir í raunverulega hagnýtingu. Fjallað verður um þróun erlendis, netöryggi og hvar helstu tækifærin til verðmætasköpunar liggja. Einnig verður stuttlega sagt frá starfi New Nordics AI og Almannaróms.

Vefslóðin á fundinn er hér

Öld ímyndunaraflsins – frábær viðburður með Berg Ebba

Bergur Ebbi fjallar um bók sína Öld ímyndunaraflsins. Um bókina segir í tilkynningu útgefanda: "Öld ímyndunaraflsins er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Gervigreind er mál málanna í dag - geysivíðtækt efni sem Bergur Ebbi skrifar um af eldmóði, skynsemi og þekkingu"

Eigum góða morgunstund með Berg Ebba 8 september nk. Vefslóðin á fundinn er hér

Alþjóðlegt málþing um framtíðarsýn á heimsvísu: Innsýn í innleiðingu gervigreindar í háskólamenntun í heimi örra umbreytinga

Gervigreind er þegar farin að umbreyta háskólastigi menntunar á ótrúlega hröðum hraða og hefur áhrif á nám og kennslu, inntöku nemenda, stjórnsýslu, akademísk kerfi, rannsóknir og stjórnarhætti háskóla. Samt eru margar mikilvægar spurningar enn ósvaraðar: Hversu mikið mun gervigreind raska hefðbundnu háskólalíkani? Hvaða áþreifanlega ávinning getur hún fært námi og upplifun nemenda? Hvaða siðferðislegu viðmið, stjórnunarlíkön og varúðarreglur þarf til að tryggja ábyrga innleiðingu?

Þetta málþing mun leiða saman framtíðarfræðinga, fræðimenn, sérfræðinga og stefnumótandi leiðtoga í þverfaglegri umræðu um hvernig framtíðarsýn og framsýni geti stutt háskóla sem traustar stofnanir við að takast á við tækifæri, áhættu og langtímaáhrif gervigreindar.

Meðal umfjöllunarefna verða:

  • Innleiðing gervigreindar og þróun starfsemi háskóla
    • Nýsköpun í gervigreind og hönnun fyrir betra nám
    • Siðfræði, stjórnarhættir og ábyrg tæknileg þróun
    • Hugræn leti og leiðir til að draga úr henni í háskólamenntun
    • Alþjóðlegar þróunarlínur í háskólamálum og spurningin um hvort „gervigreind gleypi háskólana“
    • Endurmat á hæfnimati á tímum gervigreindar
    • Skapandi og forspárbundin gervigreind fyrir gæðavottun stofnana og stöðugar umbætur

Meðal fyrirlesara eru fulltrúar frá Prince Mohammad Bin Fahd University, World Futures Studies Federation, ESB Business School, National University of Singapore / Pharos Institute og University of Southern Queensland.

You can join the symposium via Microsoft Teams by clicking on this link.

Að rýna í græn umskipti og ólíkar framtíðir

Við fáum gestafyrirlesara til að fjalla um skýrsluna Græn umskipti og framtíðaráskoranir: sviðsmyndir til 2040, sem unnin var fyrir framtíðarnefnd Alþingis. Skýrslan er aðgengileg á vef Framtíðarseturs: framtidarsetur.is.

Hér er vefslóðin á fundinn: https://teams.microsoft.com/meet/366291188356666?p=RVhmezZiWVP1tUnp2y

Eyþór Eðvarðsson er stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Hann er virkur í baráttuhópnum París 1,5, sem vinnur að því að Ísland leggi sitt af mörkum í loftslagsmálum. Hann var jafnframt einn af stofnendum Votlendissjóðsins og fyrsti stjórnarformaður hans.

Eyþór hefur skrifað fjölda greina um loftslagsmál, meðal annars um hvernig önnur ríki nálgast græn umskipti og hvað Ísland getur lært af þeim. Í erindinu mun hann fara yfir lykilatriði skýrslunnar og tengja þau við þróunina í Evrópu. Þar verður meðal annars fjallað um grænu umskiptin í Danmörk, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi og Þýskalandi.

Eyþór fær annars lausan tauminn.

World Futures Day 2026 Taktu þátt í samtali um framtíð mannkyns – 1. mars

Þann 1. mars verður haldinn World Futures Day í 13. sinn. Um er að ræða 24 tíma netsamtal þar sem fólk um allan heim ræðir mögulega framtíð mannkyns.

Viðburðurinn hefst kl. 12 á hádegi að nýsjálenskum tíma og lýkur 24 klukkustundum síðar á Hawaii.

Athugið þá er klukkan 23:00 að kveldi 28 febrúar hér heima 😊

Hægt er að taka þátt hvenær sem er á meðan á viðburðinum stendur.

Framtíðarfræðingar og aðrir hugsuðir ræða meðal annars:

  • Hvernig núverandi þróun gæti mótað framtíðina
  • Nýjar uppfinningar og tækniframfarir
  • Mismunandi framtíðarsviðsmyndir og áhrif þeirra

Samtalið er opið og óformlegt. Engin föst dagskrá er fyrir hendi og þátttakendur geta komið og farið að vild. Chatham House-reglan gildir, sem þýðir að ekki má rekja ummæli til einstaklinga.

Að viðburðinum standa The Millennium Project ásamt fimm alþjóðlegum félögum á sviði framtíðarfræða..

Í ár verður Vint Cerf, einn af frumkvöðlum internetsins, meðal þátttakenda.

Á fyrri árum hafa umræðurnar til dæmis snúist um:

  • Gervigreind
  • Loftslagsbreytingar
  • Framtíð vinnunnar
  • Lýðræði framtíðarinnar
  • Líf í geimnum

Hver veit hvaða spennandi hugmyndir verða ræddar í ár?

Athugið: Allir þurfa að skrá sig sérstaklega og ekki má deila fundartenglinum með öðrum.

https://us02web.zoom.us/meeting/register/y2IYg5T2SZiTojaXo_x94Q#/registration

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?