Árangursrík fræðsla

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum býður til viðburðar hjá Ásum þar sem Eva Karen Þórðardóttir, fræðslustjóri Ása, fjallar um árangursríka fræðslu og það sem hefur reynst vel í fræðslustarfi fyrirtækisins.

Að erindinu loknu verður opnað fyrir spurningar og samtal þátttakenda. Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að skiptast á reynslu og mynda tengsl við aðra sem sinna fræðslu og starfsþróun.

Hægt verður að mæta í húsnæði Ása að Ármúla 25 eða fylgjast með viðburðinum á Teams.

Hlekkur: Viðburður á Teams

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Notkun gervigreindar við fræðslu

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
 
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir og sýna hvernig hún styðst við gervigreind við gerð skriflegrar fræðslu, fræðslumyndbanda, texta á fræðslumyndböndum og þýðingu á þeim. Því næst segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til allskyns annað stafrænt kennsluefni á einfaldan hátt.  *Athugið að innihald erindisins hefur breyst frá því það var upphaflega auglýst*
 
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
 
Viðburðurinn fer fram á Teams.

 

Hlekkur á Teamsviðburð

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?