Nýr faghópur hefur verið stofnaður um almannatengsl og samskiptastjórnun og kom ný stjórn saman í hádeginu í dag. Erla Björg Eyjólfsdóttir stofnandi faghóps var kosin formaður með einróma samþykki og stuðningi fundarins.
Stjórn faghópsins hvetur alla áhugasama til að skrá sig í faghópinn en það er gert með því að smella hér. Þar er jafnframt að finna upplýsingar um markmið og tilgang þessa nýja faghóps. Stjórnin stefnir að því að halda sinn fyrsta fund í haust og kynna til leiks það sem er framundan á komandi starfsári.
Stjórn þessa nýja öfluga faghóps skipa: Erla Björg Eyjólfsdóttir formaður, Andrea Guðmundsdóttir Háskólinn á Bifröst, Ásta Sigrún Magnúsdóttir Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir Reykjavíkurborg, Guðmundur Heiðar Helgason Strætó BS, Gunnar Hörður Garðarsson samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra, Gunnar Kristinn Sigurðsson KPMG, Gunnlaugur Bragi Björnsson Viðskiptaráð Íslands, Heiða Ingimarsdóttir Múlaþing og Ingvar Örn Ingvarsson Cohn & Wolfe á Íslandi.