Sextán áhugaverðir aðilar sýndu faghópi um málefni erlendra starfsmanna áhuga, allt afburðarfólk. Úr vöndu var að ráða við að móta fyrstu stjórn hópsins. Úr varð tíu manna stjórn, sem endurspeglar vel fjölbreytileika þeirra vinnustaða sem áhuga sýndu. Fyrsti fundur hópsins var á Nauthól í dag þar sem farið var yfir hugsanlegar áherslur hópsins á næstunni. Stjórnin stefnir á að boða til fundar í faghópnum um miðjan maí. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig í faghópinn með því að smella hér: https://www.stjornvisi.is/is/faghopar/malefni-erlendra-starfsmanna
Stjórn faghópsins skipa:
Alma Sigurðardóttir verkefnastjóri hjá Ístak, Björg Þorkelsdóttir lögfræðingur Sjúkratrygginga, Ester Gústavsdóttir mannauðssérfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík, Gísli Níles Einarsson sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS, Irina S. Ogurtsova mannauðsráðgjafi í málefnum erlendra starfsmanna hjá Rreykjavíkurborg, Joanna Marcinkows sérfræðingur í málefnum innflytjenda hjá Reykjavíkurborg, Kári Kristinsson Associate Professor í Háskóla Íslands, María Rún Hafliðadóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs FoodCo hf, Thelma Sveinsdóttir verkefnastjóri mannauðssviðs Landspítala og Vilborg Grétarsdóttir mannauðsstjóri Heilbrigðisráðuneytisins