Fjölmenni var í morgun í Fjármála-og efnahagsráðuneytinu á fundi um stafræna vegferð á vegum faghóps um þjónustu-og markaðsstjórnun. Það var Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir verkefnastjóri sem fór yfir helstu verkefni, aðferðafræði og áskoranir. Með tækni er í dag hægt að gera hluti sem okkur áður óraði ekki fyrir. Krafa hjá almenningi er sú að afgreiða sig sjálft á netinu. Bankar, tryggingarfélag og sprotafyrirtæki eru á fullu að bjóða stafræna þjónustu. Mikilvægt er að tryggja að það sem gert er á netinu sé jafn öruggt og venjulega afgreiðslu. Í dag eru rafræn skilríki og Íslykillinn. 83% starfsmanna vilja geta notað stafræna þjónustu og þá er verk að vinna. Við Íslendingar erum í 43 sæti þjóða hvað varðar stafræna opinbera þjónustu. Ríkisstjórnin veit að við höfum dregist aftur úr og hefur sett sér stefnuyfirlýsingar. „Að Ísland búi sig undir að mæta þeim áskournum og nýta þau tækifæri sem felast í sífellt örari tæknibreytingum“ o.fl. Verkefnið er umfangsmikið og ástandið mismunandi. Við erum að koma okkur úr fortíð yfir í nútíð. Hlutverk verkefnastofu er vel skilgreint og er notandinn ávallt í forgrunni. Stofnanirnar eru 160 og starfsmenn eru 9 í verkefnastofu. Skilgreint er hvaða vandamál er nákvæmlega verið að leysa. Það er gert með því að horfa á notandann, ryðja úr huga öllu sem er í veginum, virkja hugmyndaflugið og setja allar hugmyndir fram á borðið. Varðandi vinnustofur að greina ferlið, þá eru þar sérfræðingar, notendur, lögfræðingar, tölvunarfræðingar. Mikilvægt er að hafa lögfræðinginn nálægt sér. Lausnir eru búnar til sem þjóna notandanum. Tekin eru viðtöl og gerðar kannanir til að sjá hvað er verið að leysa. Í dag þurfa notendur að fara á marga staði sem er kaótískt. Notandinn treystir því að með því að nota rafræna þjónustu þá sé allt á sama stað. Nú er verið að vinna í 3 verkefnum til 2010. Það fyrsta er miðlæg þjónustugátt, allir geti fengið allar upplýsingar um sig á einum stað. Þar er pósthólf sem hefur að geyma allt sem kemur frá hinu opinbera. En forsendan fyrir því að svo sé hægt er að tengja alla inn á þessa sömu síðu. Áskorunin í dag er að finna leið til að tengja þetta allt saman. Mikilvægt er að allir fari inn á Island.is og kíki í pósthólfið sitt. Sú vefsíða hefur verið til í 10 ár. Verið er að endurhanna þennan vef bæði útlitslega og í innihaldi. Stefnt er að því að ekki þurfi aftur og aftur að slá inn sömu upplýsingum í kerfið. Búið er að gera samstarfssamning við Strauminn sem er þróaður af Eistum og Finnum. Á www.stafraent.island.is er hægt að fylgjast með á næstunni hvað er að gerast og voru allir hvattir til að fylgjast þar með.
Stafrænt Ísland - Úr fortíð yfir í nútíð
Um viðburðinn
Stafræn vegferð - Stafrænt Ísland
Verkefnastofan Stafrænt Ísland býður í heimsókn.
Á vegum Fjármála og efnahagsráðuneytisins er starfrækt verkefnastofan Stafrænt Ísland sem vinnur að ýmsum verkefnum sem snúa að því að gera ferla stafræna hjá hinu opinbera.
Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir verkefnastjóri fer yfir helstu verkefni, aðferðafræði og áskoranir.
Staðsetning
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Arnarhvoli við Lindargötu
101 Reykjavík
Fleiri fréttir og pistlar
Stjórnvísi og Kjarkur ráðgjöf stóðu fyrir opnum morgunverðarfundi föstudaginn 16. október. Það voru stjórnendaráðgjafarnir Berglind Björk Hreinsdóttir og Harpa Þrastardóttir sem stigu á stokk og héldu fyrirlestra dagsins. Yfirskriftin var ,,Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagleg vinnubrögð og ferlar".
Í sífellt flóknari og hraðari heimi er mikilvægt að efla vinnuvernd og bæta vinnustaðamenningu. Fjallað var um hvernig stjórnendur geta tekist á við samdráttartíma af yfirvegun með skilvirkum ferlum og skýrri greiningu þar sem markviss samskipti og og umhyggja fyrir fólki eru rauði þráðurinn.
Nú býðst nýjum félögum 50% afsláttur af félagsgjöldum.
Vertu með í vetur!
Fyrir hönd The Millennium Project og Framtíðarseturs Íslands er þér boðið að taka þátt í alþjóðlegri rannsóknar – sem byggist á „Real-Time Delphi“-spurningakönnun – um efnið:
Almenn gervigreind (AGI) og samfélagsleg samheldni árið 2035
Í rannsókninni verður kannað hvernig auka megi líkurnar á því að almenn gervigreind (AGI) hvetji til samfélagslega samheldni fremur en að draga úr henni fyrir árið 2035.Þátttakendur fá niðurstöður rannsóknarinnar senda að henni lokinni. Takið þátt hér er vefslóðinn að spurningarvagninum, auk viðbótar texta um rannsóknina: accessing the questionnaire here.
You will receive the results of this study. You do not have to fill out the whole questionnaire on one visit. You are encouraged to come back to read other panelists’ comments, and edit your own at any time until the deadline of December 15, 2026. Register for the survey using a social account or email address. If you choose email, you will receive an access code. When returning, please make sure to log in with the exact same account you used to register. The demographic questions are only asked once; you will not see them again when you return.
All comments are anonymous; no attributions will be made. However, if you want a specific comment attributed to you in the final report, include the tag [please attribute] within your text. Do not type your name in the comment box.
The results will be used to create alternative scenarios that will be given to The Millennium Project Node Chairs and Co-chairs around the world as inputs to the national workshops on these issues. The strategies recommended by the workshops to address future AGI impacts on social coherence will be the subject of additional RTDelphi studies to assess their effectiveness. All phases of this research will be combined into a report that will be sent to you and distributed to political, business, academic, NGO, and UN leadership around the world.
This study assumes that a more coherent world has enough common narrative, that people feel they belong to the same humanity. This does not require cohesion, uniformity, and sameness; the elements of an opera are quite different, but make a coherent performance. Human interactions and perceptions of reality are affected by current AI and likely to be far more so by AGI by 2035. You are welcome to challenge these assumptions in the comment sections of the questionnaire. If you have any difficulties with this Real-Time Delphi questionnaire, contact the 4CF HalnyX team at support@halnyx.com.
Í dag hittust stjórnir faghópa Stjórnvísi í Hvalasafninu þar sem nýju 40 ára starfafmælisári var startað. Þema starfsársins er "Manneskjan í miðju umbreytinga - 40 ára og áfram". Farið var yfir ýmis atriði með stjórnendum faghópa starfið í vetur og gafst góður tími til að sameinast um viðburði, skerpt var á stefnu og gildum félagsins og boðið var upp á morgunkaffi í einstaklega fallegu og notalegu umhverfi. .
Krafturinn í stjórnum faghópanna er mikill eins og sjá má í meðfylgjandi excelskjali þar sem sjá má drög að fjölda viðburða.
Hlekkur á myndir. 18 íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli í dag. Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.
Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu í ár eru: Alvotech, Arion banki, Bera, Drangar, Eik fasteignafélag, Heimar, Icelandair Group, Íslandssjóðir, Kvika banki, Orkan IS, Reiknistofa bankanna, Reitir fasteignafélag, Sjóvá, Skagi, Stefnir, Styrkás, VÍS og Vörður tryggingar.
Þrjú fyrirtækjanna hljóta nafnbótina í fyrsta sinn, en það eru Bera, Drangar og Styrkás.
Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra vald- og ábyrgðarskipta meðal stjórna og stjórnenda. Fylgni við góða stjórnarhætti stuðlar að faglegri ákvarðanatöku, ábyrgari rekstri og bættri samskiptamenningu innan fyrirtækja. Þannig verður stjórnarstarf bæði skilvirkara og traustara í augum almennings. Liður í því er meðal annars útgáfa, og regluleg uppfærsla, leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem sjá má á www.leidbeiningar.is.
Fyrirmyndarfyrirtækin 18 eru afar fjölbreytt en þar má nefna fjármála- og tryggingastarfsemi, fasteignafélög, lyfjaframleiðslu, ferðaþjónustu, upplýsingatækni, eignaumsýslu, iðnað og eldsneytis- og orkusölu. Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.
Jón Hreiðar Sigurðsson, verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja, flutti inngangsorð um verkefniðog Marta Guðrún Blöndal, lögmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja flutti erindi. Viðurkenningarnar voru afhentar af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Fundarstjóri var Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.