Í dag hélt ný stjórn Stjórnvísi undirbúningsfund fyrir komandi starfsár 2026-2027. Full mæting var á fundinn sem haldinn var í Marel: Ásdís Sigurðardóttir, Anna Kristín Kristinsdóttir,Gunnhildur Arnardóttir, Héðinn Jónsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Matthías Ásgeirsson, Snorri Páll Sigurðsson, Sveinn Kjarval, Viktor Freyr Hjörleifsson, Tinna Jóhannsdóttir.
Á þessum fundi var m.a. tekið fyrir eftirfarandi:
Yfirferð áframtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum. Anna Kristín Kristinsdóttir formaður Stjórnvísi fór yfir samskiptareglur sjtórnar. Við ætlum að eiga opin, heiðarleg og uppbyggileg samskipti sem stuðla að trausti, virðingu og góðu samstarfi. Einnig var farið yfir framtíðarsýn, stefnu, gildi, meginmarkmið lög og siðareglur. Stefnumótun verður unnin á þessu ári . Í þeirri vinnu verður boðið fulltrúa frá hverjum faghópi. Nýlega voru lög félagsins yfirfarin og síðast breytt á aðalfundi 2025. Farið var yfir þær breytingar ásamt því að siðareglur voru kynntar.
Umræður urðu um hvar stjórn vill eiga samskipti og var ákveðið að halda áfram að eiga samræður í tölvupóstum og á Teams.
Áætlun og lykilmælikvarðar. Áætlun félagsins stenst og eru tekjur á áætlun. Áætlun félagsins er uppfærð reglulega allt árið og er aðgengileg stjórnarfólki í Sharepoint. Stjórn var hvött af framkvæmdastjóra félagsins til að fara inn á Sharepoint reglulega.
Farið var yfir aðganga stjórnar að Sharepoint, Teams, Facebook og skráning stjórnar í faghópinn „stjórn Stjórnvísi“.
Þema ársins 2026-2027 ákveðið og útfærsla. Nýkjörin stjórn kom með fjölda hugmynda að þema ársins. Fyrir 40 árum, hvað var að gerast þá? Niðurstaðan var sú að stjórn sammæltist um að þema ársins yrði „Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram“. Farið verður betur yfir útfærsluna í haust.
Varaformaður Stjórnvísi og ritari verða kosin á fyrsta stjórnarfundi í haust.
Fundartími og staðsetningu stjórnarfunda. Niðurstaðan var sú að stjórnarfundir verða haldnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl.11:00-12:00. Stjórn mun skiptast á að bjóða heim, ef eitthvað kemur upp á er alltaf hægt að halda fundi í Innovation House og á Teams. Ef áhugi er að bjóða í mat eða skoðunarferð um vinnustað gestgjafa er það gert um leið og fundi lýkur kl.12:00.
Þema Stjórnvísi 2026-2027: „Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram.“
Um viðburðinn
Undirbúningsfundur stjórnar Stjórnvísi 2026-2027 (lokaður fundur)
Undirbúningsfundur stjórnar fyrir starfsárið 2026-2027 verður haldinn fimmtudaginn 28.maí kl.10:00-13:00 í Marel. Meginmarkmiðið er að kynnast betur, skerpa á stefnu félagsins, mælaborði og ákveða þema starfsársins og áhersluverkefni í framhaldi af niðurstöðum nýjustu könnunar. Einnig verður farið yfir aðganga stjórnar að hinum ýmsu kerfum og ákveðinn fundartími stjórnar.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð.
Dagskrá fundar:
- Samskiptasáttmáli.
- Yfirferð á framtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum.
- Áætlun og lykilmælikvarðar.
- Farið yfir aðganga stjórnar að SharePoint, Teams, Facebook og að skrá sig í faghópinn “Stjórn Stjórnvísi”
- Þem a ársins ákveðið og útfærsla rædd.
- Kynning á fyrrum áhersuverkefnum stjórnar – áhersluverkefni starfsársins ákveðin.
- Tímasetningar ákveðnar á helstu viðburðum starfsársins.
- Settar niður hugmyndir að haustráðstefnu (fundarstjóra og fyrirlesurum) Stjórnunarverðlaunum (verða þau með sama móti?).
- Fundartími stjórnar og staðsetningar á fundum ákveðnar.
- Leggjum til fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 11:00-12:00 ýmist á Teams eða á vinnustöðum hvors annars. Val um að borða saman að loknum stjórnarfundi.
- Kosning varaformanns og ritara næsta starfsárs.
Fleiri fréttir og pistlar
Fundur hófst 12:30 og á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf:
Farið var yfir liðið starfsár, viðburði ársins og samvinnu með öðrum fahópum.
Næst kom að kosningu stjórnar.
Tveir stjórnarmeðlimir sóttust ekki eftir áframsetu, Auður Íris og Friðbjörn. Er þeim þakkað kærlega fyrir þeirra störf.
Nýr aðili sóttist eftir setu í stjórn, Andri Örn hjá Reykjanesbæ. Var hann sjálfkjörinn og boðinn velkominn í hópinn.
Að lokum voru önnur mál. Rætt var um fyrirkomulag stjórnar faghópsins, hugmyndir að frekari samvinnu og önnur mál.
Fundi slitið 13:00
Aðalfundur innkaupa-og vörustýringar fyrir starfsárið 2025-2026 var haldinn 6.maí síðastliðinn.
Starfsárið 2025-2026 var gert upp, farið yfir hugmyndir að viðburðum næsta árs og var kosið í nýja stjórn fyrir starfsárið 2026-2027 sem er eftirfarandi:
Eva Lillý Bjarndal Einarsdóttir N1
Faghópurinn þakkar öllum meðlimum fyrir þátttökuna starfsárinu sem var að ljúka og hlökkum til þess næsta! Viljum endilega hvetja þá sem hafa tillögur að erindum á dagskrá fyrir næsta vetur að vera í sambandi við formann stjórnar og varaformann.
Á aðalfundi hópsins, sem haldin var 7 maí, kom fram að faghópurinn hefur staðið fyrir alls 10 viðburðum, auk þess að benda á áhugaverðar fréttir af framtíðarmálum. Eins og gefur að skilja nær framtíðaráskoranir til alla þátta stjórnunar og reksturs, og því hefur verið þó nokkuð um samstarf við aðra faghópa félagsins og þó sérstaklega faghóps um gervigreind. Félagar í hópnum eru núna alls 561 og fer fjölgandi.
Helstu viðburðir á seinasta starfstíma voru eftirfarandi:
- Árlega samantekt Jeromy Clenn, forstjóri Milliennium Project, um áhugaverða viðburði liðin árs.
- Alþjóðleg stjórnun gervigreindar – valmöguleikar. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði.
- Gervigreindarstraumar – beint frá San Francisco. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði
- Er þjálfun gervigreindar brot á höfundarétti?. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði
- Framtíðar-samfélagsrými í þágu velsældar. Sameiginlegur fundur faghópa um Heilsueflandi vinnuumhverfi, Framtíðarfræði, Sjálfbæra þróun, Loftslagsmál og umhverfi.
- Síungir karlmenn – kynning á jólabókinni í ár og aðferð til að móta æskileg framtíðaráform.
- Alþjóðlegir viðburðir á árinu 2025. Útfrá hugarheimi framtíðarfræðinga. Samantekt á heimsviðburðum á árinu 2025.
- Nýársmálastofa faghópa framtíðarfræða og gervigreindar. Hvað er það sem koma skal? Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði og gervigreind.
- Slæmar framtíðir í samstarfi við London Futurist
- World Futures Day 2026. Taktu þátt í samtali um framtíða mannkyns 1.mars. Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði og gervigreind.
- Framtíðarsamfélag án aldursfordóma. Vinnustofan er samstarfssvefnefni Framtíðarseturs Íslands og þekkingarmiðstöðvarinnar Farsæl öldrun og er hluti af verkefninu Northern Futures Hub.
- Að rýna í græn umskipti og ólíkar framtíðir. Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði, gervigreind, sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi.
Stjórn faghópsins
Karl Friðriksson Framtíðarsetur Íslands, formaður.
Anna Sigurborg Ólafsdóttir Framtíðarnefnd Alþingis.
Dögg Sigmarsdóttir Framtíðarsetur Íslands.
Funi Magnússon Össur.
Guðjón Þór Erlendsson Skipulagsstofnun.
Gunnar Haugen CCP hf.
Ingibjörg Smáradóttir Náttúrufræðistofnun
Kolfinna Tómasdóttir Rannís
Sigurður B. Pálsson BYKO.
Sævar Kristinsson KPMG.
Þór Garðar Þórarinsson Háskóli Íslands
Aðalfundur faghóps Umbóta og ferlastjórnunar – yfirlit starfsársins 2025–2026
Faghópur Umbóta og ferlastjórnunar starfaði áfram af krafti á árinu með áherslu á miðlun þekkingar, reynslu og hagnýtra lausna á sviði umbóta, ferlastjórnunar og þjónustuhönnunar. Áhersla ársins var á stöðugar umbætur, skilvirkni í rekstri og mannmiðaða þróun þjónustu og skipulagsheilda.
Á árinu var boðið upp á fjölbreytta og vel sótta viðburði á vegum faghópsins þar sem sjónum var beint að nýjum nálgunum, reynslusögum og hagnýtum lausnum úr atvinnulífi og opinberri starfsemi.
- Hvernig vinna LEAN og HSE saman?
Fjallað var um hvernig Lean-hugmyndafræði og HSE (Health, Safety & Environment) geta stutt hvort annað til að skapa öruggari, skilvirkari og sjálfbærari vinnustaði. Áhersla var lögð á að samþætta umbótamenningu, öryggi starfsfólks og stöðugar umbætur í daglegum rekstri. - Dulda verksmiðjan – áskoranir og lausnir í að ná bættum árangri í starfseminni
Farið var yfir hvernig greina má „dulda sóun“ í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að kortleggja ferla, greina flöskuhálsa og bæta yfirsýn til að auka árangur og skilvirkni í rekstri. - Frá ferlum til fólks: Hönnun nýs spítala
Viðburðurinn fjallaði um hvernig hönnun nýs spítala tekur mið af bæði verkferlum og þörfum fólks – starfsfólks, sjúklinga og annarra notenda. Áhersla var lögð á samspil þjónustuhönnunar, ferlahugsunar og mannmiðaðrar nálgunar við þróun framtíðarheilbrigðisþjónustu. - Frá pöntun til afhendingar: Uppbygging og þróun Wolt á Íslandi
Fjallað var um hraðan vöxt og þróun rekstrarferla hjá Wolt á Íslandi með sérstakri áherslu á þjónustuflæði, stafræna upplifun viðskiptavina og mikilvægi skilvirkra afhendingarferla í ört vaxandi starfsemi. - Hver er ávinningurinn með Lean Six Sigma vottun fyrir þig og starfsemina?
Kynntur var ávinningur Lean Six Sigma aðferðafræðinnar fyrir einstaklinga og skipulagsheildir, meðal annars hvernig markviss umbótaverkefni geta stuðlað að aukinni skilvirkni, minni sóun og sterkari umbótamenningu. Einnig var farið yfir mikilvægi færniuppbyggingar og vottunar í umbótastarfi.
Aðalfundur faghópsins var haldinn 6. maí 2026. Á fundinum var samþykkt að halda sömu stjórn og síðasta ár. Stjórn faghópsins helst því óbreytt yfir á næsta starfsár, en jafnframt er vilji til að bæta við nýjum aðilum í stjórn til að efla starf hópsins enn frekar.
Stjórn faghópsins var endurkjörin og skipa hana eftirtalin:
- Hrafnhildur Birgisdóttir, formaður
- Erla Jóna Einarsdóttir
- Jónína Guðný Magnúsdóttir
- Magnús Bergur Magnússon
- Magnús Ívar Guðfinnsson
- Súsanna Magnúsdóttir
- Þóra Kristín Sigurðardóttir
Stjórn faghópsins þakkar fyrir góða þátttöku og áhuga á starfsemi hópsins á árinu og hlakkar til áframhaldandi samstarfs og fræðslu á komandi starfsári.
Fyrsta starfsári faghóps þjónustu og markaðsstjórnunar er nú lokið eftir endurvakningu hópsins, sem hafði legið í dvala um nokkurt skeið. Aðalfundur var haldinn 4. maí þar sem farið var yfir starf vetrarins og kosið í stjórn fyrir komandi starfsár.
Litlar breytingar urðu á stjórn milli ára. Silja lét af störfum í stjórn og Magnús Haukur kemur inn í hennar stað. Við þökkum Silju kærlega fyrir samstarfið í vetur og bjóðum Magnús hjartanlega velkominn til starfa.
Ný stjórn skipa:
- María Ágústsdóttir - formaður
- Hildur Ottesen - varaformaður
- Heiðrún Grétarsdóttir
- Ingibjörg Magnúsdóttir
- Sædís Jónasdóttir
- Unnur Líndal Karlsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Hjördís María Ólafsdóttir
- Magnús Haukur Ásgeirsson
- Ásdís Gislason
Hugmyndir fyrir nýtt starfsár eru þegar komnar í vinnslu og hvetjum við félagsmenn til að hafa samband ef þeir hafa hugmyndir að efni eða vilja sjálfir miðla reynslu og verkefnum, agustsdottirmaria@gmail.com
Við viljum skapa vettvang fyrir opna, fjölbreytta og hagnýta umræðu um þjónustu og markaðsmál. Þar er pláss fyrir alls konar reynslu, hugmyndir og verkefni, bæði það sem hefur gengið vel og það sem fór öðruvísi en lagt var upp með, ásamt þeim lærdómi sem því fylgdi.
Við hlökkum til næsta starfsárs og áframhaldandi samtals um þjónustu, markaðsmál, upplifun, þróun og umbætur með öflugu fólki úr faginu.