Fundur á vegum faghóps um mótun og framkvæmd stefnu
Faghópur um mótun og framkvæmd stefnu heldur á vormisserinu nokkra fundi um þemað "Atvinnustefna fyrir Ísland " og er þetta fyrsti fundurinn í þeirri fundaröð. Leitað verður svara við spurningunum á borð við:
• Hvað gæti falist í atvinnustefnu fyrir Ísland?
• Um hvaða mikilvæga þætti atvinnustefnu má ná mjög víðtækri sátt um og um hvaða þætti eru skiptar skoðanir?
• Hverjir geta komið að því að móta atvinnustefnu fyrir Ísland og hvernig getur það gerst?
• Hver eru helstu verkefnin sem þarf að vinna til að koma stefnunni í framkvæmd og hverjir bera ábyrgð á þeim?
- fundurinn í fundaröðinni:
Stefna Framsóknarflokksins í atvinnumálum
Valgerður Sverrisdóttir og Magnús Stefánsson þingmenn Framsóknarflokksins ræða um stefnu Framsóknarflokksins í atvinnumálum.
Fundarstaður
Háskóli Íslands, Háskólatorg, stofa HT-101 (Háskólatorg er byggingin fyrir aftan Lögberg).
Fundurinn hefst kl. 8.30 og stendur til 10.00