Aðalfundur faghóps um almannatengsl og samskiptastjórnun verður haldinn mánudaginn 12. maí kl. 12:00-12:45 í gegnum Teams.
Allir félagsmenn Stjórnvísi eru velkomnir og áhugasamir geta boðið sig fram til stjórnar. Staða formanns og meðstjórnenda eru lausar.
Störf stjórnar felast í skipulagningu 4-5 fræðsluviðburða á önn. Starf meðstjórnenda einkennist af teymisstarf þannig að vinnuálagi er dreift á milli allra meðlima, skýrar leiðbeiningar eru um hvernig störfum er háttað og því er auðvelt fyrir nýja aðila að fylgja eftir þessu góða starfi og vonandi gera enn betur.
Allir sem hafa áhuga á almannatengslum og samskiptastjórnun og vilja taka þátt að auka vægi atvinnugreinarinnar á Íslandi geta haft samband við Erlu Björg, formann faghópsins.
Tölvupóstur: erla.eyjolfsdottir@cohnwolfe.is
Símanúmer: +354-8985119
Fundardagskrá:
- Kosning til formanns og stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2025-2026
- Ákvarða fyrsta fund nýrrar stjórnar
- Umræður um væntanlegt starfsár
- Önnur mál
Kær kveðja, stjórn faghóps um almannatengsl og samskiptastjórnun.
Microsoft Teams Meeting
Meeting ID: 362 360 470 451 2
Passcode: Bx685wd2