Teams
Sjálfbær þróun, loftslagsmál og umhverfi, Almannatengsl, miðlun og samskipti,
Faghópur Stjórnvísi um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi býður til málstofu um reglugerð ESB 2025/40 um umbúðir og umbúðaúrgang, svokallaða PPWR, sem kom til framkvæmda í ESB 12. ágúst 2026.
Hvaða breytingar felur reglugerðin í sér og hvaða áhrif getur hún haft á íslensk fyrirtæki og neytendur? Fulltrúar ólíkra hagaðila flytja stutt innlegg um stöðu umbúðamála, sýn á nýju reglurnar og helstu áskoranir fram undan. Að erindunum loknum fara fram sameiginlegar umræður og spurningar frá þátttakendum.
Frummælendur verða:
- Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun.
- Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Danól.
- Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála hjá Krónunni.
Freyr Eyjólfsson, verkefnisstjóri hjá SORPU, verður fundarstjóri og stýrir umræðum.
Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams. Hlekkur verður birtur um sólarhring fyrir fund.
Dagskrá
- 10:00–10:05 – Setning og kynning á viðfangsefni
Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri. - 10:05–10:15 – Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis. - 10:15–10:25 – Erindi frá Danól
Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri. - 10:25–10:35 – Erindi frá Krónunni
Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála. - 10:35–11:00 – Sameiginlegar umræður og spurningar.