Aðalfundur faghóps um samfélagsábyrgð (fjarfundur)

Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í þessum aðalfundi vinsamlegast sendið tölvupóst á addygislason@gmail.com til að fá fundarboð með hlekk í Teams fundarboðið.

Dagskrá:

  1. Viðburðir sl. árs
  2. Hlutverk stjórnar
  3. Kynning á faghópnum og fyrirkomulagi viðburða
  4. Kosning stjórnar (Viðmiðunarfjöldi 4-10 manns)
  5. Starfsárið framundan

Þau sem vilja vera þátttakendur í stjórn eða vilja láta af störfum í stjórn, vinsamlegast sendið póst til Ásdísar Gíslason á addygislason@gmail.com

F.h. stjórnar

Ásdís Gíslason

Staðsetning viðburðar

Eldri viðburðir

Umbúðalaust Ísland? – Nýjar reglur, áhrif og áskoranir

Hlekkur á fundinn
Faghópur Stjórnvísi um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi býður til málstofu um reglugerð ESB 2025/40 um umbúðir og umbúðaúrgang, svokallaða PPWR, sem kom til framkvæmda í ESB 12. ágúst 2026.

Hvaða breytingar felur reglugerðin í sér og hvaða áhrif getur hún haft á íslensk fyrirtæki og neytendur? Fulltrúar ólíkra hagaðila flytja stutt innlegg um stöðu umbúðamála, sýn á nýju reglurnar og helstu áskoranir fram undan. Að erindunum loknum fara fram sameiginlegar umræður og spurningar frá þátttakendum.

Frummælendur verða:

  • Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Danól.
  • Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála hjá Krónunni.

Freyr Eyjólfsson, verkefnisstjóri hjá SORPU, verður fundarstjóri og stýrir umræðum.

 

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams. 

Dagskrá

  • 10:00–10:05 – Setning og kynning á viðfangsefni
    Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri.
  • 10:05–10:15 – Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun
    Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis.
  • 10:15–10:25 – Erindi frá Danól
    Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri.
  • 10:25–10:35 – Erindi frá Krónunni
    Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála.
  • 10:35–11:00 – Sameiginlegar umræður og spurningar.

Microsoft Teams meeting

Join: https://teams.microsoft.com/meet/357911267992207?p=DPDx0CDjIsOaJquQiJ

Meeting ID: 357 911 267 992 207

Passcode: gF2XV6RA

Aðalfundur faghóps Stjórnvísi um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi

Aðalfundur faghóps um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi verður haldinn þriðjudaginn 26. maí 2026 kl. 13:00 að Bæjarhálsi 1 og á Teams.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Stjórnarkjör
  3. Kosning formanns
  4. Önnur mál

Sjálfbærniásinn 2026 viðurkenningarhátíð, 6. maí í Elliðaárstöð.

Sjálfbærniásinn er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærnimálum og gerir samanburð á stöðu og þróun. Þessi mæling er svar við aukinni kröfu frá viðskiptavinum og hagaðilum á fyrirtæki að leggja áherslu á sjálfbærni. Að verkefninu standa Prósent, Langbrók og Stjórnvísi

Viðurkenningarhátíð í beinu streymi miðvikudaginn 6. maí 2026, kl. 9.15-10.00

Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins þar sem fjöldi fyrirtækja fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni verður haldin miðvikudaginn 6. maí klukkan 9.15 til 10.00 í Gestastofu, Elliðaárstöð.
Hægt verður að fylgjast með dagskrá í beinu streymi á visi.is og mbl.is.

Dagskrá

9.15 – 9.45 – Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri Prósents kynnir rannsóknarmódelið og veitir þeim fyrirtækjum viðurkenningu sem hæst eru á sínum markaði.
9.45 – 10.00 – Soffía S. Sigurgeirsdóttir ,
Langbrók stýrir pallborðsumræðum

Sjálfbærniásinn er mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfbærni í íslensku samfélagi og hvetur fyrirtæki til að standa sig enn betur í þessum mikilvægu málum. Nánar um Sjálfbærniásinn

Niðurstöður verður hægt að eignast að viðurkenningarhátíð lokinni

Sjálfbærniásinn inniheldur 5 spurningar ásamt aukaspurningu um áhrif sjálfbærni sem eru greindar niður á bakgrunnsbreytur. Niðurstöður eru settar fram í rafrænu mælaborði og eru mæld fyrirtæki pr markað kynnt saman. Prósent sér um sölu og kynningu á niðurstöðum.

Að rýna í græn umskipti og ólíkar framtíðir

Við fáum gestafyrirlesara til að fjalla um skýrsluna Græn umskipti og framtíðaráskoranir: sviðsmyndir til 2040, sem unnin var fyrir framtíðarnefnd Alþingis. Skýrslan er aðgengileg á vef Framtíðarseturs: framtidarsetur.is.

Hér er vefslóðin á fundinn: https://teams.microsoft.com/meet/366291188356666?p=RVhmezZiWVP1tUnp2y

Eyþór Eðvarðsson er stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Hann er virkur í baráttuhópnum París 1,5, sem vinnur að því að Ísland leggi sitt af mörkum í loftslagsmálum. Hann var jafnframt einn af stofnendum Votlendissjóðsins og fyrsti stjórnarformaður hans.

Eyþór hefur skrifað fjölda greina um loftslagsmál, meðal annars um hvernig önnur ríki nálgast græn umskipti og hvað Ísland getur lært af þeim. Í erindinu mun hann fara yfir lykilatriði skýrslunnar og tengja þau við þróunina í Evrópu. Þar verður meðal annars fjallað um grænu umskiptin í Danmörk, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi og Þýskalandi.

Eyþór fær annars lausan tauminn.

Omnibus afgreiddur og hvað svo?

Hlekkur á fundinn

Framtíð sjálfbærnireikningsskila

Undir lok ársins 2025 slakaði Evrópusambandið verulega á kröfum um hvaða fyrirtæki þurfi að gera opinberlega grein fyrir sjálfbærni starfseminnar og hversu ítarlegar upplýsingar þurfi að láta í té. Samþykkt lagabandorms – Omnibus – á Evrópuþinginu í desember er hluti átaks ESB til að minnka skriffinnsku og efla samkeppnishæfni fyrirtækja en var umdeild.

Hvað mun þetta þýða fyrir íslensk fyrirtæki og hver verða áhrifin á umhverfi, loftslag, samfélög og stjórnarhætti?

Faghópur Stjórnvísi um Sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi býður til opins fundar
miðvikudaginn 18. mars kl. 8:30 – 10:00 í húsnæði Orkuveitunnar við Bæjarháls 1 í Reykjavík.

Framsögu hafa Halldór I. Pálsson, sérfræðingur á ársreikningaskrá Skattsins og Steina Dröfn Snorradóttir, lögg. endurskoðandi og meðeigandi hjá Deloitte.

Fundarstjóri verður Eiríkur Hjálmarsson, sjálfbærnistjóri Orkuveitunnar og formaður faghóps Stjórnvísi um sjálfbæra þróun.

Hægt verður að fylgjast með fundinum á Teams.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta,
Faghópur Sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?