Skráning er hér ásamt upplýsingum um dagskrá o.fl. Afmælisráðstefna Vinnueftirlitsins Vinnuvernd – ávinningur til framtíðar verður haldin á TEAMS föstudaginn 19. nóvember næstkomandi í tilefni þess að stofnunin fagnar 40 ára afmæli á árinu. Ráðstefnan hefst klukkan 8.30 og stendur til 14.30.
Stjórn faghóps um öryggisstjórnun hjá Stjórnvísi vekur athygli á að þrír af fyrirlesurum ráðstefnunnar koma úr þessari öflugu stjórn faghópsins.
Þátttaka er án endurgjalds en skráning er nauðsynleg. Frestur til skráningar er 16. nóvember næstkomandi.
Afmælisráðstefna Vinnueftirlitsins 19. nóvember - faghópur um öryggisstjórnun hjá Stjórnvísi
Staðsetning viðburðar
Eldri viðburðir
Hefur vinnurými og hugbúnaður áhrif á hegðun líðan og frammistöðu starfsfólks?
Hildur Jóna og Magga Dóra munu leitast við að svara spurningunni; hvaða áhrif hefur vinnurými á hegðun, líðan og frammistöðu og hvaða hugbúnaður fellur undir vinnuverndarlöggjöf.
Hildur Jóna hjá HumanAtWork ehf. fjallar um hvernig vinnurými hafa áhrif á hegðun, líðan og frammistöðu starfsfólks. Erindið byggir á rannsóknum í umhverfissálfræði og fjallar meðal annars um áhrif opinna rýma, skipulags og aðstæðna í vinnuumhverfi. Markmiðið er að auka skilning á þörfum fólks í vinnu og hvernig hönnun vinnurýma getur stutt ólíkar þarfir og haft þannig áhrif á frammistöðu starfsfólks.
Magga Dóra hefur unnið við hugbúnaðargerð síðan fyrir aldamót. Hún er með bakgrunn í sálfræði og tölvunarfræði og hefur unnið fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum hérlendis sem erlendis. Hún er stofnandi og eigandi Mennskrar ráðgjafar og finnst að tæknin eigi að vera mennsk.
Vinnuumhverfi er að verða stafrænt að meira og minna leyti. Jafnvel starfsfólk sem situr ekki við tölvu allan daginn (iðnaðarmenn, skurðlæknar, kennarar) þarf að nota ýmiskonar hugbúnað til að halda utan um sín störf. Þrátt fyrir að gerðar séu ríkar kröfur til vinnuumhverfis fólks (hávaðastig, lýsingarstig, öryggi tækja og svo framvegis) er ekki gerð nein vinnuvistfræðileg krafa til hugbúnaðar. Þetta veldur því að mikið af fólki þarf að glíma við ónotendavænan hugbúnað sem beinlínis skapar vinnu og flækir störf. Þetta veldur streitu sem getur verið áhrifaþáttur fyrir kulnun. Hvað getum við gert?
Haldið í samstarfi við Vinnís.
Hér er linkur á fundinn.
https://teams.microsoft.com/meet/34729025176542?p=f0GqnP7dXsy6BNtdBe
- Gullnar Reglur eru ekki bara setning á vegg.
- Þær eru loforð.
- Loforð um að þegar líf er í húfi tökum við alltaf réttu ákvörðunina.
Bætt Öryggi - aukin og einfaldari öryggismál fyrir fyrirtæki
Join the meeting now
Eggert Jóhann Árnason stofnandi Bætts Öryggis fjallar um hvernig fyrirtækið styður önnur fyrirtæki við að efla og einfalda sín öryggismál. Hann fjallar um og sýnir m.a. hvernig hægt er nýta Microsoft 365 lausnir til að bæta verkferla og hvernig Bætt Öryggi getur veitt tímabundna aðstoð í afmörkuðum verkefnum með það að markmiði að efla öryggismál.
Öryggishópur Stjórnvísi hvetur ykkur til að mæta á staðinn enda nauðsynlegt að hittast, efla tengslin og skapa umræður.
https://www.linkedin.com/in/eggert-j%C3%B3hann-arnason-5903b7a3/
Öryggisþing Háskóla Íslands - Áhættumat
Í framleiðslu JBT Marel er töluvert unnið með LEAN fræði í framleiðslunni. Lilja Birgisdóttir (HSE/ÖHU Manager) hjá JBT Marel mun fræða okkur um hvernig HSE (ÖHU) og LEAN vinna saman, kosti þess og galla.
Boðið verður upp á morgunhressingu fyrir kynninguna kl. 08:30. Eftir kynningu verður gestum boðið upp á fræðslu og útsýningshring á svölunum þar sem hægt verður að horfa yfir framleiðsluna.
Kynningin verður tekin upp en við vonumst til að sjá sem flesta á staðnum.
Hér er linkur á kynninguna. Join the meeting now