Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7, 107 Reykjavík (St
Stefnumótun og árangursmat,
Rannsóknir sýna að í 90% tilfella ná fyrirtæki ekki þeim árangri sem var skilgreindur í upphafi við innleiðingu á nýrri stefnu. Góður undirbúningur er grunnurinn að árangursríkri innleiðingu en því miður er undirbúningurinn oftast mjög takmarkaður.
.
Stefnuvitinn er verkfæri sem hjálpar fyrirtækjum að undirbúa betur innleiðingu á nýrri stefnu og byrgja þær brunna sem leynast á leiðinni. Guðrún Ragnarsdóttir kynnir 8 þætti stefnuvitans og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér hann í innleiðingu á stefnu sinni.
.
Guðrún Ragnarsdóttir er partner og ráðgjafi hjá Strategíu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hún hefur víðtæka reynslu af innleiðingu stefnu og stjórnun breytinga en sl. 15 ár hefur hún unnið að ýmsum verkefnum á því sviði m.a. sem gæðastjóri hjá Landsvirkjun, forstöðumaður gæðastjórnunar hjá Íslandsbanka, sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs BYKO og sem framkvæmdastjóri LÍN. Guðrún er viðskiptafræðingur og MBA. Hún hefur unnið að mörgum ráðgjöfgjafaverkefnum, sinnt námskeiðahaldi og skrifað greinar um stjórnun. Guðrún er fyrrverandi formaður Stjórnvísi og heiðursfélagi.
.