Click here to join the meeting
Belti og braut er innviða- og fjárfestingaverkefni kínverskra stjórnvalda og er eitt stærsta fjárfestingaverkefni í heimi. Belti og braut var sérstaklega til umræðu við heimsókn varaforseta Bandaríkjanna til Íslands sem þakkaði Íslendingum fyrir að hafna þátttöku í verkefninu – þó Íslendingar hefðu ekki enn gert það. Hvað er Belti og braut og hvernig tengist það norðurslóðum? Hvers vegna er verkefnið svo umdeilt? Hvaða áhrif mun verkefnið hafa á stöðu Kína á komandi árum?
Fyrirlesari er Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir sem er verkefnastjóri Rannsóknaseturs um norðurslóðir sem heyrir undir Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Að lokinni kynningu gefst tími til fyrirspurna og umræðna.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Stjórnvísis og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.