Þátttökufundur um færni og eiginleika leiðtoga framtíðarinnar
Við fáum til liðs við okkur öfluga leiðtoga sem deila sinni persónulegu reynslu og framtíðarsýn á hvaða færniþættir verða mikilvægastir í framtíðinni í pallborðsumræðum og á vinnustofu þar sem allir þátttakendur munu leggja sitt af mörkum.
Þeir eru;
Ari Daníelsson starfar sem stjórnarformaður Skyggnis eignarhaldsfélags sem heldur utan um 15 rekstrarfélög í upplýsingatækni og stafrænum innviðum og er jafnframt starfandi stjórnarformaður Origo. Hann hefur yfir tveggja áratuga reynslu af stjórnun, fjárfestingum og umbreytingum innan upplýsingatækni og fjármálaþjónustu, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi.
Kristinn Hjálmarsson er framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries og stofnandi ráðgjafafyrirtækisins Nótera. Hann starfaði áður sem þróunarstjóri Opna háskólans hjá HR og hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, breytingastjórnun og þróun skipulags. Kristinn starfar með stjórnendum og stjórnum við að móta framtíðarsýn og hrinda henni í framkvæmd og hefur sérstakan áhuga á því hvernig forysta, lærdómur og tækni móta framtíð vinnunnar.
María Fjóla Harðardóttir hefur starfað sem stjórnandi/leiðtogi í heilbrigðisþjónustu í yfir 20 ár, nú síðast sem forstjóri Hrafnistuheimilanna þar sem starfa um 2000 starfsmenn á 7 starfsstöðum. María var fyrsta konan til að gegna embætti forstjóra í sögu Hrafnistu. Hún starfaði einnig sem stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu sem þjónustar yfir 50 fyrirtæki. Árið 2021 hlaut hún Viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir stjórnunarstörf sín.
Selma Svavarsdóttir er forstöðumaður nýsköpunar hjá Landsvirkjun og hefur fjölbreytta reynslu af stjórnun, rekstri og breytingum. Hún starfaði áður í fjármálageiranum og hefur síðan gegnt fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum hjá Landsvirkjun. Hún hefur leitt ólík teymi og breytingar í stórri og fjölbreyttri starfsemi og leiðir í dag nýsköpun hjá Landsvirkjun.
Á vinnustofunni heyrum við persónulegar reynslusögur frá fólki sem leiðir, skapar og starfar mitt í breytingum.
Sögurnar verða kveikja að sameiginlegri rannsókn þar sem við:
- lesum í breytingarnar sem þegar eru að eiga sér stað og munu móta framtíðina
- skoðum hvaða færniþætti þessar breytingar munu kalla á
- ögrum viðteknum hugmyndum um forystufærni
- drögum fram þá færni sem líklegt er að skipti mestu máli
- speglum eigin styrkleika og tækifæri til vaxtar
Markmið:
Að virkja framtíðarlæsi okkar og móta saman vegvísi með hugmyndum af forystufærni sem framtíðin mun mögulega kalla á. Markmiðið er að viðburðurinn veiti innblástur, skýrari sýn og meðvitund um hvað við getum byrjað á að efla hjá okkur sjálfum.