Smelltu hér til að tengjast fundinum.
Hver er ábyrgð vinnustaðarins þegar kemur að heilsu starfsfólksins? Flest eyðum við miklum tíma á vinnustöðum og eru þeir því tilvalinn vettvangur til að styðja við heilsusamlega hegðun.
Á þessum viðburði sem fer fram að hluta til fram á ensku heyrum við frá þeim Hildu Barrett, sem hefur nýlega gefið út bókina "Life Prescriptions: Feel better - Live longer - Enjoy more", og Dr. Katrínu Ýr Friðgeirsdóttur sem er lektor í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík.
Nánar um erindin
Hilda's talk: Empowering Employees to Take Responsibility for Their Own Health
Dr. Katrín Ýr Friðgeirsdóttir er lektor í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Hún lauk doktorsprófi í íþróttavísindum árið 2025 og hafa rannsóknir hennar einkum beinst að svefnheilsu, kæfisvefni og hlutverki hreyfingar og þjálfunar í að draga úr alvarleika kæfisvefns.
Um erindi Katrínar Ýrar
Svefn er ein af grunnstoðum líkamlegrar og andlegrar heilsu en mikilvægi hans fær oft ekki nægilega athygli í krefjandi starfsumhverfi nútímans. Í erindinu verður fjallað um mikilvægi svefns fyrir heilsu og vellíðan út frá nýjustu vísindarannsóknum, með sérstakri áherslu á áhrif svefns á líkamlega heilsu, hugræna getu, streitu og starfsgetu. Einnig verður fjallað um gagnkvæm tengsl svefns og vinnuumhverfis og hvers vegna svefnheilsa ætti að vera mikilvægur þáttur í heilsueflingu á vinnustöðum.