Leiðtogar sem hugsa út fyrir boxið

Faghópar um heilsueflandi vinnuumhverfi og mannauðsstjórnun standa fyrir pallborði leiðtoga þar sem við fáum til liðs við okkur leiðtoga sem starfa þar sem hugsað er út fyrir boxið og lögð áhersla á jákvæða vinnustaðamenningu. 

Nánari upplýsingar síðar.

Staðsetning viðburðar

Eldri viðburðir

Þekkjum merkin og bregðumst við

Húsið opnar kl 08:00, boðið er upp á léttar veitingar frá kl. 08:15
Smelltu hér til að skrá þig á viðburðinn
Á fundinum fjöllum við um ofbeldi í nánum samböndum og hvernig stuðningur atvinnurekenda getur skipt sköpum fyrir starfsfólk sitt. Vinnustaðurinn er oft eina tenging þolanda við samfélagið og einn af fáum stöðum þar sem þolandi kemst undan eftirliti geranda. Styðjandi viðbrögð stjórnanda eða samstarfsfólks geta brotið þá einangrun. 

Kynnt verður ný tryggingavernd, stuðningsleyfi, sem er nú hluti af slysatryggingum fyrirtækja. Stuðningsleyfið auðveldar atvinnurekendum að veita launað leyfi í allt að tvær vikur, svo starfsmaður geti frekar breytt aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap. Einnig verður fjallað um reynslu af innleiðingu aðgerðaráætlana fyrirtækja og mikilvægi þess að þolendur upplifi öryggi, stuðning og valdeflingu.

Fram koma

  • Jenný Kristín Valberg – Teymisstýra Bjarkarhlíðar
  • Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir – Forstjóri Varðar
  • Adriana Karolina Pétursdóttir Framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto á Íslandi og formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi
  • Helga Halldórsdóttir Forstöðumaður Mannauðs Arion Banka


Fundarstjóri er Ólafur Kári Júlíusson - Vinnusálfræðingur hjá Vinnuvís
ernig geta vinnustaðir stutt við starfsfólk sem verður fyrir ofbeldi í nánu sambandi

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Athugið nýr Teams linkur hér fyrir neðan

 

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Verkefni stjórnenda og starfsfólks sem starfa við mannauðsstjórnun eru mjög fjölbreytt eftir stærð og gerð þeirra fyrirtækja og stofnana sem starfað er í. Mjög stór hluti af verkefnum mannauðs er stuðningur af ýmsu tagi við stjórnendur og starfsfólk.

Oft þarf að meta eftir eðli samtala hvort viðkomandi aðili þarf að fá ráðleggingu, hlustun eða leiðbeiningar. Til þess að geta komist sem best á móts við þarfir stjórnenda þarf mannauðsaðilinn að geta hlustað og skilið hvað verið er að biðja um.

Eitt af aðal einkennum markþjálfunar er að hlusta og heyra hvað er sagt og ekki bara á þau orð sem sögð eru, heldur líka þau sem ekki eru sögð og hvernig líkamstjáning er notuð. Kynnt verður 3 stig hlustunar og farið verður yfir þann ávinning sem stjórnendur og þeir sem starfa í mannauðsmálefni geta fengið með því nýta sér hlustun á öllum þremur stigunum.

 

Fyrirlesari:

Anna María hefur innsýn í fjölbreytt fyrirtækjaumhverfi bæði hérlendis og erlendis, þar sem hún hefur starfað sem mannauðsstjóri í yfir 20 ár hjá fyrirtækjum í ýmsum greinum atvinnulífsins, rekið eigið fyrirtæki með stjórnendaþjálfun, námskeið og fyrirlestra m.a. tengda verkfærum markþjálfunar. Hún starfar nú sem mannauðsráðgjafi hjá 2.stærsta sveitarfélagi landsins Kópavogsbæ, þar sem hún sinnir m.a. Verkefnastjórnun í innleiðingum ásamt ráðgjöf og aðstoð stjórnenda við ýmis mannauðsmálefni. Frá því Anna María lærði Markþjálfun árið 2006 hefur hún nýtt sér aðferðafræðina í starfi, er með virka PCC vottun frá alþjóðasamtökum ICF. Hún er jafnframt ein af stofnendum ICF Ísland, þar sem Anna María gegndi m.a. bæði varamennsku og formennsku félagsins ásamt því að hafa setið í stjórn ICF Norge. Anna María er með executive MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Áhugamál Önnu Maríu er almenn útivist og þá helst: fjallgöngur, fjallahjól, blómarækt, fluguveiði og skíði.

Fundarstaður og tími: Bæjarskrifstofur Kópavogs Digranesvegi 1. Fimmtudaginn 12.mars Kl.9:00-10:00, fundarherbergi Holtið og á Teams.

Linkur á teams fund

Microsoft Teams meeting

Join: https://teams.microsoft.com/meet/35465157159857?p=eSbloh7Bcl0twPDprk

Meeting ID: 354 651 571 598 57

Passcode: Xt2qf67M

Plástrarnir eru búnir

Smelltu hér til að tengjast fundinum.

Hilja Guðmunds býður ykkur að kveðja burt árleg starfsmannasamtöl, "opnu hurðina”, krísustjórnun, “eina könnun á ári" og starfsmannafríðindin. Ekki af nostalgíu heldur af nauðsyn. Þegar mannauðsmál og rekstur snúast fyrst og fremst um viðbrögð þá erum við alltaf of sein. Erindið fjallar um færsluna frá krísustjórnun og táknrænum aðgerðum yfir í gagnadrifnar forvarnir, snemmtæk samtöl og kerfisbundna nálgun sem styður bæði fólk og rekstur.

Hilja Guðmunds er bláeygð, rétthent sveitastelpa og er einn eiganda hjá Mental ráðgjöf. Hilja er sérfræðingur þeirra í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og hefur þjálfað og handleitt um 1000 stjórnendur í viðverustjórnun, samtals"takti" og stjórnun. 

Geopolitics Meets HR Leadership -Leiðtogahlutverk mannauðsfólks í heimi alþjóðastjórnmála-

Smelltu hér til að skrá þig á viðburðinn.

 
Þessi fundur er sameiginlegur viðburður Mannauðs og Stjórnvísi.
Fyrirlesari: Lucas van Wees. Fyrrverandi forseti EAPM (Evrópusamtaka mannauðsfólks) og stjórnarmaður í WFPMA (Alþjóðasamtökum mannauðsfólks)

Lucas mun fjalla um samspil alþjóðastjórnmála og leiðtogahlutverk mannauðsfólks og hvernig mannauðsstjórnun getur styrkt seiglu skipulagsheilda og samfélagsins í heild sinni í síbreytilegu umhverfi á óvissutímum.

 

Microsoft Teams meeting

Join: https://teams.microsoft.com/meet/37373220278165?p=BxjML7vCxIQAOhbMtu

Meeting ID: 373 732 202 781 65

Passcode: 2Gp2w36Z

,,Þegar gleðin verður áskorun: EKKO mál og hlutverk stjórnenda"

Faghópur Stjórnvísi um mannauðstjórnun bjóða til TEAMS erindis þann 13. nóvember kl. 9:00-10:00.

Join the meeting now

,,Þegar gleðin verður áskorun: EKKO mál og hlutverk stjórnenda"

Árshátíðir, starfsmannaferðir og aðrir viðburðir eru mikilvægir fyrir starfsanda og samheldni – en geta jafnframt skapað aðstæður þar sem mörk verða óljós. Í þessu erindi verður fjallað um EKKO mál (einelti, kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldi) og hvernig stjórnendur og mannauðsfólk getur dregið úr áhættu óæskilegra samskipta og brugðist rétt við málum sem kunna að koma upp.

Farið verður yfir:

  • Lagalegar skyldur stjórnenda og vinnuveitenda
  • Hvernig búa má starfsfólk undir að virða mörk og stuðla að öryggi
  • Hvað felst í faglegum og ábyrgum viðbrögðum
  • Hvers vegna menning og viðhorf skipta ekki síður máli en reglur og ferlar

Markmiðið er að efla skilning, þekkingu og færni stjórnenda og mannauðsfólks þannig að gleðin geti verið ánægjuleg fyrir öll – án þess að verða að áskorun.

 

Fyrirlesari: Carmen Maja Valencia, sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd hjá Auðnast

ATH: Fundurinn verður EKKI tekinn upp

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?