ÖÖ: óvirkur: ISO hópur, ÖÖ: Óvirkur Lean - Straumlínustjórnun, Umbætur og ferlastjórnun ,
Lean Six Sigma er einhver áhrifaríkasta stjórnunaraðferð sem þekkist í að tryggja framþróun í starfseminni með því að koma á jákvæðum breytingum sem miða að bættri skilvirkni og útrýmingu á sóun. ANSA ehf. og NTV Promennt bjóða nú upp á vefnámskeið og vottun í hvíta, gula og græna beltinu í Lean Six Sigma undir yfirskriftinni: Sjáðu tækifærin í umbótum.
Fyrirtæki, ríkisfyrirtæki, opinberar stofnanir og sveitarfélög víða út í heimi starfa samkvæmt þessari útbreiddu aðferð til að ná stórbættum rekstrarárangri. Lean Six Sigma námskeið hafa verið í boði fyrirtækja og háskóla í Evrópu og í Bandaríkjunum um árabil og nú loksins á Íslandi einnig.
Á fundinum sem haldinn er á Teams mun Magnús Ívar segja frá mótun Lean Six Sixma til dagsins í dag auk þess að greina frá ávinningi, umgjörð og innihaldi á Lean Six Sigma námskeiði ANSA ehf. og NTV Promennt.
Teams hlekkur verður sendur til skráðra þátttakenda fyrir fundinn sem haldinn er á Teams 20. mars frá kl. 9.00 til 10.00.