Click here to join the meeting
EOS (Entrepreneurial Operating System) er öflug nálgun til þess að skapa fyrirtækjum skýra sýn og byggja upp drifkraft. Þannig vinna allir af festu að sýninni og þeim markmiðum sem sett eru. Á þessum viðburði faghóps um stefnumótun og árangursmat fáum við innsýn í EOS aðferðafræðina sem yfir 100.000 fyrirtæki vítt og breytt um heiminn hafa tekið upp.
Bjarki Jóhannesson hjá Bravo fer nokkuð ítarlega yfir EOS kerfið og hvernig skuli standa að innleiðingu á aðferðafræðinni. Hann hefur sem EOS Implementer innleitt EOS hjá fjórum fyrirtækjum hér á landi með mjög góðum árangri.
Hlekkur um Bjarka og reynslusögur af innleiðingum EOS kerfisins.
Einnig má sjá hér hlekk á LinkedIn hans Bjarka