Fjallað verður um möguleika í íslenskukennslu á vinnustöðum landsins. Bara Tala og Liberis fræðslumiðstöð ætla að koma með innlegg inn í umræðuna.
Tungumálið er meira en samskiptatæki – það er lykill að þátttöku, inngildingu og tilfinningunni fyrir því að tilheyra. En hvernig geta vinnustaðir skapað umhverfi þar sem íslenskunám verður eðlilegur hluti af vinnudeginum og starfsfólk fær raunveruleg tækifæri til að nota tungumálið?
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig hægt er að byggja upp námssamfélag á vinnustað þar sem íslenskunám, dagleg samskipti og stuðningur samstarfsfólks fara saman. Með hagnýtum dæmum úr starfi Bara tala verður sýnt hvernig stafræn tækni, starfstengt tungumálanám og virk þátttaka vinnustaðarins geta stuðlað að auknu málöryggi, sterkari liðsheild og aukinni tilfinningu starfsfólks fyrir því að tilheyra – bæði á vinnustaðnum og í íslensku samfélagi.
Joanna Dominiczak, fræðslustjóri hjá BARATALA mun færa erindið.
Íslenskukennsla með starfstengdum orðaforða
Í kynningunni verður starfsemi Liberis Fræðslumiðstöðvar kynnt með sérstakri áherslu á fyrirtækjalausnir og íslenskukennslu á vinnustöðum. Fjallað verður um hvernig námið tekur mið af þörfum starfsfólks, tungumálakunnáttu þess og þeim samskiptum sem það tekst á við í daglegu starfi.