Taugafjölbreytileiki á vinnustað

Hlekkur inn á viðburðina

 

Taugafjölbreytileiki á vinnustað: Allir heilar leggja eitthvað til
Taugafjölbreytileiki er ekkert tískufyrirbæri. Hann er raunveruleiki á öllum vinnustöðum. Talið er að 15–20% fólks séu taugafjölbreytt eða skynsegin, til dæmis með ADHD, einhverfu eða lesblindu. Reynsla þeirra hefur áhrif á samskipti, sköpunargleði, líðan og samvinnu í teymum á hverjum einasta degi. Á þessum fyrirlestri skoðum við hvernig taugafjölbreytileiki birtist í vinnunni, hvers vegna svo margir fara óséðir og hvað stjórnendur, mannauðsfólk og samstarfsfólk geta gert til að allir heilar fái að blómstra. Þú færð með þér skýrar útskýringar og einföld, hagnýt verkfæri sem þú getur byrjað að nota strax. Fyrirlesturinn fer fram á ensku, en spurningar og umræður mega gjarnan vera á íslensku.

 

Neurodiversity at Work: Every Brain Brings Something Valuable
Neurodiversity isn’t a trend. It’s a reality in every workplace. An estimated 15–20% of people are neurodivergent, including those with ADHD, autism, and dyslexia, and their experiences shape team dynamics, communication, creativity, and wellbeing every single day. In this session, we’ll explore what neurodivergence actually looks like at work, why so many people go unrecognized, and what leaders, HR, and colleagues can do to create an environment where all brains can thrive. You’ll leave with clear explanations and simple, practical tools you can start using right away. The session will be held in English, with Q&A welcome in Icelandic.
 
Um Sönnu
Sanna Arthur er ICF-þjálfaður markþjálfi með sérhæfingu í taugafjölbreytileika. Hún er líka fræðari og stofnandi Speshal Coaching í Reykjavík. Sanna er á einhverfurófi og með ADHD. Eins og margar konur greindist hún seint. Í starfi sínu að inngildingu skynsegins fólks nýtir hún bæði eigin reynslu og faglega þekkingu. Með bakgrunn í verkefnastjórnun, teymisstjórnun og fjölmenningarlegum samskiptum aðstoðar hún fyrirtæki og stofnanir við að byggja upp vinnustaði þar sem allir heilar geta blómstrað. Nálgun hennar byggir á styrkleikum og vísindalegri þekkingu og hefur sálrænt öryggi að grunni. Hún býður upp á vinnustofur og markþjálfun á ensku, íslensku og þýsku.

 

About Sanna
Sanna Arthur is an ICF-trained neurodivergent coach, educator, and founder of Speshal Coaching in Reykjavík. With a background in project management, leadership, and multicultural communication, she helps organizations build workplaces where all kinds of brains can thrive. A late-diagnosed AuDHD woman, she brings both lived experience and professional expertise to her work on neuroinclusion. With a background in project management, leadership and multicultural communication, she helps organizations build workplaces where all kinds of brains can thrive. Her approach is strengths-based, science-informed and grounded in psychological safety. She offers workshops and coaching in English, Icelandic, and German.
 
 

Staðsetning viðburðar

Eldri viðburðir

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu

Hlekkur inn á viðburðina

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu verður haldinn mánudaginn 27. Apríl klukkan 12:00 til 12:30 í gegnum Teams.

Stjórn faghóps um fjölbreytileika og inngildingu sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins.

Faghópur um fjölbreytileika og inngildingu óskar eftir framboðum stjórnarfólks. Við hvetjum þá sem gætu haft áhuga á að sitja í stjórn faghópsins til að láta vita af sér með því að senda tölvupóst á monika@eykt.is

Fundardagskrá:

  • Uppgjör á starfsári
  • Starfsárið framundan, markmið og fyrirkomulag
  • Önnur mál

Inngildandi verkefnastjórn, kynslóðabil - eða brú?

Tengill/linkur á fundinn

Í nútíma vinnuumhverfi mætast ólíkar kynslóðir með fjölbreyttar væntingar, vinnulag og gildi. Á þessum viðburði skoðum við hvernig verkefnastjórnun getur nýtt kraftinn sem felst í fjölbreytileikanum — með áherslu á inngildingu, samskipti og skilvirka samvinnu þvert á kynslóðir. 

Um fyrirlesarana:

Anna Steinsen er með BA gráðu í Tómstunda og félagasmálafræði. Hún er einn af eigendum KVAN og hefur síðustu ár haldið fyrirlestra um samskipti, liðsheild, styrkleikamiðaða nálgun, þjónustu og leiðtogafærni. Anna er stjórnarformaður UN women og starfar einnig sem stjórnendamarkþjálfi. Anna mun í erindinu fjalla um kynslóðir og áskoranir og tækifæri fyrir vinnumarkaðinn að vinna saman, ólíkar kynslóðir vinna að sameiginlegum markmiðum.

Irina S. Ogurtsova er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og hefur á undanförnum árum starfað sem mannauðssérfræðingur, þar sem hún hefur sérhæft sig í málefnum starfsfólks af erlendum uppruna og stutt stofnanir og fyrirtæki við að skapa jafnréttisríkari og fjölbreyttari vinnustaði. Hún er jafnframt formaður faghóps um fjölbreytileika og inngildingu, þar sem hún vinnur að því að efla þekkingu og umræðu um þessi málefni og styðja fagfólk við að innleiða inngildandi vinnubrögð í dagleg störf. Í erindi sínu mun Irina fjalla um hvernig inngilding og fjölbreytileiki geta orðið drifkraftur í árangursríkri verkefnastjórnun – hvernig leiðtogar geta nýtt fjölbreytt sjónarhorn til að efla teymisvinnu, nýsköpun og árangur.

Tengill/linkur á fundinn

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu verður haldinn fimmtudaginn 8. maí klukkan 15:00-15:30.
Smellið hér til að tengjast fundinum

Fundardagskrá:

  • Uppgjör á starfsári
  • Önnur mál

Stjórn faghóps um fjölbreytileika og inngildingu sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins. 

 

Inngilding með hjálp gervigreindar

Join the meeting now

Í þessum fyrirlestri mun Haukur Guðjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Sundra, deila reynslu sinni af því að þróa hugbúnaðarlausn sem tengir saman gervigreind og inngildingu á nýstárlegan hátt. Þótt hann gefi sig hvorki út fyrir að vera sérfræðingur í gervigreind né inngildingu, hefur hann með opnum huga og mikilli forvitni kafað djúpt í tengsl þessara tveggja sviða. Haukur mun miðla lærdómi sínum af samtölum við fjölbreyttan hóp fólks – allt frá mannauðsstjórum og kvikmyndagerðarfólki til hagsmunasamtaka og sérfræðinga í inngildingu. Hann mun jafnframt veita innsýn í hvernig gervigreind getur hjálpað fyrirtækjum að takast á við algengar áskoranir í inngildingarvinnu á vinnustöðum. Markmið fyrirlestrarins er að þátttakendur fari heim með skýrar, hagnýtar leiðir til að nýta gervigreind til að efla inngildingu í eigin starfsemi.

Íslenskunám og fræðsla fyrir erlent starfsfólk Reykjavíkurborgar

Join the meeting now

Í þessu erindi fjallar sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg um tækifæri sem starfsfólk með annað móðurmál en íslensku hefur til að sækja íslenskunám og fræðslu.

Reykjavíkurborg er bæði stærsta sveitarfélag og vinnustaður landsins. Hjá borginni starfa um 10.000 manns á um 375 fjölbreyttum starfsstöðum. Um 12% starfsfólks hefur erlendan bakgrunn. Hjá Reykjavíkurborg er litið á margbreytileika mannlífsins og tungumálakunnáttu sem auðlind. Meta skal þekkingu og menntun starfsfólks af erlendum uppruna að verðleikum og veita því aðstoð til að nýta hana samhliða því að ná góðum tökum á íslensku máli. Starfsfólk, sem er í beinum samskiptum við borgarbúa, skal hafa grundvallarfærni í íslensku, samanber námskrá i íslensku fyrir útlendinga. Íslenska skal vera meginsamskiptamál í þjónustu og vinnuumhverfi starfsstaða Reykjavíkurborgar.

Tungumálið er lykillinn að samfélagslegri þátttöku. Fyrir starfsfólk í nýju landi getur það skipt sköpum fyrir líðan og starfsþróun að geta tjáð sig á tungumáli vinnustaðarins. Því leggur Reykjavíkurborg ríka áherslu á að styðja starfsfólk í að læra íslensku og efla færni sína í starfi. Í erindinu verður fjallað um þau úrræði sem í boði eru.

Fyrirlesari er Kristín Salín Þorhallsdóttir -  sérfræðingur á mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?