Markþjálfun undir smásjá – hvað er hún í raun og veru?

Markþjálfun hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli í stjórnun, leiðtogafræði og persónulegri þróun. Á sama tíma hefur hún stundum mætt efasemdum eða fordómum – oft vegna misskilnings um hvað markþjálfun er og hvað hún er ekki.
 
Í þessu erindi verður farið yfir grunn markþjálfunar: hvað felst í góðu markþjálfunarsamtali, hvernig aðferðin byggir á ábyrgð, sjálfsþekkingu og skýrari hugsun, og hvers vegna hún reynist svo áhrifarík fyrir einstaklinga og teymi. Einnig verður skoðað hvaðan algengir fordómar gagnvart markþjálfun koma og hvernig hægt er að nálgast hana með fagmennsku, gagnrýninni hugsun og opnum huga.
 
Markmiðið er að gefa þátttakendum skýrari mynd af því hvað markþjálfun er í raun og hvaða ávinning hún getur skapað – hvort sem hún er nýtt til að styrkja leiðtogahæfni, efla samstarf eða styðja fólk í að verða sterkari “leikmenn” í eigin starfi og lífi.
Erindið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að kynnast markþjálfun á dýpri og faglegri hátt. Þátttakendur fá bæði innsýn í grunn aðferðarinnar og tækifæri til að velta fyrir sér hvernig markþjálfun getur nýst í þeirra eigin starfsumhverfi."

 

Fyrirlesari 

Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.
Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.
Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi, ásamt nýtingu markþjálfunar í margvíslegum samtölum við starfsmenn og viðskiptavini.

 

Linkur á Teams hér

Vinsamlegast athugið að þeir sem verða á Teams geti ekki tekið þátt í samtalinu eftir erindið, þeir eru aðallega að hlusta.

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Innri vinna leiðtogans: Vinnustofa um kjarnagildi og þjónandi forystu

Til að vera leiðtogar í okkar lífi og leiða aðra þurfum við fyrst að dýpka eigin sjálfsvitund. Að þekkja okkar gildi og lifa í samræmi við þau daglega er fyrsta skrefið á þeirri vegferð.

Á þessari vinnustofu veita Bryndís og Lára Kristín þátttakendum tækifæri til að kortleggja eigin kjarnagildi og íhuga hvernig þeir geta lifað meira í samræmi við þau. Kjarnagildi þjónandi leiðtoga verða kynnt og þar geta þátttakendur sótt innblástur til frekari vaxtar ef það höfðar til þeirra. Samhliða þessari vinnu kjörnum við okkur og tengjumst okkar ásetning í gegnum stuttar leiddar hugleiðslur. 

Þessi vinnustofa er fyrir alla sem vilja fá innsýn í þjónandi forystu og leggja meiri áherslu á hvernig við getum lifað í takt við okkar eigin gildi í lífi og starfi.

ATH. Vinnustofan hefst á núvitundargöngu og leik í náttúrunni í Guðmundarlundi til að jarðtengja okkur fyrir vinnustofuna. Mætið því vel búin og tímanlega.

Hvað annað þarftu að taka með? Stílabók, penna og opinn hug.

Bryndís Skarphéðinsdóttir er með bakgrunn í alþjóðlegum lífsstíls-og heilsufræðum og fór í MSc nám í vinnusálfræði, eftir að hafa stundað hugleiðslu-og jóga nidra kennaranám á Indlandi. Síðustu ár hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, innan Norræna tengslanets um nám fullorðinna og í Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Bryndís er útskrifaður markþjálfi frá VIRKJA og hugleiðslukennari frá Yoga Essence á Indlandi.

Lára Kristín Skúladóttir er sjálfstætt starfandi lóðs og leiðtogaþjálfi en starfaði áður sem stjórnunarráðgjafi, markþjálfi og Lean sérfræðingur hjá VÍS, í gæðamálum hjá Arion banka og sem stjórnunarráðgjafi hjá ParX. Hún er með MSc gráðu í alþjóðastjórnun og markaðsfræði frá Copenhagen Business School og er markþjálfi frá Evolvia og VIRKJA.

Eldri viðburðir

Að byggja upp sálrænt öryggi sem virkar

Sálrænt öryggi er hugtak sem flestir stjórnendur þekkja, vita að skiptir máli til að ná árangri en fáir geta svarað hvernig þau vinna með það í sínum teymum.  Þessi fundur snýst um hagnýta nálgun á sálrænu öryggi og fjallar ekki aðeins um hvað það er heldur einnig hvernig stjórnendur geta unnið markvisst að því að byggja það upp og viðhalda í teymum. 

Uppbygging fundarins:

 
Jarðvegurinn - Sálrænt öryggi á mannamáli
Kristrún opnar fundinn með stuttum inngangi byggðu á rannsóknum og hennar reynslu af teymisvinnu úr ólíkum geirum. Við köfum undir yfirborðið og skoðum hvað er að gerast innra með fólki þegar við upplifum ekki öryggi og lyftum upp allri þeirri ósýnilegu sóun sem verður í kjölfarið.
 
Samtölin sem skipta máli - Panel með ólíkum stjórnendum
Síðan setjumst við niður með leiðtogum úr ólíkum geirum og sækjum reynslu og raunveruleg dæmi. Hvað virkar og hvað virkar ekki.  Við fáum með okkur þau Jóhannes Þorleiksson, framkvæmdastjóra Upplýsingagreindar og tækni hjá Landsneti, Gunni Líf Gunnarsdóttur sem er fyrirlesari, kennir á Bifröst og fyrrverandi framkvæmdastjóri mannauðsmála og reksturs hjá Samkaup, Guðríði Hjördísi Baldursdóttur vörustjóra mannauðslausna hjá Advania og Ástu Þöll deildarstjóra vefdeildar á Þjónustu og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. 
 
Hér förum við beint inn í óþægileg samtöl og spyrjum m.a.:
  • Hvaða merki hefur þú séð frá þínum teymum um að sálrænt öryggi sé lágt?
  • Nefndu dæmi um það sem hefur raunverulega virkað til að byggja upp öryggi?
  • Hvaða mistök hefurðu gert sem þú myndir ekki endurtaka?
 
Inn í okkar raunveruleika - Samræður og næstu skref
Að lokum tökum við öll samtalið og speglum inn í okkar eigin raunveruleika. Skoðum okkar næstu skref og hvað okkur vantar til þess að þora inn í þau óþægilegu samtöl.

 

Hvað tekurðu með þér?
✓ Betri skilning á hvernig lítið sálrænt öryggi birtist í þínu teymi
✓ Raunveruleg dæmi frá öðrum leiðtogum
✓ Fyrstu skrefin sem þú getur stigið - strax í dag
✓ Trú á það að þetta er eitthvað sem við getum raunverulega breytt
 
Við búumst við líflegum, heiðarlegum og óþægilegum umræðum um efni sem við fáum sjaldnast að ræða upphátt.
Hlökkum til að sjá ykkur! 
 
 
Kristrún Anna Konráðsdóttir leiðir viðburðinn í samvinnu við faghóp um leiðtogafærni hjá Stjórnvísi. 
Hún er teymisþjálfi sem brennur fyrir því að styðja teymi í að taka óþægileg samtöl.
Kristrún er vottaður teymisþjálfi, og PCC vottaður markþjálfi. Hún er Fearless Organization Practitioner og sérhæfir sig í sálrænu öryggi teyma. Hún er einnig Inner Development Goals Ambassador og er heilluð af því hvernig allar breytingar byrja innra með okkur. kristrunanna.com
 
Vinnustofan verður haldin í stofu 217 í Opna Háskólanum í HR sem hefur aðsetur á 2. hæð í Mars álmu Háskólans í Reykjavík.
 
Opni háskólinn hefur mikla reynslu af skapandi námskeiðishaldi fyrir þá sem vilja efla sig í starfi og bjóða upp á frábært umhverfi og aðstöðu fyrir slíka vinnu og við erum þakklát fyrir samstarfið við þau og að geta tekið á móti ykkur þar. 
 

Working with the Technology of the Body: Integrating Physical Intelligence into Coaching Practice

Faghópur markþjálfunar vekur athygli á vinnustofu á vegum ICF Iceland félagi markþjálfa á Íslandi.

ICF Iceland hefur ákveðið að veita félagsmönnum Stjórnvísi 10% afslátt af vinnustofunni

Skráning hér 

Þann 14. mars kemur Dr. Claire Dale, PCC markþjálfi og stofnandi The Physical Intelligence® Institute, til Íslands og leiðir hálfs dags verklega vinnustofu um hvernig líkaminn getur orðið eitt áhrifamesta verkfærið í þegar unnið er með fólki að árangri og vexti.

 

Claire hefur yfir 20 ára reynslu á sviði leiðtogaþjálfunar og hefur starfað með alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Google, Shell og JP Morgan. Hún kemur nú í fyrsta sinn til Íslands.

 

Á vinnustofunni skoðum við hvernig hægt er að vinna markvisst með:

• sjálfstraust og innra öryggi
• mótstöðu og óvissu
• ákvarðanatöku og skýrleika
• og hvernig festa má nýja hegðun í sessi

Rannsóknir í embodied neuroscience sýna að breytingar verða dýpri og varanlegri þegar líkaminn er hluti af vinnunni en hún einskorðast ekki bara við hugsun og greiningu.

 

Þú færð hagnýt verkfæri sem þú getur notað strax í þínum samtölum, hvort sem þau fela í sér markþjálfun eða annars konar vinnu með fólki.

Skráning hér

 

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Athugið nýr Teams linkur hér fyrir neðan

 

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Verkefni stjórnenda og starfsfólks sem starfa við mannauðsstjórnun eru mjög fjölbreytt eftir stærð og gerð þeirra fyrirtækja og stofnana sem starfað er í. Mjög stór hluti af verkefnum mannauðs er stuðningur af ýmsu tagi við stjórnendur og starfsfólk.

Oft þarf að meta eftir eðli samtala hvort viðkomandi aðili þarf að fá ráðleggingu, hlustun eða leiðbeiningar. Til þess að geta komist sem best á móts við þarfir stjórnenda þarf mannauðsaðilinn að geta hlustað og skilið hvað verið er að biðja um.

Eitt af aðal einkennum markþjálfunar er að hlusta og heyra hvað er sagt og ekki bara á þau orð sem sögð eru, heldur líka þau sem ekki eru sögð og hvernig líkamstjáning er notuð. Kynnt verður 3 stig hlustunar og farið verður yfir þann ávinning sem stjórnendur og þeir sem starfa í mannauðsmálefni geta fengið með því nýta sér hlustun á öllum þremur stigunum.

 

Fyrirlesari:

Anna María hefur innsýn í fjölbreytt fyrirtækjaumhverfi bæði hérlendis og erlendis, þar sem hún hefur starfað sem mannauðsstjóri í yfir 20 ár hjá fyrirtækjum í ýmsum greinum atvinnulífsins, rekið eigið fyrirtæki með stjórnendaþjálfun, námskeið og fyrirlestra m.a. tengda verkfærum markþjálfunar. Hún starfar nú sem mannauðsráðgjafi hjá 2.stærsta sveitarfélagi landsins Kópavogsbæ, þar sem hún sinnir m.a. Verkefnastjórnun í innleiðingum ásamt ráðgjöf og aðstoð stjórnenda við ýmis mannauðsmálefni. Frá því Anna María lærði Markþjálfun árið 2006 hefur hún nýtt sér aðferðafræðina í starfi, er með virka PCC vottun frá alþjóðasamtökum ICF. Hún er jafnframt ein af stofnendum ICF Ísland, þar sem Anna María gegndi m.a. bæði varamennsku og formennsku félagsins ásamt því að hafa setið í stjórn ICF Norge. Anna María er með executive MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Áhugamál Önnu Maríu er almenn útivist og þá helst: fjallgöngur, fjallahjól, blómarækt, fluguveiði og skíði.

Fundarstaður og tími: Bæjarskrifstofur Kópavogs Digranesvegi 1. Fimmtudaginn 12.mars Kl.9:00-10:00, fundarherbergi Holtið og á Teams.

Linkur á teams fund

Microsoft Teams meeting

Join: https://teams.microsoft.com/meet/35465157159857?p=eSbloh7Bcl0twPDprk

Meeting ID: 354 651 571 598 57

Passcode: Xt2qf67M

Að missa klefann

Að missa klefann

Hvað geta stjórnendur gert til að tryggja hann?

Það er margt líkt með fótboltaliði og fyrirtæki. Á báðum stöðum þarf að velja leikmenn í liðið og þar með setja aðra til hliðar, það er þörf á hvatningu, halda þarf uppi aga, byggja upp góða liðsheild, erfiðar ákvarðanir eru teknar, gæta þarf að orðspori og þannig mætti halda áfram. Hvaða lærdóm geta fyrirtækin dregið af aðferðafræðinni í heimi fótboltans?

 

Fyrirlesari: Ólafur Helgi Kristjánsson er best þekktur fyrir störf sín sem þjálfari knattspyrnuliða í meistaraflokki karla, hér heima og í Danmörku og nú síðast sem aðstoðarþjálfari kvennalandliðsins í fótbolta. Hann er vel menntaður þjálfari með UEFA Pro Licence réttindi.

 

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Lýsis að Fiskislóð 5-9 en að auki verður honum streymt.

Linkur á streymi hér

Frestað til 4 mars - Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Frestað 

Linkur á fund hér

Hvernig markþjálfun getur nýst í mannauðsstjórnun

Nánari upplýsingar síðar.

Fyrirlesari:

Anna María hefur innsýn í fjölbreytt fyrirtækjaumhverfi bæði hérlendis og erlendis, þar sem hún hefur starfað sem mannauðsstjóri í yfir 20 ár hjá fyrirtækjum í ýmsum greinum atvinnulífsins, rekið eigið fyrirtæki með stjórnendaþjálfun, námskeið og fyrirlestra m.a. tengda verkfærum markþjálfunar. Hún starfar nú sem mannauðsráðgjafi hjá 2.stærsta sveitarfélagi landsins Kópavogsbæ, þar sem hún sinnir m.a. Verkefnastjórnun í innleiðingum ásamt ráðgjöf og aðstoð stjórnenda við ýmis mannauðsmálefni. Frá því Anna María lærði Markþjálfun árið 2006 hefur hún nýtt sér aðferðafræðina í starfi, er með virka PCC vottun frá alþjóðasamtökum ICF. Hún er jafnframt ein af stofnendum ICF Ísland, þar sem Anna María gegndi m.a. bæði varamennsku og formennsku félagsins ásamt því að hafa setið í stjórn ICF Norge. Anna María er með executive MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Áhugamál Önnu Maríu er almenn útivist og þá helst: fjallgöngur, fjallahjól, blómarækt, fluguveiði og skíði.

Linkur á teams fund hér

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?