Salur í Guðmundarlundi, Skógræktarfélag Kópavogs, Leiðarendi 1, 203 Kópavogur
Leiðtogafærni,
Til að vera leiðtogar í okkar lífi og leiða aðra þurfum við fyrst að dýpka eigin sjálfsvitund. Að þekkja okkar gildi og lifa í samræmi við þau daglega er fyrsta skrefið á þeirri vegferð.
Á þessari vinnustofu veita Bryndís og Lára Kristín þátttakendum tækifæri til að kortleggja eigin kjarnagildi og íhuga hvernig þeir geta lifað meira í samræmi við þau. Kjarnagildi þjónandi leiðtoga verða kynnt og þar geta þátttakendur sótt innblástur til frekari vaxtar ef það höfðar til þeirra. Samhliða þessari vinnu kjörnum við okkur og tengjumst okkar ásetning í gegnum stuttar leiddar hugleiðslur. Tilvalinn tímapunktur í upphafi árs til að rýna í innri vinnu leiðtogans.
Þessi vinnustofa er fyrir alla sem vilja fá innsýn í þjónandi forystu og leggja meiri áherslu á hvernig við getum lifað í takt við okkar eigin gildi í lífi og starfi.
ATH. Vinnustofan hefst á núvitundargöngu og leik í náttúrunni í Guðmundarlundi til að jarðtengja okkur fyrir vinnustofuna. Mætið því vel búin og tímanlega.
Hvað annað þarftu að taka með? Stílabók, penna og opinn hug.
Bryndís Skarphéðinsdóttir er með bakgrunn í alþjóðlegum lífsstíls-og heilsufræðum og fór í MSc nám í vinnusálfræði, eftir að hafa stundað hugleiðslu-og jóga nidra kennaranám á Indlandi. Síðustu ár hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, innan Norræna tengslanets um nám fullorðinna og í Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Bryndís er útskrifaður markþjálfi frá VIRKJA og hugleiðslukennari frá Yoga Essence á Indlandi.
Lára Kristín Skúladóttir er sjálfstætt starfandi lóðs og leiðtogaþjálfi en starfaði áður sem stjórnunarráðgjafi, markþjálfi og Lean sérfræðingur hjá VÍS, í gæðamálum hjá Arion banka og sem stjórnunarráðgjafi hjá ParX. Hún er með MSc gráðu í alþjóðastjórnun og markaðsfræði frá Copenhagen Business School og er markþjálfi frá Evolvia og VIRKJA.