Nasdaq Ísland Laugavegur 182, 105 Reykjavík, Ísland
Góðir stjórnarhættir ,
Faghópur Stjórnvísi um góða stjórnarhætti boðar til viðburðar 3. desember þar sem fjallað verður um nýja, 7. útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, alþjóðlega þróun á sviði stjórnarhátta og helstu áskoranir sem stjórnir, stjórnendur og eigendur standa frammi fyrir.
Lísbet Sigurðardóttir, Viðskiptaráði Íslands, verður meginfyrirlesari viðburðarins. Hún mun kynna 7. útgáfu leiðbeininganna, helstu breytingar frá fyrri útgáfu, forsendur endurskoðunarinnar og hvað breytingarnar þýða fyrir stjórnir, stjórnendur og aðra sem koma að stjórnarháttum fyrirtækja.
Í framhaldi verður Jeffrey Benjamin Sussman með stutt innlegg þar fjallar um þróun viðmiða og áskoranir á alþjóðavísu og ný alþjóðleg viðmið um stjórnarhætti opinbera aðila.
Einnig verður Harpa Jónsdóttir framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) með innlegg þar sem sjónum verður beint að sjónarhorni langtímafjárfestis og hluthafa, meðal annars ábyrgð hluthafa, tilnefningarnefndum og stjórnarháttum í framkvæmd.
Í lokin verður opnað fyrir spurningar og umræður úr sal og streymi.
Dagskrá
Lísbet Sigurðardóttir, Viðskiptaráði Íslands 7. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja – helstu breytingar og áherslur
Jeffrey Benjamin Sussman: Samanburður við erlend viðmið um stjórnarhætti fyrirtækja, ný grunnviðmið IFAC um stjórnarhætti opinbera aðila, þróun og áskoranir á alþjóðavísu.
Harpa Jónsdóttir framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR): Sjónarhorn langtímafjárfestis – tilnefningarnefndir, ábyrgð hluthafa og stjórnarhættir í framkvæmd.
Fyrirspurnir og umræður
Spurningar úr sal og streymi
Viðburðurinn verður haldinn hjá Nasdaq Iceland og jafnframt í streymi.