Viðburður sem fjallar um nýjar kröfur til stjórnarhátta, gagnsæis og upplýsingagjafar. Viðburðurinn tengir saman alþjóðlega þróun og íslenskan veruleika, stöðu mála hér á landi og helstu áskoranir íslenskra skipulagheilda. Fjallað verður um stefnubreytingu ESB í kjölfar viðamikilla breytinga á áður boðuðum kröfum um reikningsskil sjálfbærni (CSRD post-Omnibus) og um mikilvægi staðfestra stjórnendaupplýsinga. Samþættir stjórnarhættir og gagnsæi verða nú grunninnviður trausts. Áherslan færist frá staðlafylgni yfir í samhæfða, virðisdrifna frásögn í þeim árlegu reikningsskilum sem stjórn staðfestir.
Aðalerindi fundarins flytur Tjeerd Krumpelman frá Grant Thornton Impact House í Hollandi, einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði samþættra stjórnarhátta. Jeffrey Benjamin Sussman frá Kontra Nordic mun því næst fara yfir helstu breytingar á tilskipunum, lögum og stöðlum í samhengi við niðurstöður rannsóknarverkefnis um stöðu mála hér á landi. Að lokum mun Sigurður Hjalti Kristjánsson frá Intenta draga fram reynslu úr ráðgjöf við íslenskar skipulagheildir og fjalla um hvað þarf að styrkja í framkvæmd til að mæta vaxandi kröfum um stjórnarhætti, gagnsæi og staðfesta upplýsingagjöf.
Viðburðurinn, sem er á vegum faghóps Stjórnvísi um stjórnarhætti, er hluti af ráðstefnunni Viðskipti og vísindi við Háskóla Íslands og fer fram í Háskólatorgi (HT-102). Hægt verður að fylgjast með fundinum á Teams.