Project Portfolio Management

Eimskip býður í spjall um stýringu verkefnaskráa.

Kristján Þór Hallbjörnsson og Guðmunda Kristjánsdóttir fjalla um þær áskoranir sem Upplýsingatæknisvið Eimskips stóð frammi fyrir í stýringu verkefnaskrár.
Sagt verður frá reynslu við innleiðingu hugbúnaðar, breyttu hugarfari, hverju átti að ná fram og hver staðan er í dag.

Margir standa gagnvart svipuðum áskorunum og viðstaddir hvattir til að deila sinni reynslu í kjölfar kynningar.

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Kaffi og kafað á dýptina

Faghópar Stjórnvísi um gæðastjórnun og verkefnastjórnun ásamt Verkefnastjórnunarfélagi Íslands (VSF) bjóða til sameiginlegs Kaffis og kafað á dýptina – lifandi morgunfundar þar sem við ætlum að skoða snertifleti gæðastjórnunar og verkefnastjórnunar. Verkefna- og gæðastjórnun eiga margt sameiginlegt, umbætur verða að verkefnum, verkefni þurfa skýr markmið og eftirfylgni, áhættur þarf að greina og stýra og lærdómur skilar litlu ef hann kemst ekki aftur inn í starfsemina.

En hvernig gerum við þetta vel í praktík?

Við ætlum ekki að eyða morgninum í langa fyrirlestra heldur kafa beint í samtalið. Sett verða upp umræðuborð með mismunandi viðfangsefnum þar sem þátttakendur velja sér það sem þeir hafa mestan áhuga á að ræða.

Umræðuefni gætu meðal annars verið:

  • Umbótaverkefni – hvernig förum við frá góðri hugmynd yfir í raunverulegan og varanlegan árangur?
  • Áhættustjórnun – hvað geta verkefnastjórnun og gæðastjórnun lært hvor af annarri?
  • Lærdómur og þekking – hvernig tryggjum við að reynsla úr verkefnum nýtist í næsta verkefni og daglegum rekstri?
  • Ferlar og verkefni – hvar tekur annað við af hinu og hvernig tryggjum við gott samspil?
  • Mælingar og árangur – erum við að mæla það sem raunverulega skiptir máli?
  • Fólkið, breytingar og innleiðing – hvernig tryggjum við að umbætur og verkefni lifi áfram eftir að verkefninu lýkur?

Og kannski kemur besta umræðuefnið frá þátttakendum sjálfum!

Á hverju borði verður umræðustjórnandi sem heldur utan um samtalið, en áherslan er á reynslu, spurningar, áskoranir og hugmyndir þátttakenda. Gert verður ráð fyrir að fólk geti fært sig á milli borða og þannig kafað ofan í fleiri en eitt viðfangsefni.

Í lokin tökum við stutta sameiginlega samantekt og deilum helstu lærdómum og hugmyndum frá borðunum – svo allir fari heim með aðeins meira í farteskinu en þeir komu með.

☕ Og auðvitað verða kaffi og kleinur með þessu öllu saman.

Komdu með áskorun, reynslusögu eða bara forvitni. Markmiðið er að læra hvert af öðru, tengja saman fagheima og ræða það sem virkar – og það sem mætti virka betur.

Hlökkum til að kafa á dýptina með ykkur!

Staðsetning fundarins er Engjateigur 9, kjallari

Margfaldaðu afköstin með hjálp gervigreindar

Hvað ef þú gætir falið gervigreind verkefni, tengt hana við gögnin þín og látið hana aðstoða þig við vinnuna frá upphafi til enda?

Á þessum hagnýta og líflega fyrirlestri sýnir Stefán Atli Rúnarsson hvernig gervigreind er að þróast úr spjallmenni sem svarar spurningum yfir í stafrænan samstarfsmann sem getur unnið verkefni í mörgum skrefum.

Með lifandi sýnikennslu og dæmum úr daglegu starfi verður farið yfir hvernig má breyta tölvupóstum í forgangsraðað verkefnayfirlit og svör, vinna úr skjölum og töflum, túlka myndir og undirbúa fundi. Einnig verður sýnt hvernig tengingar við tölvupóst, dagatal og önnur verkfæri geta gert gervigreind að enn öflugri aðstoðarmanni.

Þátttakendur fá innsýn í gervigreindarfulltrúa sem geta framkvæmt verkefni í vöfrum og hugbúnaði og sinnt eftirfylgni milli samtala. Jafnframt verður fjallað um skýr fyrirmæli, aðgang að gögnum og hvenær mannlegt mat og samþykki þurfa að koma til. Markmiðið er að hver þátttakandi fari heim með skýra hugmynd að einu endurteknu verkefni sem hægt er að byrja að einfalda með gervigreind strax næsta dag.

Fyrirlesturinn hentar stjórnendum, verkefnastjórum og öllum þeim sem vilja spara tíma, einfalda vinnuna og nýta gervigreind markvissar í sínu starfi.

Erindið er haldið í Innvoation House, Eiðistorgi á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 12. nóvember 2026, en einnig er í boði að mæta á streymi í gegnum fjarfund á Teams (sjá tengil hér neðst). Til að finna salinn er gengið inn á Eiðistorg við hliðina á Hagkaup, þaðan upp á 2.hæð. Beint á móti Bókasafni Seltjarnarness er opin hurð upp á 3.hæð og þar verður fundurinn.


Um fyrirlesarann
Stefán Atli Rúnarsson er fyrirlesari og ráðgjafi sem sérhæfir sig í hagnýtri notkun gervigreindar. Hann hefur kennt þúsundum Íslendinga að nýta gervigreind og haldið námskeið og fyrirlestra fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki og stofnanir. Stefán er menntaður viðskiptafræðingur með bakgrunn í markaðsmálum, tækni og miðlun. Hann leggur sérstaka áherslu á að gera gervigreind aðgengilega, skemmtilega og umfram allt gagnlega í daglegu starfi.

Nánari upplýsingar: https://chatgptnamskeid.is

Tengill á fjarfund/streymi:

https://teams.microsoft.com/meet/3571089139419502?p=ildKftOVRrIQTWG1MV

Eldri viðburðir

Aðalfundur faghóps um verkefnastjórnun

Aðalfundur faghópsins Verkefnastjórnun, fyrir árið 2026, verður haldinn 28. apríl kl. 12.00-13:00.
Þetta verður fjarfundur en þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið gisli.rafn.gudmundsson@fsre.is

Við veljum athygli á því að það er laus ein staða í okkar níu manna stjórn. Auk þess auglýsum við eftir áhugasömum sem vilja taka að sér formennsku og varaformennsku. Stjórn faghóps um verkefnastjórnun sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins. Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á formann faghópsins á netfangið gisli.rafn.gudmundsson@fsre.is með upplýsingum um sig og ástæðum þess að viðkomandi gefur kost á sér í stjórn faghópsins. 

Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Verkefnstjórnun

  • Framsaga formanns - um starf ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
  • Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
  • Önnur mál

---

F.h. faghópsins
Gísli Rafn Guðmundsson

Viðskiptastefna framkvæmd sem fasteigna- og uppbyggingaráætlun

*English below

Við bjóðum ykkur velkomin á næsta fræðslufund faghóps Stjórnvísi um verkefnastjórnun, sem verður haldinn þriðjudaginn 10. mars, bæði á Teams og í húsakynnum Isavia, Dalshrauni 3 (1. hæð) í Hafnarfirði. Umfjöllunarefnið eru tengsl viðskiptastefnu Isavia á Keflavíkurflugvelli við fasteigna- og uppbyggingaráætlun flugvallarasvæðisins. Fyrirlesarar eru þeir Brynjar Vatnsdal, forstöðumaður þróunar hjá Isavia ohf. og James Forsey, ráðgjafi hjá Mace group. 

 

Dagskrá:

Húsið opnar kl. 8:30, boðið verður upp á kaffi og léttan morgunverð.

Klukkan 9-10 verður síðan eftirfarandi dagskrá:

  1. Opnun og kynning á faghópi verkefnastjórnunar hjá Stjórnvísi (Gísli Rafn Guðmundsson)
  2. Kynning á þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar (Brynjar Vatnsdal)
  3. Framkvæmd viðskiptastefnu í fasteigna- og uppbyggingaráætlun (James Forsey) 
  4. Yfirlit yfir verkfæri verkefnastjórnunar og forgangsröðunarlíkan fjárfestingarverkefna (James Forsey)
  5. Spurningar og umræður

Athugið að hluti erindanna fer fram á ensku. 

Linkur á Teams:

https://teams.microsoft.com/meet/38996838712076?p=sLDeYVwLumHArlYetR 

 

English:

We are pleased to invite you to the next seminar of the Project Management Group at Stjórnvísi, which will be held on Tuesday, March 10, both on Teams and at Isavia’s premises at Dalshraun 3, first floor in Hafnarfjörður.

The session will focus on the connection between Isavia’s business strategy at Keflavík Airport and the airport area’s real estate and infrastructure development plan.

Speakers will be Brynjar Vatnsdal, Director of Development at Isavia ohf., and James Forsey, Associate Director and Consultant at Mace Group. 

Agenda 

The venue opens at 8:30 a.m., with coffee and a light breakfast served.

From 9:00–10:00 a.m., the program will be as follows:

  1. Opening remarks and introduction to the Project Management Special Interest Group at Stjórnvísi (Gísli Rafn Guðmundsson)

  2. Presentation of the Keflavík Airport development and Masterplan (Brynjar Vatnsdal)

  3. Implementation of the business strategy within the development plan (James Forsey)

  4. Overview of project management tools and the investment project prioritization/affordability model (James Forsey)

  5. Questions and discussion

Please note that part of the presentations will be delivered in English.

Teams link:

https://teams.microsoft.com/meet/38996838712076?p=sLDeYVwLumHArlYetR

Gervigreind í verkefnastjórnun: Ávinningur og framtíðarsýn

Fyrirlesari er Bertha María Óladóttir, Tölvunarfræðingur og MSc. í Forystu og verkefnastjórnun.

Bertha mun í erindinu fjalla um gervigreind og verkefnastjórnun en hún lauk á dögunum meistararitgerð sinni við Háskólann á Bifröst. Þar rannsakaði hún ávinning af notkun gervigreindar í verkefnastjórnun og mun hún fjalla um rannsóknina og helstu niðurstöður hennar. Bertha hefur á undanförnum árum starfað sem forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu FiveDegrees. 

Teams linkur á viðburð:

Tengjast fundinum núna

Inngildandi verkefnastjórn, kynslóðabil - eða brú?

Tengill/linkur á fundinn

Í nútíma vinnuumhverfi mætast ólíkar kynslóðir með fjölbreyttar væntingar, vinnulag og gildi. Á þessum viðburði skoðum við hvernig verkefnastjórnun getur nýtt kraftinn sem felst í fjölbreytileikanum — með áherslu á inngildingu, samskipti og skilvirka samvinnu þvert á kynslóðir. 

Um fyrirlesarana:

Anna Steinsen er með BA gráðu í Tómstunda og félagasmálafræði. Hún er einn af eigendum KVAN og hefur síðustu ár haldið fyrirlestra um samskipti, liðsheild, styrkleikamiðaða nálgun, þjónustu og leiðtogafærni. Anna er stjórnarformaður UN women og starfar einnig sem stjórnendamarkþjálfi. Anna mun í erindinu fjalla um kynslóðir og áskoranir og tækifæri fyrir vinnumarkaðinn að vinna saman, ólíkar kynslóðir vinna að sameiginlegum markmiðum.

Irina S. Ogurtsova er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og hefur á undanförnum árum starfað sem mannauðssérfræðingur, þar sem hún hefur sérhæft sig í málefnum starfsfólks af erlendum uppruna og stutt stofnanir og fyrirtæki við að skapa jafnréttisríkari og fjölbreyttari vinnustaði. Hún er jafnframt formaður faghóps um fjölbreytileika og inngildingu, þar sem hún vinnur að því að efla þekkingu og umræðu um þessi málefni og styðja fagfólk við að innleiða inngildandi vinnubrögð í dagleg störf. Í erindi sínu mun Irina fjalla um hvernig inngilding og fjölbreytileiki geta orðið drifkraftur í árangursríkri verkefnastjórnun – hvernig leiðtogar geta nýtt fjölbreytt sjónarhorn til að efla teymisvinnu, nýsköpun og árangur.

Tengill/linkur á fundinn

Innleiðing á Stafrænu Íslandi - væntingastjórnun og samskipti við hagaðila

Fyrsti viðburður faghóps um verkefnastjórnun haustið 2025 verður haldinn á Teams, 4. nóvember kl. 12.00. Þema fundarins er hið stóra stafræna innleiðingarverkefni sem stýrt er af Stafrænu Íslandi - samskipti við hagaðila, hvernig tryggir verkefnastjóri sameiginlegan skilning á verkefninu, upplýsingaflæði og aðlagar mismunandi væntingar hagaðila og annarra þátttakenda í verkefnum.

Fyrirlesari er Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, sem starfar undir fjármála- og efnahagsráðuneytinu og leiðir stafræna umbreytingu opinberrar þjónustu á Íslandi. Hún mun fjalla um innleiðingu á viðfangsefninu, en um er að ræða mjög umfangsmikið verkefni sem margir þekkja af eigin raun sem notendur Ísland.is. Það verður því afar áhugavert að heyra meira um það hvernig Stafrænt Ísland nálgast þessa áskorun, en í lok fundarins mun þátttakendum gefast tækifæri til að spyrja Birnu spurninga.

Um fyrirlesarann:
Birna er tölvunarfræðingur með MBA og diplómu í jákvæðri sálfræði og hefur starfað um árabil í upplýsingatækni, ráðgjöf og stjórnunarstörfum – meðal annars hjá Landsbankanum, Sjóvá, Högum og Össur. Birna hefur lagt mikla áherslu á að nýta tækni til að einfalda líf fólks, bæta þjónustu hins opinbera og auka skilvirkni með samvinnu, trausti og skýrri stefnu. Sem framkvæmdastjóri Stafræns Íslands stýrir hún m.a. þróun Ísland.is og öðrum lykilverkefnum sem miða að því að gera opinbera þjónustu aðgengilegri, notendamiðaðri og öruggari.

Hlekkur á fundinn 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?