Innviðaráðuneyti Sölvhólsgata 7, Reykjavík
Stefnumótun og árangursmat,
Smellið hér til að tengjast fundi.
Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu mun kynna fyrir okkur verkefnið Sjálfbært Ísland sem hleypt var af stokkunum sl. haust.
Hlutverk Sjálfbærs Íslands er m.a. að hraða aðgerðum til að ná markmiðum um sjálfbæra þróun eins og þau birtast í Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og velsældaráherslum ríkisstjórnarinnar. Á vettvangi Sjálfbærs Íslands verður einnig mótuð stefna Íslands um sjálfbæra þróun og unnið að því að réttlát umskipti á öllum sviðum samfélagsins séu leiðarljós í allri stefnumótun og aðgerðum.
Sjá nánar: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/12/01/Sjalfbaert-Island-tekur-til-starfa/