Kirkjusandi 1, 105 Reykjavík Kirkjusandur, Reykjavík, Ísland
Sjálfbær þróun, loftslagsmál og umhverfi,
Faghópur um samfélagsábyrgð hefur verið stofnaður hjá Stjórnvísi. Markmið með starfi hópsins er að miðla þekkingu og reynslu á sviði samfélagsábyrgðar fyrirtækja. Einnig að kynna stefnumótun á þessu sviði, helstu verkfæri sem eru notuð, rannsóknir ofl. Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í Íslandsbanka, 13. september kl. 8.30 til 10.00. Á fundinum verður fjallað um skýrslugerð. Annarsvegar mun Guðný Helga Herbertsdóttir fjalla um skýrslu Íslandsbanka um Global Compact og hinsvegar mun Finnur Sveinsson fjalla um GRI skýrslu Landsbankans.Í stjórn faghópsins sitja Regína Ásvaldsdóttir framkvæmdastjóri Festu, Ketill Berg Magnússon viðskiptasiðfræðingur, Finnur Sveinsson sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum, Guðný Helga Herbertsdóttir upplýsingafulltrúi Íslandsbanka og Magnús Þór Gylfason forstöðumaður samskiptasviðs Landsvirkjunar.