.
Staðsetning viðburðar
Eldri viðburðir
Click here to join the meeting
Skilvirk áhættustjórnun verður sífellt mikilvægari í rekstri fyrirtækja. Kröfur til fyrirtækja og stofnana hafa aukist mikið síðustu ár, meðal annars í tengslum við auknar áherslur í sjálfbærni.
KPMG og Stjórnvísi bjóða til þessa fundar þar sem fjallað verður um áhættustjórnun út frá ýmsum sjónarhornum og kynna leiðir til að greina áhættu í rekstri og ná yfirsýn yfir þá áhættu sem skiptir mestu máli. Með skilvirkri áhættustjórnun geta fyrirtæki og stofnanir lækkað kostnað og náð betri árangri í rekstri.
Dagskrá:
Mikilvægi áhættustjórnunar - hvernig getur tæknin hjálpað okkur?
- Sigurjón Birgir Hákonarson, stafrænar lausnir KPMG
Innleiðing á sjálfbærni í áhættustýringu - Hafþór Ægir Sigurjónsson, forstöðumaður sjálfbærni hjá KPMG
Hvernig nálgast ÁTVR áhættustýringu? - Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR
Fundarstjóri er Helena W. Óladóttir frá sjálfbærniteymi KPMG
Hvar: Borgartúni 27, 8. hæð og í streymi.
Hvenær: 6. desember nk. kl. 9:00. Boðið verður upp á létta morgunhressingu frá kl. 8:30 og svo byrjar fundurinn stundvíslega kl. 9:00.
Gervigreind. Ólíkar sviðsmyndir. London Futurist
Viðburður um þróun gervigreindar, út frá ólíkum sviðsmyndum á vegum London Futurist. Umræða um hugsanlega, trúverðuga, raunverulega og grípandi atburðarrás, þar sem fram kemur nýjustu viðhorf og þekking á þessu sviði. Viðurburðurinn er nokkurs konar vinnustofa. Skráning og nánari upplýsingar er að finna á þessari vefslóð; Creating and exploring AGI scenarios, Sat, Aug 26, 2023, 4:00 PM | Meetup
Gagnsæi, stjórnarhættir og reikningsskil sjálfbærni
Þessi viðburður Stjórnvísi er hluti af viðburðarröð ráðstefnunnar Viðskipti og Vísindi sem haldinn er á vegum Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Um er að ræða staðarfund/-viðburð sem haldinn verður í hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands v/Hagatorg.
Aðal fyrirlesari verður Nancy Kamp Roelands prófessor við Háskólann í Groningen í Hollandi sem er einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði nýrra viðmiða um sjálfbærniupplýsingar, samþættingu upplýsinga og ábyrga stjórnarhætti.
Einnig mun Jeffrey Benjamin Sussman gera grein fyrir niðurstöðum rannsóknar um hvaða áhrif nýjar kröfur um reikningsskil sjálfbærni og óefnislegra virðisþátta munu hafa á upplýsingagjöf stærri skipulagsheilda hér á landi í framtíðinni.
Stjórnandi umræðna í pallborði verður Ágúst Arnórsson.
Góðir stjórnarhættir: Stefnumið og sjálfbærni - ný viðmið, fyrirmyndir og gagnsæi
Áhugaverður viðburður þar sem farið verður yfir breytta lagaumgjörð, viðmið um bestu framkvæmd og fyrirmyndir meðal annars með erlendum fyrirlesara frá Hollandi.
Aðalfyrirlesari verður Simon Theeuwes sem mun fjalla um samþættingu fjárhagslegra og ófjárhagslegra upplýsinga, auknar kröfur um sjálfbærni upplýsingar og um stefnumiðaða stjórnarhætti. Auk þess mun Bjarni Snæbjörn Jónsson fjalla um innleiðingu stefnumiðaðra stjórnarhátta og Sigurjón Geirsson um breytta lagaumgjörð á þessu sviði og um aukna ábyrgð stjórna.
Staðarfundur - ekki streymi eða upptaka.