Aðalfundur stjórnar faghóps um stjórnun viðskiptaferla (BPM) - fjarfundur

Þau sem hafa áhuga að taka þátt í þessum fjarfundi vinsamlegast sendið tölvupóst á mgudfinnsson@gmail.com til að fá fundarboð með hlekk í Teams fundarboðið.

Dagskrá fundar:

1. Fara yfir viðburði sl. árið

2. Hlutverk stjórnar: Hlutverk formanns, varaformanns og ritara

3. Fyrirkomulag og umgjörð um fundi BPM faghópsins

4. Stutt kynning á stjórnarmeðlimum, bakgrunnur og áhugi á BPM

4. Kosning stjórnar

5. Ræða stjórnarfundi, umgjörð (bókrýnifundir o.fl.) og tíðni ásamt dagskrá fyrir árið framundan 

 

F.h. stjórnar

Magnús Ívar Guðfinnsson, formaður

 

Staðsetning viðburðar

Fréttir af viðburðum

Aðalfundur stjórnar faghóps um stjórnun viðskiptaferla (BPM):

Þann 29.04 var haldinn aðalfundur stjórnar faghóps um stjórnun viðskiptaferla (BPM). Farið var yfir störf faghópsins síðan á síðasta aðalfundi og ný stjórn kjörin. Í stjórnina í ár skipa 11 aðilar víðsvegar að úr atvinnulífinu og af þessum ellefu eru þrír nýir:

Stjórn faghóps Stjórnvísis um stjórnun viðskiptaferla (BPM) árið 2020/2021 :

  • Erla Jóna Einarsdóttir – Marel, formaður
  • Hildur Gylfadóttir – Borgarplast, varaformaður
  • Jón Kolbeinn Guðjónsson – Isavia, ritari
  • Magnús Ívar Guðfinnsson -ANSA
  • Heiða Njóla Guðbrandsdóttir – Icelandair
  • Lísa Vokes-Pierre – Össur
  • Hrafnhildur Birgisdóttir – Landsbankinn
  • Björn Sighvatsson - Marel
  • Ingi Sturla Þórisson – Veitur (Nýr)
  • Aðalsteinn Ingólfsson – Marel (Nýr)
  • Helga Kristjánsdóttir – Isavia (Ný)

Magnús Ívar Guðfinnsson er fráfarandi formaður en hann heldur áfram að starfa í stjórn hópsins. Er honum þakka kærlega fyrir sín störf undanfarin ár. Faghópurinn hefur starfað í sex ár en fyrsti fundur hans var haldinn 11.apríl 2014 og hann telur 295 meðlimi.

Við þökkum líka gömlu stjórninni kærlega fyrir samstarfið síðastliðið ár og nýja stjórn bjóðum við velkomna til starfa.

Tengdir viðburðir

Aðalfundur faghópsins Umbætur og ferlastjórnun

Fundardagskrá:
  • Uppgjör á starfsárinu
  • Kosning stjórnar
  • Kosning formanns
  • Önnur mál

     

Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar sendi tölvupóst á núverandi formann hópsins: hrafnhildur.birgisdottir@landsbankinn.is

Eldri viðburðir

Hver er ávinningurinn með Lean Six Sigma vottun fyrir þig og starfsemina?

Hlekkur á fundinn er hér. Lean Six Sigma er einhver áhrifaríkasta stjórnunaraðferð sem þekkist í að tryggja framþróun í starfseminni með því að koma á jákvæðum breytingum sem miða að bættri skilvirkni og útrýmingu á sóun. ANSA ehf. og NTV Promennt bjóða nú upp á vefnámskeið og vottun í hvíta, gula og græna beltinu í Lean Six Sigma undir yfirskriftinni: Sjáðu tækifærin í umbótum.

Fyrirtæki, ríkisfyrirtæki, opinberar stofnanir og sveitarfélög víða út í heimi starfa samkvæmt þessari útbreiddu aðferð til að ná stórbættum rekstrarárangri. Lean Six Sigma námskeið hafa verið í boði fyrirtækja og háskóla í Evrópu og í Bandaríkjunum um árabil og nú loksins á Íslandi einnig.

Á fundinum sem haldinn er á Teams mun Magnús Ívar segja frá mótun Lean Six Sixma til dagsins í dag auk þess að greina frá ávinningi, umgjörð og innihaldi á Lean Six Sigma námskeiði ANSA ehf. og NTV Promennt.

Teams hlekkur verður sendur til skráðra þátttakenda fyrir fundinn sem haldinn er á Teams 20. mars frá kl. 9.00 til 10.00. 

Frá pöntun til afhendingar: Uppbygging og þróun Wolt á Íslandi

Hlekkur á viðburð.
Á örfáum árum hefur Wolt umbreytt því hvernig við verslum og nálgumst þjónustu. En hvað liggur að baki þessum hraða vexti og hvernig er slíkt rekstrarmódel byggt upp á litlum markaði?

Á viðburðinum fer Jóhann Már Helgason yfir uppbyggingu og þróun Wolt á Íslandi og veitir innsýn í hvernig stafrænn vettvangur tengir saman neytendur, fyrirtæki og sjálfstæða verktaka í einu samhæfðu vistkerfi. Hann fjallar um hvernig viðskiptamódelið hefur þróast í takt við tækninýjungar sem gera mögulegt að afhenda vörur og þjónustu innan við 40 mínútum frá pöntun.

Jóhann ræðir jafnframt hvernig tæknin hefur breytt væntingum neytenda, þar sem hraði, þægindi og aðgengi eru orðin lykilforsendur, og hvernig þessi þróun er að móta bæði verslun, þjónustu og vinnumarkað framtíðarinnar.

 

Jóhann Már Helgason er forstöðumaður Viðskiptaþróunar hjá Wolt og æðsti stjórnandi fyrirtækisins á Íslandi. Hann hefur yfir áratugs reynslu af stjórnun og rekstri og hefur leitt vöxt og markaðsuppbyggingu Wolt á íslenskum markaði.

Jóhann er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hann býr yfir víðtækri reynslu af stefnumótun og uppbyggingu í hratt breytilegu rekstrarumhverfi.

Frá ferlum til fólks: Hönnun nýs spítala

Hvernig verður nýr spítali hannaður með bæði ferla og fólk í huga?
Á viðburðinum skoðum við hvernig samspil starfsfólks, sjúklinga og verkferla getur mótað framtíðarlausnir sem nýtast öllum.

 

Fundurinn er í haldinn á fyrstu hæð í höfuðstöðvum Landsbankans í Reykjastræti 6. 

Boðið verður uppá kaffi og léttar veitingar!

Dulda verksmiðjan – áskoranir og lausnir í að ná bættum árangri í starfseminni

Fundarboð með Teams hlekk verður sent á skráða þátttakendur. 

Á flestum vinnustöðum er „dulda verksmiðjan“ til staðar – öll þau ferli, endurtekningar og falin vinna sem bæta litlu sem engu virði við vinnudaginn okkar. Þessi viðburður gefur innsýn í hvernig við getum auðkennt verkin sem tilheyra þessari duldu verksmiðju sem er í formi sóunar og rætt áskoranir og vandamál sem hún skapar. Kynntar verða leiðir til að auðkenna og draga úr sóun og skapa jákvætt umbótaumhverfi þar einblínt er á virðisaukandi þætti með því að ná yfirsýn yfir verklagið ásamt því að starfa í réttum takti (flæði)  sem hentar starfsmönnum og um leið mætir kröfum viðskiptavinarins.  

 

Fyrirlesarinn – Magnús Ívar Guðfinnsson

Magnús Ívar Guðfinnsson er stofnandi og framkvæmdastjóri ráðgjafar- og þekkingarfyrirtækisins ANSA ehf. Magnús Ívar hefur sérhæft sig í að vinna með fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum í að ná yfirsýn og gera athuganir á verklaginu til að ná bættum árangri i rekstrinum. Samfara ráðgjöf þá kennir hann nemendum í iðnarverkfræði við Háskóla Íslands gæðastjórnun á haustin og straumlínustjórnun á vorönn. Þá kennir Magnús Ívar áfangann árangur í rekstri í Executive MBA-námi á vegum Háskóla Íslands.  

Magnús er með MSc. gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og stundaði hluta námsins við Norwegian School of Management (BI) í Osló. Hann er vottaður BPM Professional og er með svarta beltið í Lean Six Sigma.  

Magnús Ívar býr að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu, úr kennslu og ráðgjöf hjá fyrirtækjum úr flestum greinum atvinnulífsins við að ná framúrskarandi árangri í framleiðslu og þjónustu.

Hvernig vinna LEAN og HSE saman?

Í framleiðslu JBT Marel er töluvert unnið með LEAN fræði í framleiðslunni. Lilja Birgisdóttir (HSE/ÖHU Manager) hjá JBT Marel mun fræða okkur um hvernig HSE (ÖHU) og LEAN vinna saman, kosti þess og galla.

Boðið verður upp á morgunhressingu fyrir kynninguna kl. 08:30.  Eftir kynningu verður gestum boðið upp á fræðslu og útsýningshring á svölunum þar sem hægt verður að horfa yfir framleiðsluna.

Kynningin verður tekin upp en við vonumst til að sjá sem flesta á staðnum.

Hér er linkur á kynninguna. Join the meeting now

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?