"Digital Detox“ – þarft þú eða vinnustaðurinn þinn á minni skjánotkun að halda?
Gígja Sunneva Bjarnadóttir, MSc í heilsusálfræði og stafrænum inngripum, sem er heilsuráðgjafi hjá Greenfit mun fjalla um áhrif skjánotkunar á dópamín og athygli, ásamt því hvernig við getum nýtt hegðunarvísindi til að draga úr skjánotkun.
Helena Jónsdóttir, sálfræðingur og stofnandi Mental ráðgjafar, mun fjalla um hvernig snjallvæðing, stöðugt áreiti og truflanir birtast í daglegu vinnulífi og hvaða áhrif það hefur á streitu, viðveru, samskipti, endurheimt og afköst.
Í erindinu verður sjónum beint að tengslum stafræns álags við sálfélagslega áhættu og geðheilbrigði á vinnustað og rætt hvaða kerfisbundnu aðgerðir vinnustaðir og stjórnendur geta gripið til, umfram einstaklingsbundin ráð, til að styðja við velllíðan, jafnvægi og sjálfbært vinnuumhverfi.
Fundarstjóri er Ingibjörg Loftsdóttir, formaður faghóps um heilsueflandi vinnuumhverfi og varaformaður Stjórnvísi.