Hlutverk innri endurskoðenda í fyrirtækjum og árangursríkt samstaf við gæðastjóra.

Fundurinn er haldinn í samstarfi Stjórnvísis og Félags um innri endurskoðun.

Framsögumenn:

Guðmundur Bergþórsson, innri endurskoðandi.

Ingigerður Guðmundsdóttir, gæðastjóri hjá Sjóvá.

Staðsetning viðburðar

Fréttir af viðburðum

Hlutverk innri endurskoðenda í fyrirtækjum og árangursríkt samstarf við gæðastjóra.

Sjóvá bauð Stjórnvísifélögum heim í morgun á áhugaverðan fund sem var haldinn í samstarfi faghóps um gæðastjórnun og ISO staðla hjá Stjórnvísi og Félags um innri endurskoðun.  Framsögumenn voru þau Guðmundur Bergþórsson, innri endurskoðandi og Ingigerður Guðmundsdóttir, gæðastjóri hjá Sjóvá.

Guðmundur kynnti örstutt Félag um innri endurskoðun en það er fagfélag endurskoðenda og eru í því 100 félagar.  Þar eru faghópar um fjármál og upplýsingaöryggi og er félagið aðili að alþjóðlegu félagi innri endurskoðenda. Fagið varð til 1946 í Bandaríkjunum og hefur breiðst út um heiminn.  Guðmundur situr í alþjóðlegri fræðslunefnd sem tengir félagið saman.  Fagið er ekki vísindagrein en er byggt upp á ákveðnu greinum.  Starfið snýr að öllum þáttum í fyrirtækjum.  Meginmarkmið innri endurskoðenda er aukin skilvirkni og hagkvæmni.   

Kostnaður er ekki einungis útlagður kostnaður heldur einnig umhverfisþættir o.fl.  En hvert er hlutverk innri endurskoðenda í fyrirtækjum.  Innri endurskoðun fer fram í margvíslegu lagaumhverfi og menningarheimum, hjá fyrirtæjum sem hafa mismunandi tilgang og eru breytileg að stærð, uppbyggingu og flækjustigi og hún er unnin af einstaklingum innan eða utan fyrirtækis.  Staðfestingarvinna felur í sér hlutlægt mat innri endurskoðandans á gögnum til þess að gefa álit eða niðurstöður um rekstrareiningu, rekstur, starfsemi, ferli kerfi eða aðra efnisþætti.  Almennt koma þrír aðilar að staðfestingarvinnu: 1. einstaklingurinn eða hópurinn sem tengist með beinum hætti rekstrareiningunni, rekstrinum, starfseminni, ferlinu, kerfinu eða öðrum efnisatriðum – ferlaeigandinn 2. Einstaklingurinn eða hópurinn sem vinnur matið – innri endurskoðandinn og 3. Einstaklingurinn eða hópurinn sem nýtir sér matið notandinn.  Endurskoðunarferillinn er samvinna og samtal við hagsmunaaðila.  Mikilvægt er að fá alla með og að allir skilji.  Einnig að allir megi segja hlutina eins og þeir eru.    

 

Ingigerður Guðmundsdóttir gæðastjóri Sjóvá fór yfir stjórnkerfi félagsins sem er virkt stjórnkerfi.  Vinnubrögð hjá Sjóvá eru bæði öguð og samræmd. Sjóvá er með vottun skv. ISO27001 um upplýsingaöryggi frá árinu 2013 og jafnlaunavottun frá árinu 2014.  Reglulegt eftirlit er með afkomu og þjónustu einstakra sviða, innri úttektir eru framkvæmdar reglulega, innra eftirlit er innbyggt í verkferlana og verkskipting og ábyrgð er skýr. 

Sjóvá heldur skrá yfir kvartanir, ábendingar, hrós og frávik.  Í framhaldi er greint, metið og fundnar leiðir til að stýra áhættum ef mögulegt er.  Sífellt er verið að horfa á hvar megi bæta ferla.  Þegar koma áhættur eru búnar til úrbætur.  Í dag eru 20 innri úttektaraðilar hjá Sjóvá sem finnst verkefnið áhugavert og kynnast í leið störfum annarra.  Úttektir eru 2svar á ári og við það eykst áhuginn á gæðakerfinu sjálfu.  Innri endurskoðandi er ráðinn af stjórn og hefur endurskoðunarnefnd eftirlit með störfum hans.  Endurskoðunaráætlun er samþykkt af nefndinni.  Innri úttektaráætlun byggir á áætlun endurskoðanda og eru niðurstöður kynntar.  Innri endurskoðandi hefur óskertan aðgang að gögnum og starfsfólki félagsins. 

Forstjóri tryggir að innra og ytra eftirlit fái forgang og framkvæmdastjórar bregðast hratt við ábendingum.  Endurskoðunarnefnd fær stöðuyfirlit að minnsta kosti tvisvar á ári.  Áhættu-og öryggisnefnd fjallar um álitamál og stöðu innra eftirlitskerfis. 

Gott samstarf innri endurskoðanda og gæðastjóra bætir yfirsýn, eykur skilning allra aðila, umbætur verða hraðari, meiri skilvirkni og minni líkur að margir séu að vinna sama verkefnið, stærri hluti stjórnkerfisins er tekinn út á hverju tímabili, þetta sparar tíma og peninga, styttir boðleiðir og gríðarleg þjálfun og fræðsla á sér stað milli aðila. 

 

Tengdir viðburðir

Kaffi og kafað á dýptina

Faghópur Stjórnvísi um gæðastjórnun ásamt Verkefnastjórnunarfélagi Íslands (VSF) bjóða til sameiginlegs Kaffis og kafað á dýptina – lifandi morgunfundar þar sem við ætlum að skoða snertifleti gæðastjórnunar og verkefnastjórnunar. Verkefna- og gæðastjórnun eiga margt sameiginlegt, umbætur verða að verkefnum, verkefni þurfa skýr markmið og eftirfylgni, áhættur þarf að greina og stýra og lærdómur skilar litlu ef hann kemst ekki aftur inn í starfsemina.

En hvernig gerum við þetta vel í praktík?

Við ætlum ekki að eyða morgninum í langa fyrirlestra heldur kafa beint í samtalið. Sett verða upp umræðuborð með mismunandi viðfangsefnum þar sem þátttakendur velja sér það sem þeir hafa mestan áhuga á að ræða.

Umræðuefni gætu meðal annars verið:

  • Umbótaverkefni – hvernig förum við frá góðri hugmynd yfir í raunverulegan og varanlegan árangur?
  • Áhættustjórnun – hvað geta verkefnastjórnun og gæðastjórnun lært hvor af annarri?
  • Lærdómur og þekking – hvernig tryggjum við að reynsla úr verkefnum nýtist í næsta verkefni og daglegum rekstri?
  • Ferlar og verkefni – hvar tekur annað við af hinu og hvernig tryggjum við gott samspil?
  • Mælingar og árangur – erum við að mæla það sem raunverulega skiptir máli?
  • Fólkið, breytingar og innleiðing – hvernig tryggjum við að umbætur og verkefni lifi áfram eftir að verkefninu lýkur?

Og kannski kemur besta umræðuefnið frá þátttakendum sjálfum!

Á hverju borði verður umræðustjórnandi sem heldur utan um samtalið, en áherslan er á reynslu, spurningar, áskoranir og hugmyndir þátttakenda. Gert verður ráð fyrir að fólk geti fært sig á milli borða og þannig kafað ofan í fleiri en eitt viðfangsefni.

Í lokin tökum við stutta sameiginlega samantekt og deilum helstu lærdómum og hugmyndum frá borðunum – svo allir fari heim með aðeins meira í farteskinu en þeir komu með.

☕ Og auðvitað verða kaffi og kleinur með þessu öllu saman.

Komdu með áskorun, reynslusögu eða bara forvitni. Markmiðið er að læra hvert af öðru, tengja saman fagheima og ræða það sem virkar – og það sem mætti virka betur.

Hlökkum til að kafa á dýptina með ykkur!

Staðsetning fundarins er Engjateigur 9, kjallari

Eldri viðburðir

Rýni stjórnenda. Bestu leiðir til árangurs.

Hlekkur á fundinn
Hvað þarf til að rýni stjórnenda skili skýrum niðurstöðum og umbótum? Hvernig fáum við

stjórnendur til að taka virkan þátt og fylgja ákvörðunum eftir?

Faghópur Stjórnvísi um gæðastjórnun og ISO staðla býður til viðburðar um rýni stjórnenda. Við
tengjum kröfur ISO 9001 við reynslu úr rekstri og skoðum hvernig rýnin getur orðið gagnlegur hluti
af stjórnun fyrirtækis.

Gná Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Versa Vottunar og reynslumikill úttektarstjóri, fjallar um
hvernig árangursríkast er að halda rýni stjórnenda. Rýnin á að gera æðstu stjórnendum kleift að
stíga skref til baka og skoða skipulagsheildina og stjórnunarkerfi hennar úr fjarlægð, meta hversu
vel hún starfar og ákvarða hvar þarf að breyta eða bæta.


Einar Bjarnason, gæða- og verkefnastjóri Límtré Vírnets, segir frá þróun rýninnar hjá fyrirtækinu
og lærdómnum á leiðinni. Hvernig hefur skilningur stjórnenda aukist? Hvað hefur þurft að laga og
hvernig hafa ábendingar úr úttektum hjálpað til?
Einar sýnir raunveruleg dæmi úr undirbúningi, greiningum og samantekt niðurstaðna. Hann ræðir hvernig gögnin tengjast ákvörðunum, ábyrgð og eftirfylgni. Reynslusaga um innleiðingu með nokkrum löngum krókaleiðum, þar sem eyðublaðið var
stundum betur undirbúið en fundarmenn!


Viðburðurinn er ætlaður gæðastjórum, stjórnendum og öðru áhugafólki um gæðastjórnun, bæði
þeim sem eru að hefja innleiðingu og þeim sem vilja þróa rýnina áfram.

Fundurinn verður tekinn upp

Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði

Hlekkur á fundinn
Faghópur Stjórnvísi - Gæðastjórnun og ISO staðlar, kynnir spennandi viðburð "Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði"


Hvernig getum við skapað bæi, nærumhverfi og húsnæði sem styðja við vellíðan og daglegt líf? Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, fjallar um hvernig þekking á samspili fólks og umhverfis getur aukið gæði í hönnun og skipulagi. Með dæmum úr starfi Envalys verður sýnt hvernig skýrar forsendur, samráð og gagnvirk þrívíddarlíkön geta stutt upplýstar ákvarðanir frá upphafi verkefna. Jafnframt verður rætt hvernig verja megi lífsgæði gagnvart kröfum um einföldun og sparnað og tengja mannlegar þarfir við sjálfbærni og markvissa gæðastjórnun.

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams, (hlekkur kemur hér inn um sólahring fyrir fund).

---

Páll Jakob Líndal er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort um er að ræða náttúru eða byggt umhverfi. Páll hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum og verkefnum er snúa að verndun byggingararfsins, auk þess að vinna að sálfræðilegum rannsóknum og hefur um árabil verið ötull talsmaður þess að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum og lögð sé ríkari áhersla á samspil fólks og umhverfis.

Páll á og rekur ráðgjafar- og rannsóknarfyrirtækið ENVALYS ásamt Herði Má Hafsteinssyni tölvunarfræðingi og Hannesi Högna Vilhjálmssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavik, þar sem áhersla er lögð á að innleiða umhverfissálfræði og þrívíddar- og sýndarveruleikatækni inn í skipulags- og hönnunarverkefni. 

Þá er Páll forstöðumaður viðbótarnáms á meistarastigi í umhverfissálfræði við Háskólann í Reykjavík, kennir umhverfissálfræði við Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, auk þess að vera pistlahöfundir, fyrirlesari og markþjálfi.

Aðalfundur faghóps um gæðastjórnun og ISO staðla - 2026

Aðalfundur faghópsins Gæðastjórnun og ISO staðlar, fyrir árið 2026, verður haldinn 22. maí kl. 12.00-13:30.
Staðsetning: VOX Brasseria, Suðurlandsbraut 2.

Þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið sigarnar@live.com


Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Gæðastjórnun og ISO staðlar:
  • Framsaga formans - um starf ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
  • Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
  • Önnur mál

     

---
F.h. faghópsins

Sigurður Arnar Ólafsson

 

ISO 9001 vegferð: verkefni yfir í venju

Á þessum viðburði fáum við að heyra frá stjórnendum tveggja fyrirtækja sem eru á ólíkum stað í sinni ISO 9001 vegferð.

Hvernig er að innleiða ISO 9001 frá grunni í frumkvöðlafyrirtæki?

Hvað þarf til að gæðakerfi festist í sessi og verði að sjálfsögðum hluta af daglegu starfi?

Hrönn Arnardóttir, umhverfis- og gæðastjóri ORF Líftækni, deilir reynslu sinni af uppbyggingu nýs stjórnkerfis, þeim áskorunum sem fylgdu og því sem skipti mestu máli í upphafi.

Karen Ýr Jóelsdóttir, gæðastjóri Ölgerðarinnar, tekur við og sýnir hina hliðina þ.e. hvernig rótgróið ISO 9001 kerfi þróast yfir í menningu þar sem gæði eru einfaldlega „hluti af því hvernig við vinnum“.

 

Þetta er viðburður fyrir þau sem hafa áhuga á frásögnum á ISO 9001 innleiðingu og hvernig stjórnkerfi geta lifnað við og orðið hluti af daglegri venju.

Vottanir í byggingariðnaði, á framkvæmdaverkefnum og stjórnkerfum - Samlegðaráhrif og helstu áskoranir

Join the meeting now
JÁVERK er með vottað gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi skv. ISO 9001 frá 2019 og ISO 14001 frá 2022 og hefur frá 2019 unnið að Svansvottuðum verkefnum. JÁVERK er með samtals 379 íbúðir sem ýmist hafa hlotið Svansvottun eða eru í því ferli. Þar að auki hefur fyrirtækið tekið þátt í verkefnum þar sem unnið er að BREEAM vottun.
 
Sigrún Melax, gæðastjóri JÁVERK, fer yfir reynsluna af því að vinna að vottuðum framkvæmdaverkefnum skv. Svaninum og BREEAM í samanburði við það að vinna í vottuðum stjórnkerfum skv. ISO 9001 og ISO 14001. Hver eru samlegðaráhrifin? Hvað er ólíkt? Hvað hefur komið á óvart? Farið verður yfir dæmi um helstu kröfur í þessum stöðlum og helstu áskoranir við að uppfylla þær. Hver er ávinningur JÁVERK og síðan viðskiptavinarins af þessum vottunum? Hvernig horfa þessar vottanir og kröfur skv. þeim við öðrum starfsmönnum fyrirtækisins? Hvaða áhrif hafa þessar vottanir á skilvirkni fyrirtækisins?
 
Sigrún Melax er verkfræðingur með BSc í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Msc í Engineering Management frá Stellenbosch University. Frá 2008-2018, með smá námshléi, vann hún við gæðastjórnun í Össuri, í nokkrum mismunandi stöðum og ýmsum verkefnum tengdum rekstri gæðakerfisins og breytingum á því, þ.m.t þátttaka í FDA úttektum og úttektum annarra heilbrigðisyfirvalda. Frá 2018 hefur Sigrún unnið sem gæðastjóri JÁVERK og haldið utan um gæða, umhverfis og öryggismál fyrirtækisins. Hún hefur því víðtæka reynslu af innleiðingu og rekstri gæðastjórnunarkerfa, skv. ISO 9001, 14001 og 13485, Svansvottun og BREEAM og ytri úttektum frá ólíkum aðilum.
 
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?