Háskólinn í Reykjavík Menntavegur 1, Reykjavík
Þjónustu- og markaðsstjórnun,
Í þessari kynningu segjum við frá Afleggjaranum, nýsköpunarhraðli Reykjavíkurborgar, þar sem starfsfólk fær tækifæri til að stíga út úr daglegum verkefnum og vinna markvisst að áskorunum í þjónustu borgarinnar með aðferðum þjónustuhönnunar.
Við förum yfir hvernig hugmyndin að Afleggjaranum kviknaði og hvernig reynsla úr fyrri þróunar- og nýsköpunarverkefnum lagði grunninn að þeirri nálgun sem notuð er í dag.
Þátttakendur fá líka að líta á bak við tjöldin. Við segjum frá því hvernig við hönnum ekki aðeins ferli og vinnustofur heldur heildstæða upplifun fyrir þátttakendur. Hvaða áhrif hafa rýmið, umgjörðin, menningin og leiðin sem fólk vinnur saman á sköpunarkraft, samstarf og árangur? Og hvað gerist þegar starfsfólki er gefinn tími, traust og réttu verkfærin til að takast á við áskoranir á nýjan hátt?
Að lokum skoðum við nokkur verkefni sem hafa farið í gegnum Afleggjarann, hvað hefur sprottið upp úr þeim og hvaða lærdóm við höfum dregið af vegferðinni hingað til.
Um fyrirlesara
Eva Jakobsdóttir, þjónustuhönnuður, og Valý Þórsteinsdóttir, sérfræðingur í þjónustuupplifun, starfa á þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. Þær vinna að þróun og umbótum á þjónustu borgarinnar með aðferðum þjónustuhönnunar, leiða Afleggjarann í sameiningu og styðja við innleiðingu þjónustustefnu Reykjavíkurborgar. Í starfi sínu leggja þær áherslu á að þróa þjónustu út frá þörfum og upplifun þeirra sem nota hana, jafnt íbúa sem starfsfólks.
Viðburðurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu M220. Honum verður ekki streymt.
Nóg af bílastæðum
Hlökkum til að sjá ykkur