Háskóli Íslands stofu HT-103
Þjónustu- og markaðsstjórnun,
- Magnús Haukur Ásgeirsson, Þjónustumenning, forsendur og ávinningur: Magnús er aðjúnkt við Háskóla Íslands og hefur áralanga reynslu af rekstri og stjórnun þjónustufyrirtækja. Í fyrirlestrinum fjallar hann um tilurð þjónustumenningar, hvernig slík menning myndast og hvernig skilgreiningar á henni hafa þróast. Einnig verður sýnt hvernig markviss uppbygging þjónustumenningar getur skilað betri frammistöðu, ánægðara starfsfólki, sterkari þjónustuupplifun gesta og auknum þjónustugæðum.
- Anna Margrét Steingrímsdóttir, Þjónustumenning – áhrifaþáttur í árangri: Anna Margrét er framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga og fjallar í erindi sínu um hvernig þjónustumenning mótar árangur skipulagsheilda og hvernig innri markaðssetning spilar lykilhlutverk. Sjónum verður beint að því hvernig stjórnendur geta markvisst byggt upp menningu sem styður við jákvæða þjónustuhegðun sem skilar sér í aukinni starfsánægju og árangri.
- Andri Geirsson, Að gera þjónustu áþreifanlega: Andri er teymisstjóri þjónustuhönnunar hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. Í erindi sínu fjallar hann um hvað þjónusta er og hvernig hægt er að setja hana fram með myndrænum hætti. Dregið er fram af hverju þjónustumenning skiptir máli og hvernig hægt er að bjóða notendum „upp í dans.“
- Guðrún Finnsdóttir, Hvort kom á undan, kúltúrinn eða þjónustan? Guðrún leiðir kúltúr og fræðslumál hjá Nova. Í erindi sínu fer hún beint í kjarnann; fólk, liðsheild og þau ósýnilegu öfl sem skapa upplifun. Undirstrikar að áður en viðskiptavinurinn upplifir þjónustu, upplifir starfsfólkið vinnustaðinn.