Opni háskólinn, Háskólinn í Reykjavík Menntavegi, 101 Reykjavík
Þjónustu- og markaðsstjórnun,
Á viðburðinum ætlar Kári Þór að fara yfir niðurstöður glænýrrar könnunar sem skoðaði stöðu CX (customer experience) á Íslandi, þar sem yfir 150 sérfræðingar sem starfa við CX á Íslandi tóku þátt. Skýrslan dregur fram í sviðsljósið viðhorf sérfræðinga sem og stjórnenda, mikilvægi CX mála innan fyrirtækja og möguleg sóknartækifæri. Að auki kemur Kári inn á mikilvægi þess að huga að huga að CX málum með markvissum og gagnadrifnum hætti, bæði til aðgreiningar við önnur fyrirtæki sem og til að ná forskoti á samkeppnismarkaði.
Ágústa Hrund, frá Samskipum, mun deila með áheyrendum hvernig Samskip setja áherslu á ánægju og upplifun viðskiptavina í sínu starfi og hvernig það spilar hlutverk í Better Samskip hugmyndafræðinni innanhúss.
Fyrirlesarar:
Kári Þór Rúnarsson, stofnandi Brilliant.is
Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa
Viðburðurinn fer fram í húsakynnum Opna háskólans í HR, stofa M216 (2. hæð).
--
Félögum í faghópnum er boðið upp á að taka þátt í könnuninni sem verður opin til föstudagsins 20. febrúar nk. Þátttakendur fá ókeypis eintak af skýrslunni sem veitir einstaka innsýn í CX landslagið hér á landi og gagnast fyrirtækjum að skipuleggja sitt CX starf. Sjá nánar hér: https://score.brilliant.is/cxiceland2026