Smellið hér til að tengjast fundinum á Teams.
Um er að ræða kynningu á fyrsta alþjóðlega staðlinum sem færir fyrirtækjum leiðbeiningar um hvernig rétt sé að haga og vinna með sálfélagslega þætti innnan vinnustaðar. Mat á sálfélagslegum áhættuþáttum, andleg heilsa og vellíðan starfsmanna er leiðarljós staðalsins.
Fyrirlesari er Garðar Jónsson sem er ráðgjafi og eigandi hjá Vinnu og vellíðan. Hann er viðskiptafræðingur, með meistaragráðu í altækri gæðastjórnun og jafnframt með meistaragráðu í jákvæðri sálfræði. Garðar hefur áratugalanga reynslu af stjórnunar- og rekstrarráðgjöf, fjármálum sveitarfélaga og gæðastjórnun. Hann hefur einnig setið í fjölda nefnda í stjórnsýslunni og sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum.