Fundur á vegum faghóps um stjórnun á heilbrigðissviði
Fundarefni
Lýðheilsustöð; hlutverk og nýjustu rannsóknir
Fundarstaður
Lýðheilsustöð, Laugavegi 116, 105 Reykjavík
Fundur á vegum faghóps um stjórnun á heilbrigðissviði
Fundarefni
Lýðheilsustöð; hlutverk og nýjustu rannsóknir
Fundarstaður
Lýðheilsustöð, Laugavegi 116, 105 Reykjavík
Smelltu hér til að tengjast fundinum.
Hver er ábyrgð vinnustaðarins þegar kemur að heilsu starfsfólksins? Flest eyðum við miklum tíma á vinnustöðum og eru þeir því tilvalinn vettvangur til að styðja við heilsusamlega hegðun.
Á þessum viðburði sem fer fram að hluta til fram á ensku heyrum við frá þeim Hildu Barrett, sem hefur nýlega gefið út bókina "Life Prescriptions: Feel better - Live longer - Enjoy more", og Dr. Katrínu Ýr Friðgeirsdóttur sem er lektor í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík.
Nánar um erindin
Hilda's talk: Empowering Employees to Take Responsibility for Their Own Health
Dr. Katrín Ýr Friðgeirsdóttir er lektor í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Hún lauk doktorsprófi í íþróttavísindum árið 2025 og hafa rannsóknir hennar einkum beinst að svefnheilsu, kæfisvefni og hlutverki hreyfingar og þjálfunar í að draga úr alvarleika kæfisvefns.
Um erindi Katrínar Ýrar
Svefn er ein af grunnstoðum líkamlegrar og andlegrar heilsu en mikilvægi hans fær oft ekki nægilega athygli í krefjandi starfsumhverfi nútímans. Í erindinu verður fjallað um mikilvægi svefns fyrir heilsu og vellíðan út frá nýjustu vísindarannsóknum, með sérstakri áherslu á áhrif svefns á líkamlega heilsu, hugræna getu, streitu og starfsgetu. Einnig verður fjallað um gagnkvæm tengsl svefns og vinnuumhverfis og hvers vegna svefnheilsa ætti að vera mikilvægur þáttur í heilsueflingu á vinnustöðum.
Fjárhagsleg heilsa er grunnur að starfsorku.
Hagnýtur fyrirlestur um fjármál, streitu og jafnvægi.
Nýjar rannsóknir sýna að fjármál og andleg líðan eru nátengdari en áður var talið. Einnig
að fjármál og frammistaða í starfi er tengdari en nokkurn hafði grunað.
Þegar fjárhagslega heilsan bregst hefur það keðjuverkandi áhrif á lífið allt og getur
grafið alvarlega undan sjálfsmyndinni. Þannig sýna nýlegar kannanir að allt að
helmingur starfsfólks á erfitt með einbeitingu í vinnunni vegna persónulegra
peningaáhyggna [Zellis] – sem gerir fjárhagsáhyggjur að einum duldasta streituvaldi
nútíma vinnustaða.
Góðar tekjur tryggja heldur ekki sjálfkrafa hugarró. Þvert á móti upplifa margir í krefjandi
störfum að með hærri tekjum aukast skuldbindingar, tímaskortur og ósýnilegt álag sem
tekur toll af bæði andlegri og líkamlegri heilsu.
Á þessum viðburði verður farið yfir lykilspurningar um fjárhagslega vellíðan á vinnustað:
Hvernig öðlumst við fjárhagslega heilsu í raun og veru?
Hversu mikil áhrif er talið að fjárhagslegar áhyggjur hafi á fjarvistir starfsfólks?
Hvernig tengist fjárhagsleg heilsa starfsánægju?
Ber vinnuveitendum einhver ábyrgð á því að stuðla að fjárhagslegri heilsu
starfsmanna sinna?
Farið verður yfir nýlegar rannsóknir sem gerðar hafa verið, reynslu fyrirlesara af þessum
málum hérlendis og áhrifaríkar lausnir sem hægt er að grípa til.
Þóra Valný Yngvadóttir er með fræðslufyrirtækið Val og virði. Hún er fyrirlesari,
námskeiðahaldari og fjármálaráðgjafi. Hún hefur haldið fjöldann allan af námskeiðum í
tugi ári um flest allt sem tengist fjármálum, auk þess að veita einkatíma í ráðgjöf.
Þóra Valný er menntaður viðskiptafræðingur með löggildingarpróf í fjármálaráðgjöf FPC
frá Bretlandi. Hún er einnig vottuð í verðbréfaviðskiptum og markþjálfun. Hún leggur
sérstaka áherslu á að gera fjármál aðgengileg, tengja við daglegt líf og gera
skemmtileg.
Smellið hér til að tengjast Teams
Stytting vinnuvikunnar var hluti af víðtækum breytingum á vinnumarkaði hjá hinu opinbera og síðar á almennum vinnumarkaði og kom almennt til framkvæmda á árunum 2020-2021. Hvernig hefur tekist til og erum við að ná að tækla öll verkefnin?
Við heyrum frá fulltrúum tveggja stórra vinnustaða um hvernig verkefnið hefur tekist.
María Ösp Ómarsdóttir hefur verið leikskólastýra hjá Hjallastefnunni frá árinu 2015.
Hún er ein stofnenda Opna leikskóla Memmm og situr í stjórn félagsins. Hún er auk þess 5 barna móðir og sjómannskona.
Heiti erindis Maríu Aspar: Árbær er Sjálfbær: Raunverulegar umbætur í viðverustjórnun og valdefling mannauðs í leikskólanum Árbæ. Hvernig framkvæmd og skipulag styttingu vinnuvikunnar í leikskóla getur verið lykillinn að jafnara álagi og færri veikindadögum, sem leiðir til aukinnar skuldbindingar starfsfólks til vinnustaðarins og betri starfsanda.
Guðmundur Þór Sigurðsson er deildarstjóri Fasteigna- og umhverfisþjónustu Landspítalans.
Guðmundur ber ábyrgð á fjölbreyttri stoðþjónustu sem styður við daglegan rekstur stærsta vinnustaðar landsins, m.a. fasteignaþjónustu, umhverfisþjónustu, öryggisþjónustu, þjónustuveri og símvörslu. Starfsemin nær yfir fjölda bygginga, ólíkar starfsstöðvar og þjónustu sem þarf að virka allan sólarhringinn — líka þegar flestir eru farnir heim.
Heiti erindis Guðmundar: Þegar vinnuvikan styttist en verkefnin ekki - áskoranir styttingar vinnuvikunnar í sólarhrings- og stoðþjónustu.
Fundarstjóri er Ingibjörg Loftsdóttir, formaður faghópsins og varaformaður Stjórnvísi.
Farið verður yfir viðburði vetrarins og kosið til stjórnar faghópsins og formennsku.
https://teams.microsoft.com/meet/330368377874986?p=k7lJwBBUYD12aai42c
Faghópar um heilsueflandi vinnuumhverfi og mannauðsstjórnun standa fyrir pallborði leiðtoga þar sem við fáum til liðs við okkur leiðtoga sem starfa þar sem hugsað er út fyrir boxið og lögð áhersla á jákvæða vinnustaðamenningu.
Leiðtogarnir sem mæta í pallborðið:
Gunnar Haugen, HR Director hjá CCP, starfaði í nær tvo áratugi við ráðgjöf í frammistöðu- og þjónustjórnun, gerð og smíði hvatakerfa, launagreiningar, og rak lengi eina stærstu ráðningaþjónstu landsins. Hann hefur mikla trú á mælingum, mati, endurgjöf og kerfum sem styðja við það í rekstri fyrirtækja og stjórnunareininga. Tvennt einkennir nálgun Gunnars við viðfangsefni sín, að starfsfólki eigi að líða vel í vinnunni og reksturinn þarf að ganga vel. Annað án hins er takmarkaður árangur.
Síðustu sjö árin hefur hann starfað við að komast að því hvernig tölvuleikir eru búnir til og hvernig er best hægt að styðja við fólk í skapandi umhverfi leikjageirans.
Helga Halldórsdóttir mannauðsstjóri hjá Arion banka
Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka og hefur yfir 30 ára reynslu úr fjármálageiranum. Hún býr yfir víðtækri reynslu m.a. í mannauðsmálum og straumlínustjórnun. Hún ber ábyrgð á innleiðingu mannauðsstefnu bankans og hefur leitt öflugar nýjungar á sviði mannauðsmála, með sérstaka áherslu á jafnrétti, fræðslu, skilvirkni, starfsþróun og öfluga fyrirtækjamenningu.
Hildur Ragnarsdóttir forstjóri Þjóðskrá.
Óttar Örn er einn af handhöfum Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi í ár í flokki millistjórnenda.
Hann leggur áherslu á nokkur lykilatriði til árangurs hjá ELKO:
Sálrænt öryggi er hugtak sem flestir stjórnendur þekkja, vita að skiptir máli til að ná árangri en fáir geta svarað hvernig þau vinna með það í sínum teymum. Þessi fundur snýst um hagnýta nálgun á sálrænu öryggi og fjallar ekki aðeins um hvað það er heldur einnig hvernig stjórnendur geta unnið markvisst að því að byggja það upp og viðhalda í teymum.
Uppbygging fundarins:
Harpa Cilia Ingólfsdóttir, byggingafræðingur ætlar að ræða um algilda hönnun og aðgengi í atvinnumannvirkjum, þ.m.t. skrifstofum, opinberum stofnunum, ferðamennsku og íþróttamannvirkjum. Hvað þurfum við að hafa í huga til að umhverfi starfsfólks, gesta og viðskiptavina sé sem hentugast og best útfært til að allir komist um og líði sem best.
Harpa Cilia stofnaði m.a. Aðgengi ehf. árið 2005 og rak það til ársins 2017 og nú starfar Harpa Cilia sem verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild Landspítalans.
Við munum einnig heyra frá þeim Birnu Ágústsdóttur verkefnastjóra aðstöðustýringar FSRE og Sólborgu Indíönu Guðjónsdóttur, verkefnastjóra hjá FSRE.
Heiti erindis þeirra er Aðgengi í byggingum – áskoranir og tækifæri en þar fjalla þær um aðgengi í byggingum og mikilvægi þess að hönnun og framkvæmdir taki mið af fjölbreyttum þörfum notenda. Farið verður yfir helstu áskoranir sem geta komið upp í framkvæmdum og hvernig hægt er að bæta aðgengi með markvissri hönnun og góðu samstarfi þeirra sem koma að verkefnum.
Einnig verða tekin dæmi úr endurbótarverkefnum þar sem farið verður yfir raunverulegar aðstæður og þær áskoranir sem geta komið upp þegar bæta á aðgengi í eldri byggingum. Fjallað verður um þær lausnir sem hafa verið nýttar og hvernig nálgast má verkefni af þessu tagi út frá hugmyndafræði algildrar hönnunar með það að markmiði að skapa aðgengilegt og notendavænt umhverfi fyrir sem flesta.