"Manneskjan í miðju umbreytinga " Haustráðstefna Stjórnvísi 23. september 2026

Nú er um að gera að bóka sig á Haustráðstefnu Stjórnvísi sem ber yfirskriftina "Manneskjan í miðju umbreytinga" sem er þema félagsins á 40 ára afmælisstarfsárinu 2026-2027.

Boðið verður upp á meiriháttar flott morgunverðarhlaðborð að hætti Grand Hótel. Aðgangur er frír og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Smelltu hér til að horfa á ráðstefnuna í beinu streymi. Ráðstefnunni er einnig streymt á visir.is og vb.is

08:40 Húsið opnar: Létt morgunhressing

09:00 Setning ráðstefnu: Anna Kristín Kristinsdóttir Director Software Engineering hjá JBT Marel og formaður stjórnar Stjórnvísi

09:05 Ráðstefnustjóri:  Bergur Ebbi Benediktsson, framtíðarfræðingur, uppistandari, rithöfundur og pistlahöfundur

09:10 Jón G. Hauksson, ritstjóri Grafarvogur.net og heiðursfélagi Stjórnvísi.

09:25 Pallborðsumræður:  Róbert Bjarnason, stofnandi Citizens Foundation sérfræðingur í gervigreind stýrir umræðum.  Gestir verða Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid, Arna Harðardóttir forstjóri Helix Health.

09:55 Stutt hlé: Tengslamyndun og spjall

10:10 Oddur Ólafsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Horseday. 

10: 30 Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Franklin Covey á Íslandi og heiðursfélagi Stjórnvísi. 

10:50 Samantekt flytur Ingibjörg Loftsdóttir framkvæmdastjóri ráðgjafastofunnar Svalar og varaformaður Stjórnvísi.

11:00 Ráðstefnuslit

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Notkun gervigreindar við fræðslu

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
 
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir og sýna hvernig hún styðst við gervigreind við gerð skriflegrar fræðslu, fræðslumyndbanda, texta á fræðslumyndböndum og þýðingu á þeim. Því næst segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til allskyns annað stafrænt kennsluefni á einfaldan hátt.  *Athugið að innihald erindisins hefur breyst frá því það var upphaflega auglýst*
 
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
 
Viðburðurinn fer fram á Teams.

 

Hlekkur á Teamsviðburð

Samskipti í upplýsingaöryggiskrísu

Sameiginlegur viðburður faghópa um Almannatengsl, miðlun og samskipti og stjórnun upplýsingaöryggis. 

Nánari upplýsingar koma síðar. 

Framtíðarleiðtoginn

Þátttökufundur um færni og eiginleika leiðtoga framtíðarinnar 

Við fáum til liðs við okkur öfluga leiðtoga sem deila sinni persónulegu reynslu og framtíðarsýn á hvaða færniþættir verða mikilvægastir í framtíðinni í pallborðsumræðum og á vinnustofu þar sem allir þátttakendur munu leggja sitt af mörkum.

Þeir eru;

Ari Daníelsson starfar sem stjórnarformaður Skyggnis eignarhaldsfélags sem heldur utan um 15 rekstrarfélög í upplýsingatækni og stafrænum innviðum og er jafnframt starfandi stjórnarformaður Origo. Hann hefur yfir tveggja áratuga reynslu af stjórnun, fjárfestingum og umbreytingum innan upplýsingatækni og fjármálaþjónustu, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi.

Kristinn Hjálmarsson er framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries og stofnandi ráðgjafafyrirtækisins Nótera. Hann starfaði áður sem þróunarstjóri Opna háskólans hjá HR og hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, breytingastjórnun og þróun skipulags. Kristinn starfar með stjórnendum og stjórnum við að móta framtíðarsýn og hrinda henni í framkvæmd og hefur sérstakan áhuga á því hvernig forysta, lærdómur og tækni móta framtíð vinnunnar.

María Fjóla Harðardóttir hefur starfað sem stjórnandi/leiðtogi í heilbrigðisþjónustu í yfir 20 ár, nú síðast sem forstjóri Hrafnistuheimilanna þar sem starfa um 2000 starfsmenn á 7 starfsstöðum. María var fyrsta konan til að gegna embætti forstjóra í sögu Hrafnistu. Hún starfaði einnig sem stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu sem þjónustar yfir 50 fyrirtæki. Árið 2021 hlaut hún Viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir stjórnunarstörf sín.

Selma Svavarsdóttir er forstöðumaður nýsköpunar hjá Landsvirkjun og hefur fjölbreytta reynslu af stjórnun, rekstri og breytingum. Hún starfaði áður í fjármálageiranum og hefur síðan gegnt fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum hjá Landsvirkjun. Hún hefur leitt ólík teymi og breytingar í stórri og fjölbreyttri starfsemi og leiðir í dag nýsköpun hjá Landsvirkjun.

Á vinnustofunni heyrum við persónulegar reynslusögur frá fólki sem leiðir, skapar og starfar mitt í breytingum.

Sögurnar verða kveikja að sameiginlegri rannsókn þar sem við:

  • lesum í breytingarnar sem þegar eru að eiga sér stað og munu móta framtíðina
  • skoðum hvaða færniþætti þessar breytingar munu kalla á
  • ögrum viðteknum hugmyndum um forystufærni 
  • drögum fram þá færni sem líklegt er að skipti mestu máli
  • speglum eigin styrkleika og tækifæri til vaxtar

Markmið:

Að virkja framtíðarlæsi okkar og móta saman vegvísi með hugmyndum af forystufærni sem framtíðin mun mögulega kalla á. Markmiðið er að viðburðurinn veiti innblástur, skýrari sýn og meðvitund um hvað við getum byrjað á að efla hjá okkur sjálfum.




Kaffi og kafað á dýptina

Faghópar Stjórnvísi um gæðastjórnun og verkefnastjórnun ásamt Verkefnastjórnunarfélagi Íslands (VSF) bjóða til sameiginlegs Kaffis og kafað á dýptina – lifandi morgunfundar þar sem við ætlum að skoða snertifleti gæðastjórnunar og verkefnastjórnunar. Verkefna- og gæðastjórnun eiga margt sameiginlegt, umbætur verða að verkefnum, verkefni þurfa skýr markmið og eftirfylgni, áhættur þarf að greina og stýra og lærdómur skilar litlu ef hann kemst ekki aftur inn í starfsemina.

En hvernig gerum við þetta vel í praktík?

Við ætlum ekki að eyða morgninum í langa fyrirlestra heldur kafa beint í samtalið. Sett verða upp umræðuborð með mismunandi viðfangsefnum þar sem þátttakendur velja sér það sem þeir hafa mestan áhuga á að ræða.

Umræðuefni gætu meðal annars verið:

  • Umbótaverkefni – hvernig förum við frá góðri hugmynd yfir í raunverulegan og varanlegan árangur?
  • Áhættustjórnun – hvað geta verkefnastjórnun og gæðastjórnun lært hvor af annarri?
  • Lærdómur og þekking – hvernig tryggjum við að reynsla úr verkefnum nýtist í næsta verkefni og daglegum rekstri?
  • Ferlar og verkefni – hvar tekur annað við af hinu og hvernig tryggjum við gott samspil?
  • Mælingar og árangur – erum við að mæla það sem raunverulega skiptir máli?
  • Fólkið, breytingar og innleiðing – hvernig tryggjum við að umbætur og verkefni lifi áfram eftir að verkefninu lýkur?

Og kannski kemur besta umræðuefnið frá þátttakendum sjálfum!

Á hverju borði verður umræðustjórnandi sem heldur utan um samtalið, en áherslan er á reynslu, spurningar, áskoranir og hugmyndir þátttakenda. Gert verður ráð fyrir að fólk geti fært sig á milli borða og þannig kafað ofan í fleiri en eitt viðfangsefni.

Í lokin tökum við stutta sameiginlega samantekt og deilum helstu lærdómum og hugmyndum frá borðunum – svo allir fari heim með aðeins meira í farteskinu en þeir komu með.

☕ Og auðvitað verða kaffi og kleinur með þessu öllu saman.

Komdu með áskorun, reynslusögu eða bara forvitni. Markmiðið er að læra hvert af öðru, tengja saman fagheima og ræða það sem virkar – og það sem mætti virka betur.

Hlökkum til að kafa á dýptina með ykkur!

Staðsetning fundarins er Engjateigur 9, kjallari

Margfaldaðu afköstin með hjálp gervigreindar

Hvað ef þú gætir falið gervigreind verkefni, tengt hana við gögnin þín og látið hana aðstoða þig við vinnuna frá upphafi til enda?

Á þessum hagnýta og líflega fyrirlestri sýnir Stefán Atli Rúnarsson hvernig gervigreind er að þróast úr spjallmenni sem svarar spurningum yfir í stafrænan samstarfsmann sem getur unnið verkefni í mörgum skrefum.

Með lifandi sýnikennslu og dæmum úr daglegu starfi verður farið yfir hvernig má breyta tölvupóstum í forgangsraðað verkefnayfirlit og svör, vinna úr skjölum og töflum, túlka myndir og undirbúa fundi. Einnig verður sýnt hvernig tengingar við tölvupóst, dagatal og önnur verkfæri geta gert gervigreind að enn öflugri aðstoðarmanni.

Þátttakendur fá innsýn í gervigreindarfulltrúa sem geta framkvæmt verkefni í vöfrum og hugbúnaði og sinnt eftirfylgni milli samtala. Jafnframt verður fjallað um skýr fyrirmæli, aðgang að gögnum og hvenær mannlegt mat og samþykki þurfa að koma til. Markmiðið er að hver þátttakandi fari heim með skýra hugmynd að einu endurteknu verkefni sem hægt er að byrja að einfalda með gervigreind strax næsta dag.

Fyrirlesturinn hentar stjórnendum, verkefnastjórum og öllum þeim sem vilja spara tíma, einfalda vinnuna og nýta gervigreind markvissar í sínu starfi.

Erindið er haldið í Innvoation House, Eiðistorgi á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 12. nóvember 2026, en einnig er í boði að mæta á streymi í gegnum fjarfund á Teams (sjá tengil hér neðst). Til að finna salinn er gengið inn á Eiðistorg við hliðina á Hagkaup, þaðan upp á 2.hæð. Beint á móti Bókasafni Seltjarnarness er opin hurð upp á 3.hæð og þar verður fundurinn.


Um fyrirlesarann
Stefán Atli Rúnarsson er fyrirlesari og ráðgjafi sem sérhæfir sig í hagnýtri notkun gervigreindar. Hann hefur kennt þúsundum Íslendinga að nýta gervigreind og haldið námskeið og fyrirlestra fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki og stofnanir. Stefán er menntaður viðskiptafræðingur með bakgrunn í markaðsmálum, tækni og miðlun. Hann leggur sérstaka áherslu á að gera gervigreind aðgengilega, skemmtilega og umfram allt gagnlega í daglegu starfi.

Nánari upplýsingar: https://chatgptnamskeid.is

Tengill á fjarfund/streymi:

https://teams.microsoft.com/meet/3571089139419502?p=ildKftOVRrIQTWG1MV

Taugafjölbreytileiki á vinnustað

Hlekkur inn á viðburðina

 

Taugafjölbreytileiki á vinnustað: Allir heilar leggja eitthvað til
Taugafjölbreytileiki er ekkert tískufyrirbæri. Hann er raunveruleiki á öllum vinnustöðum. Talið er að 15–20% fólks séu taugafjölbreytt eða skynsegin, til dæmis með ADHD, einhverfu eða lesblindu. Reynsla þeirra hefur áhrif á samskipti, sköpunargleði, líðan og samvinnu í teymum á hverjum einasta degi. Á þessum fyrirlestri skoðum við hvernig taugafjölbreytileiki birtist í vinnunni, hvers vegna svo margir fara óséðir og hvað stjórnendur, mannauðsfólk og samstarfsfólk geta gert til að allir heilar fái að blómstra. Þú færð með þér skýrar útskýringar og einföld, hagnýt verkfæri sem þú getur byrjað að nota strax. Fyrirlesturinn fer fram á ensku, en spurningar og umræður mega gjarnan vera á íslensku.

 

Neurodiversity at Work: Every Brain Brings Something Valuable
Neurodiversity isn’t a trend. It’s a reality in every workplace. An estimated 15–20% of people are neurodivergent, including those with ADHD, autism, and dyslexia, and their experiences shape team dynamics, communication, creativity, and wellbeing every single day. In this session, we’ll explore what neurodivergence actually looks like at work, why so many people go unrecognized, and what leaders, HR, and colleagues can do to create an environment where all brains can thrive. You’ll leave with clear explanations and simple, practical tools you can start using right away. The session will be held in English, with Q&A welcome in Icelandic.
 
Um Sönnu
Sanna Arthur er ICF-þjálfaður markþjálfi með sérhæfingu í taugafjölbreytileika. Hún er líka fræðari og stofnandi Speshal Coaching í Reykjavík. Sanna er á einhverfurófi og með ADHD. Eins og margar konur greindist hún seint. Í starfi sínu að inngildingu skynsegins fólks nýtir hún bæði eigin reynslu og faglega þekkingu. Með bakgrunn í verkefnastjórnun, teymisstjórnun og fjölmenningarlegum samskiptum aðstoðar hún fyrirtæki og stofnanir við að byggja upp vinnustaði þar sem allir heilar geta blómstrað. Nálgun hennar byggir á styrkleikum og vísindalegri þekkingu og hefur sálrænt öryggi að grunni. Hún býður upp á vinnustofur og markþjálfun á ensku, íslensku og þýsku.

 

About Sanna
Sanna Arthur is an ICF-trained neurodivergent coach, educator, and founder of Speshal Coaching in Reykjavík. With a background in project management, leadership, and multicultural communication, she helps organizations build workplaces where all kinds of brains can thrive. A late-diagnosed AuDHD woman, she brings both lived experience and professional expertise to her work on neuroinclusion. With a background in project management, leadership and multicultural communication, she helps organizations build workplaces where all kinds of brains can thrive. Her approach is strengths-based, science-informed and grounded in psychological safety. She offers workshops and coaching in English, Icelandic, and German.
 
 

Heilsa sem stefnumarkmið og forystumál

Hver er ábyrgð vinnustaðarins þegar kemur að heilsu starfsfólksins?

Hvað með að passa upp á:

  • Streitu
  • Vinnustaðamenningu
  • Sveigjanleika á vinnustað
  • Samskipti - hafa áhrif á svefn

Nánari upplýsingar þegar nær dregur. 

Eldri viðburðir

Aðferðafræði Atvinnustefnu, framkvæmd og árangursmat

Hlekkur á viðburð

Faghópur Stjórnvísi um „stefnumótun og árangursmat“ býður til viðburðar í samstarfi við forsætisráðuneyti þar sem Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, fjallar um mótun atvinnustefnu Íslands, eftirfylgni og mat á árangri í framkvæmd.

Dagskrá:

Davíð Lúðvíksson, Rekstrarverkfræðingur, um faghópinn og mikilvægi stefnu og árangursmælinga í uppbyggingu atvinnulífs.

Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, fjallar um mótun atvinnustefnu Íslands, eftirfylgni og mat á árangri í framkvæmd. Þá fer Sveinbjörn yfir fyrstu samantekt á stöðu innleiðingar atvinnustefnunnar.

Að erindinu loknu verður opnað fyrir spurningar og samtal þátttakenda undir stjórn fundarstjóra. Bjarki/Rósbjörg

Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að skiptast á reynslu og mynda tengsl aðila sem koma að stefnumótunarstarfi, eftirfylgni og árangursmati áhersluverkefna.

 

https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/atvinnustefna-islands/

Rýni stjórnenda. Bestu leiðir til árangurs.

Hlekkur á fundinn
Hvað þarf til að rýni stjórnenda skili skýrum niðurstöðum og umbótum? Hvernig fáum við

stjórnendur til að taka virkan þátt og fylgja ákvörðunum eftir?

Faghópur Stjórnvísi um gæðastjórnun og ISO staðla býður til viðburðar um rýni stjórnenda. Við
tengjum kröfur ISO 9001 við reynslu úr rekstri og skoðum hvernig rýnin getur orðið gagnlegur hluti
af stjórnun fyrirtækis.

Gná Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Versa Vottunar og reynslumikill úttektarstjóri, fjallar um
hvernig árangursríkast er að halda rýni stjórnenda. Rýnin á að gera æðstu stjórnendum kleift að
stíga skref til baka og skoða skipulagsheildina og stjórnunarkerfi hennar úr fjarlægð, meta hversu
vel hún starfar og ákvarða hvar þarf að breyta eða bæta.


Einar Bjarnason, gæða- og verkefnastjóri Límtré Vírnets, segir frá þróun rýninnar hjá fyrirtækinu
og lærdómnum á leiðinni. Hvernig hefur skilningur stjórnenda aukist? Hvað hefur þurft að laga og
hvernig hafa ábendingar úr úttektum hjálpað til?
Einar sýnir raunveruleg dæmi úr undirbúningi, greiningum og samantekt niðurstaðna. Hann ræðir hvernig gögnin tengjast ákvörðunum, ábyrgð og eftirfylgni. Reynslusaga um innleiðingu með nokkrum löngum krókaleiðum, þar sem eyðublaðið var
stundum betur undirbúið en fundarmenn!


Viðburðurinn er ætlaður gæðastjórum, stjórnendum og öðru áhugafólki um gæðastjórnun, bæði
þeim sem eru að hefja innleiðingu og þeim sem vilja þróa rýnina áfram.

Fundurinn verður tekinn upp

Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagmennska og ferlar

Morgunfundur Kjarks ráðgjafar og Stjórnvísi 
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.
 

Hvar er hægt að spara og hvað má reksturinn ekki missa?

Þegar kostnaður hækkar og óvissa eykst þurfa stjórnendur að taka erfiðar ákvarðanir. Þrýstingur á hagræðingu getur verið mikill og tíminn til stefnu stuttur. En ákvarðanir sem lækka kostnað í dag geta orðið dýrar á morgun ef þær koma niður á þjónustu og gæðum eða leiða til þess að lykilþekking og traust starfsfólks tapast.

Kjarkur ráðgjöf og Stjórnvísi bjóða til morgunfundar um hvernig hægt er að bregðast við af yfirvegun, greina tækifæri til umbóta og leiða breytingar með fagmennsku og virðingu fyrir fólki.

Á fundinum tengjum við saman mennsku, fagmennsku og ferla og fjöllum um mikilvægi þess að huga að þessu þrennu þegar þrengir að rekstrinum.

Hvað þarf að greina áður en gripið er til niðurskurðar?

Harpa Þrastardóttir fjallar um hvernig greining á ferlum, kostnaði og áhættu hjálpar stjórnendum að sjá hvað skapar virði, hvar sóun liggur og hvað má einfalda eða hætta að gera. Hvernig má endurskipuleggja vinnuna, skýra ábyrgð og varðveita nauðsynlega getu og gæði? Og hvernig vitum við hvort aðgerðirnar skila raunverulegum árangri?

Hvernig leiðum við fólk í gegnum breytingar?

Berglind Björk Hreinsdóttir fjallar um mannlega þáttinn í breytingum, óvissu og ólík viðbrögð starfsfólks. Þar kemur meðal annars inn missir og sorg sem geta fylgt því að missa starf eða kveðja samstarfsfólk.

Áherslan er á samskiptastjórnun og skýra upplýsingagjöf, hvernig stjórnendur taka krefjandi samtöl af virðingu og styðja bæði við þau sem missa starfið og þau sem halda áfram. Hvernig styrkjum við traust, viðhöldum áhuga og hjálpum fólki að finna fótfestu við breyttar aðstæður?

Staður og stund

  1. október 2026
    Esja, fundarsalur Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30

Kl. 8.30 – Húsið opnar. Kaffi og léttar morgunveitingar.
Kl. 9.00–10.00 – Tvö erindi, spurningar og umræður.
Kl. 10.00–10.30 – Kaffispjall og tengslamyndun.

 

Kulnun Íslendinga á vinnumarkaði – hvað segja sjö ára gögn okkur?

Prósent hefur mælt kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði árlega frá árinu 2020 og kynnir nú nýjustu niðurstöður ársins 2026.

Í fyrirlestrinum verður þróun kulnunar á íslenskum vinnumarkaði skoðuð yfir sjö ára tímabil, frá 2020–2026. Hvaða breytingar hafa orðið á þessum tíma? Hvaða hópar skera sig úr? Og hvaða starfstengdu og aðrir þættir tengjast streitu og álagi?

Rannsóknin byggir á um 900 svörum einstaklinga á vinnumarkaði um allt land og niðurstöður eru meðal annars greindar eftir starfsgrein, starfsaldri, kyni, aldri og menntun.

Fyrirlesari:
Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, kynnir helstu niðurstöður og það sem helst vekur athygli í sjö ára þróuninni.

Skráning:
Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 14. október. Skráðir þátttakendur fá Teams-fundarboð sent í kjölfarið.

👉 Skráning og nánari upplýsingar:
https://prosent.is/fyrirlestur-um-kulnun-islendinga-a-vinnumarkadi-2026/

Heilbrigð vinnustaðamenning og dæmi um hagnýtingu þekkingar

 

Smelltu hér til að tengjast fundinum

Hver eru grundvallaratriði vinnustaðamenningar? Hvernig getum við hagnýtt þekkinguna?

Vinnustaðamenning byggir á sál-félagslegum þáttum í vinnuumhverfinu þar sem forysta gegnir mikilvægu hlutverki sem og virk þátttaka og ábyrgð alls starfsfólks. Vinnustaðamenning hefur afgerandi áhrif á vellíðan, ánægju og árangur. Víða eru vísbendingar um að bæta þurfi vinnustaðamenninguna. Þekking um heilbrigða vinnustaðamenningu hefur vaxið og styrkst með rannsóknum undanfarna fjóra áratugi en margt bendir til þess að brýnt sé að hagnýta þessa þekkingu enn betur. Í erindinu verður fjallað um grundvallaratriði heilbrigðrar vinnustaðamenningar og kynnt dæmi um hagnýtingu þekkingarinnar á vinnustöðum hér á landi.

Sigrún Gunnarsdóttir er hjúkrunarfræðingur, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafi hjá Vinnueftirliti ríkisins.

 

Heilbrigð vinnustaðamenning og dæmi um hagnýtingu þekkingar

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?