Hvernig geta leiðtogar nýtt kraft leiksins með markvissum hætti í sínu leiðtogastarfi?
Á þessum viðburði skoðum við hvað leikur og leikgleði eru – og hvað þau eru ekki. Við fáum innsýn í áhrif leiks á fólk og vinnuumhverfi, og fáum líka að upplifa á eigin skinni hvað leikur getur virkjað í okkur. Horft er á viðfangsefnið frá tveimur vinklum, bæði hvernig hægt sé að nýta leik til að vinna að verkefnum og ná niðurstöðum á leikandi hátt (playful working) og hins vegar hvernig leikgleði getur stuðlað að vellíðan starfsfólks (alvörulaus leikur).
Markmiðið er að þátttakendur fari með nýja sýn, innblástur og hugmyndir að því hvernig hægt er að flétta meiri leikgleði inn í daglegt starf.
Dagskrá
Við hefjum viðburðinn á stuttu innleggi frá Miu Sundstrom, framkvæmdastjóra National Institute for Play í Bandaríkjunum, sem deilir með okkur innsýn í mikilvægi leiks.
Að því loknu taka Alexía Björg Jóhannesdóttir og Guðrún Gyða Franklín við og leiða okkur í gegnum fræðslu og upplifun þar sem við könnum kraft leiksins og möguleika hans í vinnuumhverfinu.
Alexía er leikjameistari og leikari sem hefur rannsakað áhrif leiks á fullorðið fólk í lokaritgerðinni Fíflalæti og vellíðan, þar sem hún kannaði meðal annars hvernig leikur getur haft jákvæð áhrif á líðan, lausnamiðaða hugsun og lífsviðhorf. Í dag fer hún inn á vinnustaði og í hópa til að leiða fullorðið fólk inn í heim leiksins.
Guðrún Gyða er arkitekt sem vinnur að þróun á námsefni og miðlun nýrra kennsluhátta með áherslu á hönnunarhugsun (Design Thinking) og leikmiðað nám (Playful Learning). Hún hannar og leiðir vinnustofur fyrir fjölbreytta hópa og nýtir meðal annars LEGO® SERIOUS PLAY® til að efla sköpunarkraft, sjálfstraust og áhuga fólks á starfi sínu.
Viðburðinn leiða Bryndís Skarphéðinsdóttir og Lára Kristín Skúladóttir, sem sitja í stjórn faghóps um leiðtogahæfni hjá Stjórnvísi.
Dags.: Fimmtudaginn 3. desember
Tími: 13:30-15:00
Staðsetning: JBT Marel í salnum Bakki