Stuðlaháls 2, 110 Reykjavík Stuðlaháls, Reykjavík, Ísland
Sjálfbær þróun, loftslagsmál og umhverfi, Innkaupa- og vörustýring,
Samskipti við birgja og innkaup eru talin vera eitt meginverkfæri við innleiðingu samfélagsábyrgðar hjá fyrirtækjum. Í fyrirlestrinum mun Finnur tengja saman samfélagsábyrgð við virðiskeðjuna, hver séu helstu röksemdirnar og verkfærin við innleiðinguna. ÁTVR mun gera grein fyrir samstarfi þeirra við systurfyrirtæki á Norðurlöndum og hvernig þau eru að meta birgja út frá samfélagssjónarmiðum.
Finnur Sveinsson starfar sem sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum. Hann er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í umhverfisfræðum. Hann rak ráðgjafafyrirtæki í Svíþjóð í um 14 ár og hefur meðal annars unnið með Alcoa Fjarðaál, Innkaupastofnun Gautaborgar og vann að því með Ríkiskaupum, Reykjavíkurborg og Umhverfisráðuneytinu að koma vistvænum innkaupum (www.vinn.is) á laggirnar á Íslandi.