Fundur á vegum heilbrigðishóps
Fundarefni
Vinnustaðurinn eftir uppsagnir
Undanfarnar vikur hafa mörg fyrirtæki þurft að bregða á það ráð að segja upp fólki til að mæta þeim gífurlega samdrætti sem átt hefur sér stað í efnahagslífi þjóðarinnar. Íslensk fyrirtæki huga oftast vel að þeim sem missa vinnuna. Hins vegar gleymist oft að huga að þeim sem eftir „lifa“ eða „sleppa“, svokölluðum „lay-off survivors“. Þeir fá allajafna enga hjálp en fara í gegnum langt og erfitt tímabil þar sem reiði, tortryggni, kvíði, samviskubit og ótti eru ráðandi tilfinningar þeirra sem eftir sitja og hafa mikil áhrif á starfsanda og frammistöðu starfsmanna. Þetta getur haft alvarlega afleiðingar fyrir skilvirkni og framtíðarmöguleika vinnustaðarins.
Í fyrirlestrinum verður farið yfir upplifun, viðhorf og tilfinningar „eftirlifenda“.
Fyrirlesari
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar.
Fundarstaður
Hringsal, Barnaspítala Hringsins við Hringbraut.
Vinnustaður: Uppsagnir: Layoff survivors
Tengdir viðburðir
Hver er ábyrgð vinnustaðarins þegar kemur að heilsu starfsfólksins?
Hvað með að passa upp á:
- Streitu
- Vinnustaðamenningu
- Sveigjanleika á vinnustað
- Samskipti - hafa áhrif á svefn
Nánari upplýsingar þegar nær dregur.
Eldri viðburðir
Stytting vinnuvikunnar og hvernig við náum að tækla verkefnin?
Smellið hér til að tengjast Teams
Stytting vinnuvikunnar var hluti af víðtækum breytingum á vinnumarkaði hjá hinu opinbera og síðar á almennum vinnumarkaði og kom almennt til framkvæmda á árunum 2020-2021. Hvernig hefur tekist til og erum við að ná að tækla öll verkefnin?
Við heyrum frá fulltrúum tveggja stórra vinnustaða um hvernig verkefnið hefur tekist.
María Ösp Ómarsdóttir hefur verið leikskólastýra hjá Hjallastefnunni frá árinu 2015.
Hún er ein stofnenda Opna leikskóla Memmm og situr í stjórn félagsins. Hún er auk þess 5 barna móðir og sjómannskona.
Heiti erindis Maríu Aspar: Árbær er Sjálfbær: Raunverulegar umbætur í viðverustjórnun og valdefling mannauðs í leikskólanum Árbæ. Hvernig framkvæmd og skipulag styttingu vinnuvikunnar í leikskóla getur verið lykillinn að jafnara álagi og færri veikindadögum, sem leiðir til aukinnar skuldbindingar starfsfólks til vinnustaðarins og betri starfsanda.
Guðmundur Þór Sigurðsson er deildarstjóri Fasteigna- og umhverfisþjónustu Landspítalans.
Guðmundur ber ábyrgð á fjölbreyttri stoðþjónustu sem styður við daglegan rekstur stærsta vinnustaðar landsins, m.a. fasteignaþjónustu, umhverfisþjónustu, öryggisþjónustu, þjónustuveri og símvörslu. Starfsemin nær yfir fjölda bygginga, ólíkar starfsstöðvar og þjónustu sem þarf að virka allan sólarhringinn — líka þegar flestir eru farnir heim.
Heiti erindis Guðmundar: Þegar vinnuvikan styttist en verkefnin ekki - áskoranir styttingar vinnuvikunnar í sólarhrings- og stoðþjónustu.
Fundarstjóri er Ingibjörg Loftsdóttir, formaður faghópsins og varaformaður Stjórnvísi.
Farið verður yfir viðburði vetrarins og kosið til stjórnar faghópsins og formennsku.
https://teams.microsoft.com/meet/330368377874986?p=k7lJwBBUYD12aai42c
Leiðtogapallborð - vinnustaðir sem fólk vill tilheyra
Faghópar um heilsueflandi vinnuumhverfi og mannauðsstjórnun standa fyrir pallborði leiðtoga þar sem við fáum til liðs við okkur leiðtoga sem starfa þar sem hugsað er út fyrir boxið og lögð áhersla á jákvæða vinnustaðamenningu.
Leiðtogarnir sem mæta í pallborðið:
Gunnar Haugen, HR Director hjá CCP, starfaði í nær tvo áratugi við ráðgjöf í frammistöðu- og þjónustjórnun, gerð og smíði hvatakerfa, launagreiningar, og rak lengi eina stærstu ráðningaþjónstu landsins. Hann hefur mikla trú á mælingum, mati, endurgjöf og kerfum sem styðja við það í rekstri fyrirtækja og stjórnunareininga. Tvennt einkennir nálgun Gunnars við viðfangsefni sín, að starfsfólki eigi að líða vel í vinnunni og reksturinn þarf að ganga vel. Annað án hins er takmarkaður árangur.
Síðustu sjö árin hefur hann starfað við að komast að því hvernig tölvuleikir eru búnir til og hvernig er best hægt að styðja við fólk í skapandi umhverfi leikjageirans.
Helga Halldórsdóttir mannauðsstjóri hjá Arion banka
Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka og hefur yfir 30 ára reynslu úr fjármálageiranum. Hún býr yfir víðtækri reynslu m.a. í mannauðsmálum og straumlínustjórnun. Hún ber ábyrgð á innleiðingu mannauðsstefnu bankans og hefur leitt öflugar nýjungar á sviði mannauðsmála, með sérstaka áherslu á jafnrétti, fræðslu, skilvirkni, starfsþróun og öfluga fyrirtækjamenningu.
Hildur Ragnarsdóttir forstjóri Þjóðskrá.
Óttar Örn er einn af handhöfum Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi í ár í flokki millistjórnenda.
Hann leggur áherslu á nokkur lykilatriði til árangurs hjá ELKO:
- Skýra framtíðarsýn um ánægðasta starfsfólk á smásölumarkaði
- Virkt samtal – starfsfólk hefur rödd
- Upplýsingagjöf – engin leyndarhyggja
Að byggja upp sálrænt öryggi sem virkar
Sálrænt öryggi er hugtak sem flestir stjórnendur þekkja, vita að skiptir máli til að ná árangri en fáir geta svarað hvernig þau vinna með það í sínum teymum. Þessi fundur snýst um hagnýta nálgun á sálrænu öryggi og fjallar ekki aðeins um hvað það er heldur einnig hvernig stjórnendur geta unnið markvisst að því að byggja það upp og viðhalda í teymum.
Uppbygging fundarins:
Kristrún opnar fundinn með stuttum inngangi byggðu á rannsóknum og hennar reynslu af teymisvinnu úr ólíkum geirum. Við köfum undir yfirborðið og skoðum hvað er að gerast innra með fólki þegar við upplifum ekki öryggi og lyftum upp allri þeirri ósýnilegu sóun sem verður í kjölfarið.
- Hvaða merki hefur þú séð frá þínum teymum um að sálrænt öryggi sé lágt?
- Nefndu dæmi um það sem hefur raunverulega virkað til að byggja upp öryggi?
- Hvaða mistök hefurðu gert sem þú myndir ekki endurtaka?
Að lokum tökum við öll samtalið og speglum inn í okkar eigin raunveruleika. Skoðum okkar næstu skref og hvað okkur vantar til þess að þora inn í þau óþægilegu samtöl.
✓ Raunveruleg dæmi frá öðrum leiðtogum
✓ Fyrstu skrefin sem þú getur stigið - strax í dag
✓ Trú á það að þetta er eitthvað sem við getum raunverulega breytt
Húsnæði og velferð – mikilvægi algildrar hönnunar
Harpa Cilia Ingólfsdóttir, byggingafræðingur ætlar að ræða um algilda hönnun og aðgengi í atvinnumannvirkjum, þ.m.t. skrifstofum, opinberum stofnunum, ferðamennsku og íþróttamannvirkjum. Hvað þurfum við að hafa í huga til að umhverfi starfsfólks, gesta og viðskiptavina sé sem hentugast og best útfært til að allir komist um og líði sem best.
Harpa Cilia stofnaði m.a. Aðgengi ehf. árið 2005 og rak það til ársins 2017 og nú starfar Harpa Cilia sem verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild Landspítalans.
Við munum einnig heyra frá þeim Birnu Ágústsdóttur verkefnastjóra aðstöðustýringar FSRE og Sólborgu Indíönu Guðjónsdóttur, verkefnastjóra hjá FSRE.
Heiti erindis þeirra er Aðgengi í byggingum – áskoranir og tækifæri en þar fjalla þær um aðgengi í byggingum og mikilvægi þess að hönnun og framkvæmdir taki mið af fjölbreyttum þörfum notenda. Farið verður yfir helstu áskoranir sem geta komið upp í framkvæmdum og hvernig hægt er að bæta aðgengi með markvissri hönnun og góðu samstarfi þeirra sem koma að verkefnum.
Einnig verða tekin dæmi úr endurbótarverkefnum þar sem farið verður yfir raunverulegar aðstæður og þær áskoranir sem geta komið upp þegar bæta á aðgengi í eldri byggingum. Fjallað verður um þær lausnir sem hafa verið nýttar og hvernig nálgast má verkefni af þessu tagi út frá hugmyndafræði algildrar hönnunar með það að markmiði að skapa aðgengilegt og notendavænt umhverfi fyrir sem flesta.