-
Uppgjör á starfsári
-
Kosning til stjórnar og formanns
-
Önnur mál
Aðalfundur faghóps um leiðtogafærni
Staðsetning viðburðar
Eldri viðburðir
Innri vinna leiðtogans: Vinnustofa um kjarnagildi og þjónandi forystu
Til að vera leiðtogar í okkar lífi og leiða aðra þurfum við fyrst að dýpka eigin sjálfsvitund. Að þekkja okkar gildi og lifa í samræmi við þau daglega er fyrsta skrefið á þeirri vegferð.
Á þessari vinnustofu veita Bryndís og Lára Kristín þátttakendum tækifæri til að kortleggja eigin kjarnagildi og íhuga hvernig þeir geta lifað meira í samræmi við þau. Kjarnagildi þjónandi leiðtoga verða kynnt og þar geta þátttakendur sótt innblástur til frekari vaxtar ef það höfðar til þeirra. Samhliða þessari vinnu kjörnum við okkur og tengjumst okkar ásetning í gegnum stuttar leiddar hugleiðslur.
Þessi vinnustofa er fyrir alla sem vilja fá innsýn í þjónandi forystu og leggja meiri áherslu á hvernig við getum lifað í takt við okkar eigin gildi í lífi og starfi.
ATH. Vinnustofan hefst á núvitundargöngu og leik í náttúrunni í Guðmundarlundi til að jarðtengja okkur fyrir vinnustofuna. Mætið því vel búin og tímanlega.
Hvað annað þarftu að taka með? Stílabók, penna og opinn hug.
Bryndís Skarphéðinsdóttir er með bakgrunn í alþjóðlegum lífsstíls-og heilsufræðum og fór í MSc nám í vinnusálfræði, eftir að hafa stundað hugleiðslu-og jóga nidra kennaranám á Indlandi. Síðustu ár hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, innan Norræna tengslanets um nám fullorðinna og í Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Bryndís er útskrifaður markþjálfi frá VIRKJA og hugleiðslukennari frá Yoga Essence á Indlandi.
Lára Kristín Skúladóttir er sjálfstætt starfandi lóðs og leiðtogaþjálfi en starfaði áður sem stjórnunarráðgjafi, markþjálfi og Lean sérfræðingur hjá VÍS, í gæðamálum hjá Arion banka og sem stjórnunarráðgjafi hjá ParX. Hún er með MSc gráðu í alþjóðastjórnun og markaðsfræði frá Copenhagen Business School og er markþjálfi frá Evolvia og VIRKJA.
Ráðgjöf og handleiðsla leiðtoga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum
- Innsýn í áskoranir sem verða til þegar vísindi, tækni og nýsköpun mætast
- Hagnýt ráð um hvernig markviss handleiðsla og traust forysta getur hjálpað sprotafyrirtækjum að vaxa hraðar, án þess að fórna sátt við sjálfan sig eða teymi sitt
- Leiðir til að byggja upp heilbrigt, vel skipulagt og framtíðarhæft fyrirtæki með stuðningi, þekkingu og sjálfbærri stjórn
- Hún er með doktorspróf í Líf- og læknavísindum, með sérsvið í vefjaverkfræði og frumulíffræði.
- Hún hefur yfir 14 ára reynslu af vísindum, nýsköpun og forystu, bæði í akademíu og viðskiptalífinu.
- Hún var útnefnd „Kvenfrumkvöðull ársins 2017“ af alþjóðlegu samtökunum Global Women Inventors & Innovators Network (GWIIN).
- Hún er í hópi topp 100 kvenna í nýsköpun sem fjárfestar ættu að líta til að mati Forbes
Að byggja upp sálrænt öryggi sem virkar
Sálrænt öryggi er hugtak sem flestir stjórnendur þekkja, vita að skiptir máli til að ná árangri en fáir geta svarað hvernig þau vinna með það í sínum teymum. Þessi fundur snýst um hagnýta nálgun á sálrænu öryggi og fjallar ekki aðeins um hvað það er heldur einnig hvernig stjórnendur geta unnið markvisst að því að byggja það upp og viðhalda í teymum.
Uppbygging fundarins:
Kristrún opnar fundinn með stuttum inngangi byggðu á rannsóknum og hennar reynslu af teymisvinnu úr ólíkum geirum. Við köfum undir yfirborðið og skoðum hvað er að gerast innra með fólki þegar við upplifum ekki öryggi og lyftum upp allri þeirri ósýnilegu sóun sem verður í kjölfarið.
- Hvaða merki hefur þú séð frá þínum teymum um að sálrænt öryggi sé lágt?
- Nefndu dæmi um það sem hefur raunverulega virkað til að byggja upp öryggi?
- Hvaða mistök hefurðu gert sem þú myndir ekki endurtaka?
Að lokum tökum við öll samtalið og speglum inn í okkar eigin raunveruleika. Skoðum okkar næstu skref og hvað okkur vantar til þess að þora inn í þau óþægilegu samtöl.
✓ Raunveruleg dæmi frá öðrum leiðtogum
✓ Fyrstu skrefin sem þú getur stigið - strax í dag
✓ Trú á það að þetta er eitthvað sem við getum raunverulega breytt
-
Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes. Magnús Óli hefur verið við stjórn Innnes um langt árabil. Ferill hans hófst þó ekki í matvöruheildsölu heldur sem húsasmiður. Á sínum unga aldri hóf hann störf hjá heildverslun og fékk síðar tækifæri til að taka þátt í stofnun Innnes árið 1987 ásamt tveimur samstarfsmönnum. Í gegnum tíðina hefur Magnús leitt umfangsmikla uppbyggingu Innnes, bæði í vöruhúsarekstri og flóknum aðfangakeðjum, og hefur lagt mikla áherslu á gæði, stöðug viðskiptasambönd og manneskjulegt vinnuumhverfi
-
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustusviðs Bláa Lónsins. Helga hefur áratuga reynslu úr íslenskri ferðaþjónustu. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í að stýra Bláa lóninu í gegnum áskoranir tengdar jarðhræringum og eldsumbrotum á Reykjanesskaga. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og er því vel kunn innan greinarinnar. Helga er þekkt fyrir framsýna nálgun, skýra stefnu í sölu, rekstrar- og þjónustumálum og fyrir sterka innviðaþekkingu á íslenskri ferðaþjónustu.
-
hvaða nálgun þau beita í stjórnun og leiðtogafærni,
-
hvaða verkfæri, aðferðir eða hugsunarhátt þau nýta í daglegu starfi,
-
hvernig þau byggja upp traust, skapa árangur og efla sterka liðsheild.
Hlökkum til að fá fræðast með ykkur og fá innblástur til að verða ennþá betri leiðtogar
Hrund Gunnsteinsdóttir býður Stjórnvísi félögum í samstarif við fagóp um leiðtogafærni upp á þennan viðburð. Hlekkur á viðburðinn
Á klukkutíma svörum við eftirfarandi spurningum:
👉 Hvernig get ég eflt hugrekkið og traust á eigin dómgreind?
👉 Af hverju er vel þjálfað innsæi svona mikilvægt í dag, í lífi og starfi?
👉 Hvernig hjálpar skapalónið InnSæi mér að stilla mig inn á og ná meistaratökum á innsæinu?
👉 Hvernig er innsæið grundvöllurinn fyrir greind okkar, innra jafnvægi og ákvarðanir?
👉 Ég þrái breytingar, en ekki fleiri verkefni. Er InnSæi eitthvað fyrir mig?
Á sama tíma og innsæið hefur gríðarlega mikil áhrif á hegðun okkar og ákvarðanir, höfum við allof oft misskilið það eða vanrækt. Núna er tímabært að endurskilgreina samband okkar við og skilning á innsæi.
Innsæið verður sérstaklega mikilvægt þegar við stöndum frammi fyrir óvissu, álagi, flóknum verkefnum og vilja til að nota gervigreindina á áhrifaríkan hátt.
“Hrund's advice can change your life. In a world of AI, your intuition will be your defining difference.”
- Bill George, Senior Fellow Harvard Business School & metsöluhöfundur bókarinnar True North
Hlökkum mikið til að sjá ykkur.
Um Hrund:
Hrund Gunnsteinsdóttir er leiðtogaþjálfi, höfundur og fyrirlesari. Bókin hennar InnSæi kom út í fyrra og er nú seld um allan heim á 14 tungumálum.
Hrund hefur unnið með innsæið og rannsakað það í yfir 20 ár. Hún stýrði Prisma diplómanáminu (LHÍ, Bifröst og RA) sem var viðurkennt af Norræna ráðherraráðinu fyrir að svara hvað best kröfum vinnumarkaðarins á 21. öldinni. Hrund er handritshöfundur og meðleikstjóri alþjóðlegu heimildarmyndinnar InnSæi (2016). Hrund er vottaður leiðtogaþjálfi, hefur stundað stjórnenda-og leiðtoganám hjá Harvard Kennedy School, Yale, Stanford og Oxford Said Business School. Hún er Yale World Fellow, sat í ráðgjafaráði International Leadership Center hjá Yale, og hefur hlotið viðurkenningar eins og World Economic Forum Young Global Leader, Cultural Leader og Viðurkenningu Sjávarklasans fyrir leiðtogastörf á sviði sjálfbærni. Hrund hefur haldið fjölmarga fyrirlestra og haldið vinnstofur fyrir leiðtoga á þessu sviði og víða um heim, t.d. á vettvangi TED, World Economic Forum, Yale háskóla, Alibaba, Unilever, IMAGINE Leaders, og á Mannauðsdeginum. Hrund hefur einnig víðtæka stjórnunarreynslu hér heima og erlendis. Sjá meira hér.
Nýlega birtist viðtal við Hrund um mikilvægi innsæis á okkar tímum á CNN, grein eftir Hrund í TIME Magazine, og nýleg podcöst viðtöl eru t.d. The Evolving Leader og What's Next með Philip Meissner.