Breytingaferli - samruni og uppbygging framtíðarsýnar

Reiknistofa bankanna (RB) er eitt elsta tæknifyrirtæki landsins og fagnar 40 ára afmæli núna í mars. Á síðasta ári var fyrirtækið gert að sjálfstæðu hlutafélagi og sameinaðist um mitt ár Teris þegar RB keypti stærstan hluta eigna Teris. Í dag starfa 180 starfsmenn hjá RB. Miklar breytingar hafa því átt sér stað undanfarin misseri og enn frekari breytinga er að vænta með flutningum í nýjar höfuðstöðvar á vormánuðum.

RB býður í morgunkaffi og mun deila með gestum reynslu og vangaveltum um breytingaferli, samruna og uppbyggingu framtíðarsýnar. Spjall og spekúlasjónir verða í boði í framhaldi af því.

Staðsetning viðburðar

Eldri viðburðir

Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagmennska og ferlar

Morgunfundur Kjarks ráðgjafar og Stjórnvísi 
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.
 

Hvar er hægt að spara og hvað má reksturinn ekki missa?

Þegar kostnaður hækkar og óvissa eykst þurfa stjórnendur að taka erfiðar ákvarðanir. Þrýstingur á hagræðingu getur verið mikill og tíminn til stefnu stuttur. En ákvarðanir sem lækka kostnað í dag geta orðið dýrar á morgun ef þær koma niður á þjónustu og gæðum eða leiða til þess að lykilþekking og traust starfsfólks tapast.

Kjarkur ráðgjöf og Stjórnvísi bjóða til morgunfundar um hvernig hægt er að bregðast við af yfirvegun, greina tækifæri til umbóta og leiða breytingar með fagmennsku og virðingu fyrir fólki.

Á fundinum tengjum við saman mennsku, fagmennsku og ferla og fjöllum um mikilvægi þess að huga að þessu þrennu þegar þrengir að rekstrinum.

Hvað þarf að greina áður en gripið er til niðurskurðar?

Harpa Þrastardóttir fjallar um hvernig greining á ferlum, kostnaði og áhættu hjálpar stjórnendum að sjá hvað skapar virði, hvar sóun liggur og hvað má einfalda eða hætta að gera. Hvernig má endurskipuleggja vinnuna, skýra ábyrgð og varðveita nauðsynlega getu og gæði? Og hvernig vitum við hvort aðgerðirnar skila raunverulegum árangri?

Hvernig leiðum við fólk í gegnum breytingar?

Berglind Björk Hreinsdóttir fjallar um mannlega þáttinn í breytingum, óvissu og ólík viðbrögð starfsfólks. Þar kemur meðal annars inn missir og sorg sem geta fylgt því að missa starf eða kveðja samstarfsfólk.

Áherslan er á samskiptastjórnun og skýra upplýsingagjöf, hvernig stjórnendur taka krefjandi samtöl af virðingu og styðja bæði við þau sem missa starfið og þau sem halda áfram. Hvernig styrkjum við traust, viðhöldum áhuga og hjálpum fólki að finna fótfestu við breyttar aðstæður?

Staður og stund

  1. október 2026
    Esja, fundarsalur Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30

Kl. 8.30 – Húsið opnar. Kaffi og léttar morgunveitingar.
Kl. 9.00–10.00 – Tvö erindi, spurningar og umræður.
Kl. 10.00–10.30 – Kaffispjall og tengslamyndun.

 

Kulnun Íslendinga á vinnumarkaði – hvað segja sjö ára gögn okkur?

Prósent hefur mælt kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði árlega frá árinu 2020 og kynnir nú nýjustu niðurstöður ársins 2026.

Í fyrirlestrinum verður þróun kulnunar á íslenskum vinnumarkaði skoðuð yfir sjö ára tímabil, frá 2020–2026. Hvaða breytingar hafa orðið á þessum tíma? Hvaða hópar skera sig úr? Og hvaða starfstengdu og aðrir þættir tengjast streitu og álagi?

Rannsóknin byggir á um 900 svörum einstaklinga á vinnumarkaði um allt land og niðurstöður eru meðal annars greindar eftir starfsgrein, starfsaldri, kyni, aldri og menntun.

Fyrirlesari:
Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, kynnir helstu niðurstöður og það sem helst vekur athygli í sjö ára þróuninni.

Skráning:
Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 14. október. Skráðir þátttakendur fá Teams-fundarboð sent í kjölfarið.

👉 Skráning og nánari upplýsingar:
https://prosent.is/fyrirlestur-um-kulnun-islendinga-a-vinnumarkadi-2026/

Aðalfundur faghóps um mannauðsstjórnun

Aðalfundur faghóps um mannauðsstjórnun fyrir árið 2026 verður haldinn mánudaginn 11.maí í hliðarsal í Kringlukránni kl. 12:00-13:00.
Það er laust plás fyrir 6 manns í stjórn og áhugasamir eru hvattir til að senda póst á formann hópsins Helgu Rún (helga@swappagency.com). Auglýst er eftir formanni og varaformanni hópsins.

Dagskrá fundar:

Uppgjör starfsárs

Kosning til stjórnar og formensku

Önnur mál

Leiðtogapallborð - vinnustaðir sem fólk vill tilheyra

Faghópar um heilsueflandi vinnuumhverfi og mannauðsstjórnun standa fyrir pallborði leiðtoga þar sem við fáum til liðs við okkur leiðtoga sem starfa þar sem hugsað er út fyrir boxið og lögð áhersla á jákvæða vinnustaðamenningu. 

Leiðtogarnir sem mæta í pallborðið:

Gunnar Haugen hjá CCP Games

Gunnar Haugen, HR Director hjá CCP, starfaði í nær tvo áratugi við ráðgjöf í frammistöðu- og þjónustjórnun, gerð og smíði hvatakerfa, launagreiningar, og rak lengi eina stærstu ráðningaþjónstu landsins. Hann hefur mikla trú á mælingum, mati, endurgjöf og kerfum sem styðja við það í rekstri fyrirtækja og stjórnunareininga. Tvennt einkennir nálgun Gunnars við viðfangsefni sín, að starfsfólki eigi að líða vel í vinnunni og reksturinn þarf að ganga vel. Annað án hins er takmarkaður árangur.
Síðustu sjö árin hefur hann starfað við að komast að því hvernig tölvuleikir eru búnir til og hvernig er best hægt að styðja við fólk í skapandi umhverfi leikjageirans.

Helga Halldórsdóttir mannauðsstjóri hjá Arion banka

Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka og hefur yfir 30 ára reynslu úr fjármálageiranum. Hún býr yfir víðtækri reynslu m.a. í mannauðsmálum og straumlínustjórnun. Hún ber ábyrgð á innleiðingu mannauðsstefnu bankans og hefur leitt öflugar nýjungar á sviði mannauðsmála, með sérstaka áherslu á jafnrétti, fræðslu, skilvirkni, starfsþróun og öfluga fyrirtækjamenningu. 

Hildur Ragnarsdóttir forstjóri Þjóðskrá.

Þekkjum merkin og bregðumst við

Húsið opnar kl 08:00, boðið er upp á léttar veitingar frá kl. 08:15
Smelltu hér til að skrá þig á viðburðinn
Á fundinum fjöllum við um ofbeldi í nánum samböndum og hvernig stuðningur atvinnurekenda getur skipt sköpum fyrir starfsfólk sitt. Vinnustaðurinn er oft eina tenging þolanda við samfélagið og einn af fáum stöðum þar sem þolandi kemst undan eftirliti geranda. Styðjandi viðbrögð stjórnanda eða samstarfsfólks geta brotið þá einangrun. 

Kynnt verður ný tryggingavernd, stuðningsleyfi, sem er nú hluti af slysatryggingum fyrirtækja. Stuðningsleyfið auðveldar atvinnurekendum að veita launað leyfi í allt að tvær vikur, svo starfsmaður geti frekar breytt aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap. Einnig verður fjallað um reynslu af innleiðingu aðgerðaráætlana fyrirtækja og mikilvægi þess að þolendur upplifi öryggi, stuðning og valdeflingu.

Fram koma

  • Jenný Kristín Valberg – Teymisstýra Bjarkarhlíðar
  • Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir – Forstjóri Varðar
  • Adriana Karolina Pétursdóttir Framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto á Íslandi og formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi
  • Helga Halldórsdóttir Forstöðumaður Mannauðs Arion Banka


Fundarstjóri er Ólafur Kári Júlíusson - Vinnusálfræðingur hjá Vinnuvís
ernig geta vinnustaðir stutt við starfsfólk sem verður fyrir ofbeldi í nánu sambandi

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?