Eignarumsjón Esja, fundarsalur Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30
Mannauðsstjórnun,
Morgunfundur Kjarks ráðgjafar og Stjórnvísi
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.
Hvar er hægt að spara og hvað má reksturinn ekki missa?
Þegar kostnaður hækkar og óvissa eykst þurfa stjórnendur að taka erfiðar ákvarðanir. Þrýstingur á hagræðingu getur verið mikill og tíminn til stefnu stuttur. En ákvarðanir sem lækka kostnað í dag geta orðið dýrar á morgun ef þær koma niður á þjónustu og gæðum eða leiða til þess að lykilþekking og traust starfsfólks tapast.
Kjarkur ráðgjöf og Stjórnvísi bjóða til morgunfundar um hvernig hægt er að bregðast við af yfirvegun, greina tækifæri til umbóta og leiða breytingar með fagmennsku og virðingu fyrir fólki.
Á fundinum tengjum við saman mennsku, fagmennsku og ferla og fjöllum um mikilvægi þess að huga að þessu þrennu þegar þrengir að rekstrinum.
Hvað þarf að greina áður en gripið er til niðurskurðar?
Harpa Þrastardóttir fjallar um hvernig greining á ferlum, kostnaði og áhættu hjálpar stjórnendum að sjá hvað skapar virði, hvar sóun liggur og hvað má einfalda eða hætta að gera. Hvernig má endurskipuleggja vinnuna, skýra ábyrgð og varðveita nauðsynlega getu og gæði? Og hvernig vitum við hvort aðgerðirnar skila raunverulegum árangri?
Hvernig leiðum við fólk í gegnum breytingar?
Berglind Björk Hreinsdóttir fjallar um mannlega þáttinn í breytingum, óvissu og ólík viðbrögð starfsfólks. Þar kemur meðal annars inn missir og sorg sem geta fylgt því að missa starf eða kveðja samstarfsfólk.
Áherslan er á samskiptastjórnun og skýra upplýsingagjöf, hvernig stjórnendur taka krefjandi samtöl af virðingu og styðja bæði við þau sem missa starfið og þau sem halda áfram. Hvernig styrkjum við traust, viðhöldum áhuga og hjálpum fólki að finna fótfestu við breyttar aðstæður?
Staður og stund
- október 2026
Esja, fundarsalur Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30
Kl. 8.30 – Húsið opnar. Kaffi og léttar morgunveitingar.
Kl. 9.00–10.30 – Tvö erindi, spurningar og umræður.
Kl. 10.30–11.00 – Kaffispjall og tengslamyndun.
--
Bestu kveðjur,
Berglind Björk Hreinsdóttir (8916990)
Harpa Þrastardóttir (7871808)