Mannauðshópur: Stjórnendahandbókin - verkfærakista stjórnandans

 

        Fundurinn hefst kl.08:30 en Vodafone býður upp á morgunkaffi frá kl.08:15.
        Það hefur færst í vöxt að fyrirtæki útbúi stjórnendahandbækur fyrir stjórnendur sína.   Það er gert með ýmsum hætti og fáum við að kynnast þremur áhugaverðum og ólíkum leiðum í þessum fundi. 
        Fyrirlesarar eru eftirtaldir: 
        Freyr Halldórsson, mannauðsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg
        Herdís Pála Pálsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og rekstrar hjá Byr 

        Sonja Margrét Scott, starfsmannastjóri Vodafone 
         

Þér er boðið: Félagsmenn móta stefnu Stjórnvísi

Þér er boðið: Félagsmenn móta stefnu Stjórnvísi
 
Ágætu félagsmenn,
 
Árið 2011 er afmælisár Stjórnvísi en félagið er 25 ára á árinu. Á þessum tímamótum vill stjórn félagsins fá félagsmenn til liðs við sig við stefnumótunarvinnu og móta framtíðarsýn, rýna hvar félagið er að skara fram úr og hvar við viljum gera betur.
 
Stjórnvísi eru grasrótarsamtök en helsta auðlind Stjórnvísi eru faghóparnir með rúmlega 1.000 félagsmenn frá yfir 200 fyrirtækjum og stofnunum. Þátttaka ykkar skiptir því miklu máli við stefnumótun félagsins enda  býr félagið yfir miklum auði í reynslu og þekkingu félagsmanna. Öllum félögum í Stjórnvísi er boðið að taka þátt í stefnumótunarfundi 20.janúar n.k. og við hvetjum ykkur til að koma og taka þátt.
 
Dags: 20.janúar kl 15.00-17.30
Staðsetning: Samskip, Kjalarvogi, 104 Reykjavík
Kjörís býður upp á Lúxus-íspinna og Samskip kaffi
 
 
 
Með afmæliskveðjum,
 
Stjórn Stjórnvísi 

Lean - Kynning á Value Stream Mapping, kortlagning virðisstrauma

Kynning á Value Stream Mapping, kortlagning virðisstrauma.
Haldin þriðjudaginn 25. janúar kl. 08:30-09:30.
Staðsetning: Össur, Grjóthálsi 5. 

Björgvin Víkingsson kynnir VSM aðferðafræðina við að teikna upp og rýna ferli til að finna umbætur í þeim. Hann mun fara gróflega yfir hvernig Össur notar VSM við að ákvarða og forgangsraða næstu stærri umbótaverkefnum í framleiðslu sinni. Um er að ræða mjög áhugaverða aðferðafræði sem byggir á að eyða sóun úr ferlum, auka skilvirkni og auka hlutfall virðisskapandi vinnu í þeim.

ISO-hópur: Gæðakerfi Veðurstofu Íslands

Fundurinn verður frá kl.08:30 - 09:30 í húsakynnum Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 9, Reykjavík.
Barði Þorkelsson gæðastjóri Veðurstofu Íslands kynnir vottað gæðakerfi Veðurstofunnar.
 

Sköpunargleði: Græn gleði og Sköpunargleði gefur lífinu gildi

Þann 27. Janúar klukkan 8:15 mun Íslenska gámafélagið taka á móti faghóp um Sköpunargleði í vinnunni.
 
 Dagskrá fundar;
 
8:15 Kaffi og með því
Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska Gámafélagsins ehf – Græn gleði
Guðrún Bergmann, framkvæmdastjóri Grænna hæla ehf – Sköpunargleði gefur lífinu gildi
  
Að loknum fundir verður boðið uppá sýnisferð um Gufunes og Endurvinnsluþorpið frá 9:30-10:00.
 

Balanced Scorecard: Laugalækjaskóli

 
Fyrirlesari: Jón Páll Haraldsson aðstoðarskólastjóri Laugalækjarskóla
Efni:  Að koma stefnu í framkvæmd í skólaumhverfi.
Í Laugalækjarskóla

Utanumhald mælikvarða og aðgerða.

        Miðvikudaginn 2.febrúar 2011
        Kl.08:30-09:15
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?