Á síðustu kynningu í Nóa-Síríus var áhugi fundarmanna svo mikill á VMS-töflum fyrirtækisins að ákveðið hefur verið að halda sérstaka kynningu einungis um þær.
VMS stendur fyrir Visual Management System en sýnileg stjórnun er einn af grundvallarþáttum straumlínustjórnunar. Töflurnar eru mjög öflugt verkefnastjórnunartól og hægt er að nýta sér þær einar og sér, óháð öðrum aðferðum straumlínustjórnunar.
Kynningin verður 24.nóvember í Nóa-Síríus, Hesthálsi 2-4
Boðið verður upp á morgunbrauð kl.08:30, kynningin verður milli 08:40-09:40
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur |
|
29
|
30
|
01 |
02
|
03
|
04
|
05
|
| 06 |
07
|
08 |
09
|
10
|
11
|
12
|
|
13
|
14
|
15
|
16
|
17
|
18
|
19
|
|
20
|
21
|
22
|
23
|
24
|
25
|
26
|
|
27
|
28
|
29
|
30
|
31
|
01
|
02
|
ISO-hópur Hádegisverðarfundur: Á gæðastjórnun að vera hluti almenns náms
Hádegisverðarfundur ISO hópsins fimmtudaginn 25.11.2010 frá 12-13
Staðsetning: Landsvirkjun
Hrun og hraun
Á gæðastjórnun að vera hluti almenns náms?
1) Ætti gæðastjórnun að vera hluti almenns náms í háskóla?
Fyrirlesari: Sigurður Óli Guðmundsson, BS í umhverfis-og byggingarfræði frá HÍ 2010. Er núna í kennsluréttindanámi við Háskólann á Akureyri. Sigurður vinnur í hlutastarfi hjá umhverfisstjóra LV en þeir eru m.a. með ISO 14000 vottun
2) Er grundvöllur fyrir skyldumenntun í gæðastjórnun í fögum eins og viðskiptafræði, endurskoðun og lögfræði.
Betri vitund og vinnubrögð í fjármálageiranum
Fyrirlesari: Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands
3) Hefði gæðastjórnun nýst í fyrstu viðbrögðum og vöktun Jarðvísindastofnunar í Eyjafjallagosinu.
Ábyrgð, verkstjórn, skjölun, skráningar, áætlanir.
Fyrirlesari: Ármann Höskuldsson, fræðimaður við Jarðvísindastofnun Háskólans
4) Umræður
Uppbókað er á töflufundinn og hefur því verið settur upp annar fundur þann 1.desember kl.08:40 - 09:40
Á síðustu kynningu í Nóa-Síríus var áhugi fundarmanna svo mikill á VMS-töflum fyrirtækisins að ákveðið hefur verið að halda sérstaka kynningu einungis um þær.
VMS stendur fyrir Visual Management System en sýnileg stjórnun er einn af grundvallarþáttum straumlínustjórnunar. Töflurnar eru mjög öflugt verkefnastjórnunartól og hægt er að nýta sér þær einar og sér, óháð öðrum aðferðum straumlínustjórnunar.
Kynningin verður 1.desember í Nóa-Síríus, Hesthálsi 2-4
Boðið verður upp á morgunbrauð kl.08:30, kynningin verður milli 08:40-09:40U
Fundur hjá Gæðastjórnunarhópi Stjórnvísi haldinn 6.desember kl.08:30 - 09:30
Staðsetning: Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68.
Fyrirlesari: Guðmundur S. Pétursson, gæða og öryggismálastjóri Landsvirkjunar
"Ferlar fyrirtækja sem tengjast viðskiptavini"
Fjallað verður um þá þætti í starfsemi fyrirtækja sem varðar afhenta vöru eða veitta þjónustu.
Hvað segja kröfur ISO 9001 staðalsins um vöru og meðhöndlun henntar m.t.t. mismunandi gerða fyrirtækja?
Hvernig eiga tengsl fyrirtækja og viðskiptavina þeirra að vera samkvæmt kröfum ISO 9001?
Hvernig er árangur mældur og hvernig eiga fyrirtæki að vinna með endurgjöf viðskiptavinar samkvæmt
kröfum ISO 9001?
Mannauðsstjórinn sem breytingastóri.
Kolbeinn Finnsson mannauðsstjóri N1 mun ræða hlutverk mannauðsstjóra í meiriháttar breytingum og segja frá reynslu sinni í sameiningarferli Olíufélagsins, Bílanausts og fleiri fyrirtækja sem síðan mynduðu N1.
Björg Ársælsdóttir MS í mannauðsstjórnun mun kynna niðurstöður nýrrar rannsóknar á hlutverki mannauðsstjóra í meiriháttar breytingum innan fyrirtækja. Markmið rannsóknarinnar, sem byggir á djúpviðtölum við átta mannauðsstóra íslenskra fyrirtækja sem hafa tekið þátt í meiriháttar breytingum, er að fá skýra sýn á reynslu og þekkingu þeirra á meiriháttar breytingum innan fyrirtækja með það í huga að skoða hvernig mannauðsstjóri nýtist fyrirtækjum í breytingarferlinu.
Fundurinn verður haldinn hjá:
N1, Dalvegi 10, Kópavogi,
8.desember kl.08:30-10:00