Lean - Kynning á Value Stream Mapping, kortlagning virðisstrauma

Kynning á Value Stream Mapping, kortlagning virðisstrauma.
Haldin þriðjudaginn 25. janúar kl. 08:30-09:30.
Staðsetning: Össur, Grjóthálsi 5. 

Björgvin Víkingsson kynnir VSM aðferðafræðina við að teikna upp og rýna ferli til að finna umbætur í þeim. Hann mun fara gróflega yfir hvernig Össur notar VSM við að ákvarða og forgangsraða næstu stærri umbótaverkefnum í framleiðslu sinni. Um er að ræða mjög áhugaverða aðferðafræði sem byggir á að eyða sóun úr ferlum, auka skilvirkni og auka hlutfall virðisskapandi vinnu í þeim.

ISO-hópur: Gæðakerfi Veðurstofu Íslands

Fundurinn verður frá kl.08:30 - 09:30 í húsakynnum Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 9, Reykjavík.
Barði Þorkelsson gæðastjóri Veðurstofu Íslands kynnir vottað gæðakerfi Veðurstofunnar.
 

Sköpunargleði: Græn gleði og Sköpunargleði gefur lífinu gildi

Þann 27. Janúar klukkan 8:15 mun Íslenska gámafélagið taka á móti faghóp um Sköpunargleði í vinnunni.
 
 Dagskrá fundar;
 
8:15 Kaffi og með því
Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska Gámafélagsins ehf – Græn gleði
Guðrún Bergmann, framkvæmdastjóri Grænna hæla ehf – Sköpunargleði gefur lífinu gildi
  
Að loknum fundir verður boðið uppá sýnisferð um Gufunes og Endurvinnsluþorpið frá 9:30-10:00.
 

Balanced Scorecard: Laugalækjaskóli

 
Fyrirlesari: Jón Páll Haraldsson aðstoðarskólastjóri Laugalækjarskóla
Efni:  Að koma stefnu í framkvæmd í skólaumhverfi.
Í Laugalækjarskóla

Utanumhald mælikvarða og aðgerða.

        Miðvikudaginn 2.febrúar 2011
        Kl.08:30-09:15

Kynning á stefnumótun Stjórnvísi og vordagskrá

 

        Í tilefni af 25 ára afmæli Stjórnvísi  fékk stjórn félagsins, þann 20.janúar sl. félagsmenn til liðs við sig til að móta stefnu félagsins, móta framtíðarsýn og rýna í hvar félagið er að skara fram úr og hvar gera mætti betur.    
        Niðurstöður stefnumótunarvinnunnar ásamt vordagskrá Stjórnvísi  verða kynntar fimmtudaginn 10.febrúar 
        kl.08:30 – 10:00 að Ofanleiti 2 
         
        Með afmæliskveðjum,
        Stjórn Stjórnvísi
         
        Margrét Reynisdóttir, formaður Stjórnvísi 
        Bára Sigurðardóttir, varaformaður Stjórnvísi
        Jón G. Hauksson, stjórnarmaður 
        Guðmundur Pétursson, stjórnarmaður 
        Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, stjórnarmaður 
        Sigrún Kjartansdóttir, stjórnarmaður 
        Einar Skúli Hafberg, stjórnarmaður
         
        Einar S. Einarsson, varastjórn

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
                                                                                          Hrefna Sigríður Briem, varastjórn

Þjónustuhópur: Ráðstefna um þjálfun stjórnenda og framlínufólks

Dagskrá ráðstefnu um þjálfun og hvatningu  
Tími: 16. febrúar frá 08:30-11:15 (
Staður: hjá Íslenska Gámafélaginu í Gufunesi. Nánar um staðsetning á neðangreindri vefslóð:
http://ja.is/kort/#q=index_id%3A218450&x=363123&y=408569&z=7
 
Er starfsmaðurinn mikilvægasti viðskiptavinurinn?
Þjálfun og hvatning eflir innri og ytri þjónustu
 
8:15 - Kaffi og meðlæti í boði Íslenska Gámafélagsins
Björn Garðarsson fundarstjóri
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, markþjálfi og ráðgjafi – Árangursrík þjálfun
Fjóla María Lárusdóttir og Haukur Harðarson, sérfræðingar hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins – Raunfærni – Raunfærnimat
Margrét Tryggvadóttir, Nova
Kaffi
Arney Einarsdóttir, lektor viðskiptadeild HR. - Þjálfun og starfsþróun  og hlutverk stjórnandans
Þórdís Lóa framkvæmdastjóri Pizza Hut á Íslandi og Finnlandi
TM – Ragnhildur Ragnarsdóttir, forstöðumaður mannauðsmála og innri samskipta hjá TM
Að lokinni ráðstefnu verður áhugasömum boðið í fræðsluferð um Endurvinnsluþorpið í Gufunesi
 
 
 

Verkfærakista mannauðsstjórans: Vinnustaðagreiningar

Staður:  Samskip
Haldinn: 17.febrúar kl.08:15-09:30
Heiti:  Verkfærakista mannauðsstjórans:  Vinnustaðagreiningar
Fyrirlesarar:  

Bára Mjöll Ágústsdóttir, mannauðsstjóri Samskipa
Framkvæmd og eftirfylgni vinnustaðagreininga hjá Samskipum
Sigríður Indriðadóttir, mannauðsstjóri Mosfellsbæjar
Skiptir það máli hver spyr?  Kostir og gallar þess að vinnuveitandi framkvæmi greiningarnar sjálfur
Kári Kristinsson, lector í viðskiptafræði Háskóla Íslands
Aðferðafræðilegar gildrur eða tölfræðilegar skekkjur

 

Stjórnandinn sem markþjálfi

Faghópur um markþjálfun.
Fundur haldinn 22. febrúar
Efni fundar:  „Markþjálfun sem stjórnendastíll“
Fundarstaður: Capacent, Borgartúni 27 á 1. hæð (KPMG húsinu)
Fyrirlesarar verða Hinrik Sigurður Jóhannesson rannsóknarstjóri hjá Capacent
og Bergþóra Ólafsdóttir mannauðsstjóri og markþjálfi hjá Betware.

Íslenska ánægjuvogin

 

         

                    Í tilefni af birtingu niðurstaðna Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2010, verður efnt til morgunverðarfundar á vegum
                    Lean – faghóps Stjórnvísi.   Lean á svo sannarlega erindi við stjórnendur í dag því fullbókað hefur verið á alla fundi faghópsins í vetur.
                     
                    Dagskrá:
                     
                    Ragnhildur Geirsdóttir,  forstjóri Promens fjallar um reynslu fyrirtækisins af notkun á hugmynda-og aðferðafræði 
                    Lean Management
                     
                    Reynir Kristinsson,  kennari við HR og stjórnunarráðgjafi fjallar um menningu Lean-fyrirtækja.
                    Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands
                    kynnir nýjan staðal ISO26000 um samfélagslega ábyrgð
                     
                    Tómas Bjarnason, rannsóknarstjóri Capacent Gallup kynnir niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2010

                    Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi veitir viðurkenningar þeim fyrirtækjum sem skoruðu hæst í rannsóknum 
                    Ánægjuvogarinnar 2010
                     
                    Davíð Lúðsvíksson forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins stjórnar fundinum

                    Fundarstaður
                    Turninn, Smáratorgi 3, Kópavogi
                    Nánar um Íslensku ánægjuvogina
                    Verð kr. 1.950 (greiðist á staðnum)
                    Opinn fundur – allir velkomnir
                    Bókanir á fundinn á slóðinni hér fyrir neðan

         

ISO-hópur: Einföldun á vottuðum stjórnunarkerfum

Iso hópurinn
Fundur fimmtudaginn 24. febrúar kl. 8:30 - 10 hjá Landsneti Gylfaflöt
Einföldun á vottuðum stjórnunarkerfum
Ábyrgð stjórnenda og mannlegi þátturinn
 
Hildur B. Hrólfsdóttir tók þátt í ákaflega áhugaverðu námskeið í Danmörku þar sem þetta var meginþema.
Hún mun deila þessu með þeim sem hafa áhuga á innleiðingu á ISO stöðlum sem verkfæri stjórnenda og mannlegi þátturinn í innleiðingu.
Kynnir m.a. hugmyndina að því að möguleiki sé á því að hafa aðeins þrjár útgefnar verklagsreglur í vottuðu stjórnkerfi. 
 

Umhverfis-og öryggishópur: Græna Orkan - visthæft eldsneyti í nútíð og framtíð

Fundurinn verður haldinn 3. mars í Orkugarði, Grensásvegi 9. kl 8:15-9:30

Fyrirlesari verður : Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku.
Erindið heitir Græna Orkan – visthæft eldsneyti í nútíð og framtíð
Erindið mun fjalla um starfsemi Grænu Orkunnar www.graenaorkan.is og hvað framundan er. Fjallað verður um þá starfsemi sem er í landinu í visthæfu eldsneyti og hvað framundan er hjá stjórnvöldum og bílaframleiðendum. Einnig verður komið inn á hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skref strax í dag án þess að fara í kostnaðarsamar aðgerðir og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér umhverfisvæna samgöngustefnu til að hvatningar á samdrætti kolefnisspors fyrirtækisins sjálfs og starfsmanna.
 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?